Fréttablaðið - 17.07.2019, Blaðsíða 24
Mjólkurvinnslan Arna í Bolungar
vík hagnaðist um liðlega sjö millj
ónir króna á síðasta ári, samkvæmt
nýlegum ársreikningi félagsins,
borið saman við fimmtán milljóna
króna hagnað árið 2017.
Rekstrartekjur Örnu, sem sér
hæfir sig í framleiðslu á laktósafrí
um mjólkurvörum, námu rúmum
1.052 milljónum króna á síðasta ári
og jukust um 23 prósent frá fyrra
ári þegar þær voru alls 858 milljónir
króna en þær hafa vaxið ört frá því
að framleiðsla hófst á haustdögum
2013..
EBITDA mjólkurvinnslunnar –
afkoma fyrir afskriftir, fjármagns
liði og skatta – var jákvæð um 51
milljón króna í fyrra en til saman
burðar var hún jákvæð um 53 millj
ónir króna árið 2017.
Arna átti eignir upp á tæplega 409
milljónir króna í lok síðasta árs en á
sama tíma var eigið fé félagsins 116
milljónir króna og eiginfjárhlut
fallið því um 28 prósent.
Ársverk mjólkurvinnslunnar
voru 21 talsins í fyrra, borið saman
við 18 árið áður, og námu laun og
annar starfsmannakostnaður henn
ar samanlagt 169 milljónum króna.
Dvorzak Ísland, sem er í eigu
fjárfestisins Jóns von Tetzchner,
er stærsti hluthafi Örnu með ríf
lega helmingshlut en stofnandinn
og framkvæmdastjórinn Hálfdán
Óskarsson er sá næststærsti með
fimmtán prósenta hlut. – kij
Tekjur Örnu jukust um fjórðung
Hagnaður útgerðarfyrirtækisins Jak
obs Valgeirs nam ríflega 14 milljón
um evra, jafnvirði tveggja milljarða
króna, á síðasta ári og nær ellefu
faldaðist frá fyrra ári þegar hann var
um 1,3 milljónir evra.
Hagnaður síðasta árs skýrist að
mestu af söluhagnaði hlutabréfa
upp á samanlagt 11,9 milljónir evra,
tæplega 1,7 milljarða króna, að því
er fram kemur í nýjum ársreikningi
útgerðarinnar.
Rekstrartekjur Jakobs Valgeirs
námu 26,9 milljónum evra, sem jafn
gildir 3,8 milljörðum króna, á síðasta
ári og jukust um 13,5 prósent eða 3,2
milljónir evra frá fyrra ári.
Þá var rekstrarhagnaður útgerð
arinnar tæplega 3,5 milljónir evra í
fyrra borið saman við 3,3 milljónir
evra árið 2017 en framlegð minnkaði
hins vegar um 500 þúsund evrur á
milli ára og var tæpar 4,7 milljónir
evra á síðasta ári.
Samkvæmt efnahagsreikningi
Jakobs Valgeirs námu eignir útgerð
arinnar liðlega 91,6 milljónum evra,
jafnvirði 12,9 milljarða króna, í lok
síðasta árs en á sama tíma var eigið
fé þess 29 milljónir evra og eiginfjár
hlutfallið því um 32 prósent.
Stærsti hluthafi útgerðarinnar
er félagið F84, sem er í eigu Bjargar
Hildar Daðadóttur, eiginkonu
Jakobs Valgeirs Flosasonar fram
kvæmdastjóra, með 47 prósenta
hlut en Flosi Valgeir Jakobsson, faðir
Jakobs Valgeirs, fer með 36 prósenta
hlut í útgerðarfyrirtækinu. – kij
Jakob Valgeir hagnaðist
um tvo milljarða í fyrra
1,7
milljarðar króna var sölu-
hagnaður Jakobs Valgeirs af
hlutabréfum í fyrra.
Tekjur Örnu hafa vaxið hratt frá því að framleiðsla hófst 2013. Þær voru
1.052 milljónir í fyrra og jukust um fjórðung á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Valdimar Hafsteinsson hefur starfað sem framkvæmdastjóri Kjöríss í aldarfjórðung. Valdimar segir að Kjörís sé
eitt af fáum rótgrónum fjölskyldu
fyrirtækjum sem ekki voru seld í
góðærinu og stóðu af sér hrunið.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Helstu áhugamálin eru tengd
hreyfingu og útivist. Ég var í öllum
íþróttum sem í boði voru þegar ég
var að alast upp. Knattspyrna náði
yfirhöndinni tímabundið og lék ég
í meistaraf lokki með Hveragerði.
Þegar undir þrítugt var komið þá
stofnaði konan mín, ásamt f leirum,
blakdeild í Hveragerði og fórum við
nokkur að stunda blak af kappi. Sú
íþrótt hentar vel fram eftir aldri
og stundum við hjónin enn blak
með Hamri á veturna. Á sumrin
eru hlaupaskórnir dregnir fram og
stundum við hlaup með félögum
okkar í skokkhópi Hamars. Og er
jafnvel keppt í einu og einu hlaupi
til að halda æfingadampi. Að baki
eru fimm maraþon og þrír Lauga
vegir sem eru helstu afrekin. Á vet
urna get ég líka alveg dottið í grúsk
í ættfræði, landafræði eða sögu.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Ég er einfaldur maður og rútínan
er svipuð á virkum dögum. Hafra
grautur með rjóma og banönum
upp úr kl. 7.30. Svo er gengið í
vinnuna sem eru nákvæmlega 112
skref. Þar er tekin staðan á verk
efnum dagsins með samstarfs
fólkinu. Á laugardagsmorgnum er
skokktúr með skokkhópnum og
að sjálfsögðu er sunnudagurinn
hvíldardagur.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í starfinu?
Það góða við þetta starf er að mér
Krefjandi að reka framleiðslu á Íslandi
Nám:
Stúdent frá MA 1986, iðnaðar-
tæknifræðingur (B.Sc.) frá gamla
Tækniskólanum (nú HR).
Störf:
Ég hef starfað sem framkvæmda-
stjóri fjölskyldufyrirtækisins
Kjöríss síðan 1994 og er formaður
Atorku, félags atvinnurekenda
á Suðurlandi. Áður vann ég með
skóla aðallega í Kjörís og einnig í
byggingavinnu.
Fjölskylduhagir:
Er kvæntur Sigrúnu Kristjáns-
dóttur, yfirljósmóður HSu. Eigum
við tvíburana Hafstein og Kristján
fædda 1989 og dótturina Guð-
björgu fædda 1996.
Svipmynd
Valdimar Hafsteinsson
finnst það nánast alltaf skemmti
legt. Þegar maður hefur unnið í
25 ár í sama starfi þá er auðvitað
krefjandi að halda sér og öðrum
á tánum. Það að velja sér gott
samstarfsfólk er lykilatriði og
við höfum verið lánsöm að hafa
af bragðs fólk í vinnu sem lítur á
fyrirtækið sem sitt eigið. Það hefur
auðveldað mér þennan rekstur á
þessum árum. Auðvitað geta komið
erfið mál og ákvarðanir sem geta
tekið á en það eru tækifæri í öllum
aðstæðum sem hægt er að nýta sér
eða læra af. Aðrar áskoranir felast í
að viðhalda stöðu okkar hjá neyt
endum og viðskiptavinum. Þeir
hafa treyst okkur í 50 ár og borða
ísinn okkar aftur og aftur. Að við
halda þeirri hringrás er stærsta
áskorunin.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrarumhverfinu?
Það að reka framleiðslufyrir
tæki á Íslandi er krefjandi starf.
Undanfarin misseri hafa laun
hækkað umtalsvert og samkeppni
er allajafna hörð við innlendar og
erlendar vörur. Verðhækkanir hafa
því verið í lágmarki. Þetta gerir það
að verkum að leita þarf allra leiða
til hagræðingar og útsjónarsemi
í rekstrinum. Á meðan eru vextir
háir, tryggingagjald hátt og kostn
aður eins og fasteignagjöld hefur
stórhækkað. Tollar hafa lækkað á
innf luttan ís og á meðan eru tollar
hækkaðir á dýrustu hráefnunum til
að girða fyrir ódýran innf lutning.
Þetta gerir allan rekstur í þessum
iðnaði þungan. Umræða um sykur
skatt er eins og áður felubúningur
skattahækkana sem munu skekkja
samkeppnisstöðu og veikja inn
lenda framleiðslu.
Hvaða breytingar sérðu fyrir þér
hjá Kjörís á næstu árum?
Kjörís er eitt af fáum af þessum
gömlu g rónu f jölsk yldu f y r ir
tækjum sem voru ekki seld í góð
ærinu, stóðu af sér hrunið og hafa
farið vel í gegnum kynslóðabreyt
ingar. Ég sé Kjörís fyrir mér sem
fjölskyldufyrirtæki í heilbrigðum
rekstri sem byggður er á traustum
grunni. Væntanlega mun umhverf
ið breytast með tækni og breyttum
neysluvenjum en mikilvægast er að
fylgjast vel með þróun og tileinka
sér það sem það býður upp á hverju
sinni. Við njótum þess að vera í
Hveragerði þar sem framleiðslan
byggir á jarðgufu, grænni orku
og hreinu vatni. Aðstöðu sem við
erum öfunduð af um allan heim.
Hvers konar stjórnunarhætti hef-
urðu tileinkað þér og hvers vegna?
Kjörís er 50 ára í ár og stofnað
af föður mínum, Hafsteini Krist
inssyni. Hann var frumkvöðull
í mjólkuriðnaði og byrjaði með
ostagerð 1966, á undan ísnum.
Hann dó fyrir aldur fram 59 ára
árið 1993 og tók systir mín, Guð
rún, þá við stjórn í eitt ár áður en
ég kom til starfa að fullu. Pabbi var
leiðtogi og fékk fólk í lið með sér og
innrætti okkur börnunum sínum
þann hugsunarhátt. Við ólumst
upp við að ganga í öll störf, m.a.
keyra ísblöndu í Eden um helgar
og gera það sem þurfti til að hlutir
gengju. Mínir stjórnarhættir ganga
út á að vera mannlegur og alltaf
með opnar dyr fyrir alla. Ég reyni
að hlusta á starfsfólk og viðskipta
vini, lesa aðstæður og nýta það
til að bæta okkur á öllum sviðum
og með hæfilegu magni af Excel
skjölum.
Ef þú þyrftir velja allt annan
starfsframa, hver yrði hann?
Þar sem helstu áhugamálin hafa
verið í kringum íþróttir og útivist
þá hef ég grun um að hugurinn gæti
leitað þangað. Með öllum ferða
mönnunum til Íslands þá gæti ég
hæglega nýtt óeðlilega fróðleiks
fýsn í landafræði og sögu í að miðla
því til ferðamanna. Ég held ég gæti
verið ansi góður leiðsögumaður.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Eftir 10 ár verð ég vonandi enn að
borða ís, hvort sem ég verð í mínu
starfi eða einhvers staðar á kant
inum. Ég verð örugglega skokkandi
um fjöllin og að njóta lífsins með
fjölskyldu minni og vinum.
Valdimar segist vona að eftir tíu ár verði hann enn að borða ís. Þá verði hann örugglega enn skokkandi um fjöllin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
1
7
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
0
-1
5
1
C
2
3
7
0
-1
3
E
0
2
3
7
0
-1
2
A
4
2
3
7
0
-1
1
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K