Fréttablaðið - 17.07.2019, Page 30
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við fráfall móður okkar
og tengdamóður,
Evu H. Ragnarsdóttur
Greta Önundardóttir Páll Halldórsson
Ásgeir Önundarson Riszikiya Hasansdóttir
Ragnar Önundarson Áslaug Þorgeirsdóttir
Páll Torfi Önundarson Kristín Hanna Hannesdóttir
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Albert Ísleifsson
lést þriðjudaginn 9. júlí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 19. júlí kl. 13.00
Ísleifur Ástþórsson Sigrún Ólöf Sigurðardóttir
Ástþór Eydal Ísleifsson
Ingþór Sigurður Ísleifsson
Bjarki Ísleifsson
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Aðalsteinn Davíðsson
kennari,
lést sunnudaginn 14. júlí
á hjúkrunarheimilinu Hömrum
í Mosfellsbæ. Minningarathöfn verður
haldin í Kópavogskirkju, föstudaginn 19. júlí klukkan 13.
Bergljót Gyða Helgadóttir
Davíð Aðalsteinsson Pamela Schultz
Helgi Aðalsteinsson Joohee Hong
Þorsteinn Aðalsteinsson Randi W. Stebbins
og barnabörn.
Sonur minn og bróðir,
Pálmi Freyr Óskarsson
lést á Heilbrigðisstofnuninni í
Vestmannaeyjum sunnudaginn 7. júlí.
Útför fer fram frá Landakirkju
föstudaginn 19. júlí kl. 14.00
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn
Vestmannaeyjum.
Óskar Jakob Sigurðsson
Matthildur Eiríksdóttir
Ég er hérna undir rússíbananum og ætla að finna mér aðeins hljóðlátari stað,“ segir Sjöfn Ingólfsdóttir þegar ég hringi. Spurð hvort hún sé búin að fá
sér salíbunu svarar hún: „Nei, ég fór í
rússíbana fyrir mörgum árum í Árósum
og hét því að gera það aldrei aftur. En nú
er ég komin með dóttur minni inn í lítið
hús með þaki og sest á bekk. Erum hér
átta saman og týndum nokkrum sem
ætla í öll tæki. Það vantar aðeins eina litla
fjölskyldu sem ég vildi að hefði verið með
okkur en hún komst því miður ekki.“
Sjöfn er sem sagt stödd í Tívolíinu í
Kaupmannahöfn og nýtur lífsins. Það á
vel við að hún fagni áttræðisafmæli í
Danmörku, enda fæddist hún undir
dönskum kóngi, eins og hún orðar það
sjálf. Stórafmælið gefur tilefni til að for-
vitnast aðeins um lífsgöngu hennar til
þessa. Fyrst upprunann. „Ég segist alltaf
vera Húnvetningur en er fædd í Reykja-
vík, á fæðingarheimilinu á Eiríksgötu,
hjá Helgu Níelsdóttur ljósmóður. Þar
fæddust líka þau tvö börn sem ég ól í
heiminn ansi mörgum árum seinna. En
níu mánaða gömul fór ég með móður
minni norður í Húnavatnssýslu og ólst
upp í Sólheimum í þáverandi Svína-
vatnshreppi. Þar var ég hjá ömmu og
afa, Sigurlaugu Hansdóttur og Þorleifi
Ingvarssyni sem ég kallaði aldrei annað
en mömmu og pabba, en móðir mín,
Lára Guðmundsdóttir, og stjúpfaðir,
Sveinbjörn Jónsson, bjuggu alla tíð á
Blönduósi og þar fæddust hálfsystkini
mín. Ég er rík af hálfsystkinum og
fóstur systkinum,“ segir hún.
Þó Sjöfn hafi ekki hitt móður sína
og systkini daglega í uppvextinum
segir hún hafa verið mikinn samgang
milli heimilanna og hún hafi notið þess
besta á báðum stöðum. „Ég var dekruð
í Sólheimum og svo var ég elsta barnið
þegar ég fór á Blönduós, það var mikill
titill að bera. Ég átti bara dásamlega
æsku. Ólst upp við venjubundin sveita-
störf sem öll voru unnin með höndum.
Ég er auðvitað búin að lifa tímana
tvenna þó mér finnist ég ekki vera neitt
afgömul en ég tel mig lánsama að geta
horft til beggja heima.“
Sjöf n er f y r r vera nd i for mað -
ur Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og varaformaður BSRB, fulltrúi
launafólks í nefndum og ráðum. Spurð
hvort hún hafi snemma orðið stéttvís
svarar hún: „Ég veit það ekki. Pabbi Þor-
leifur var Framsóknarmaður af gömlu
gerðinni, þeirri framfarasinnuðu stétt
sem stofnaði kaupfélög og var félagslega
sinnuð. Hann var mjög vinnusamur, var
mikill talsmaður þess að fólk létti hvað
undir með öðru og það var of boðslega
gaman að vinna með honum. En ég fór
ung að heiman, var í gagnfræðaskóla
á Sauðárkróki og f lutti til Reykjavíkur
f ljótlega upp úr því. Þar fór ég f ljótt að
fylgjast með því sem vinstra fólk sagði
og skrifaði, skráði mig í Alþýðubanda-
lagið og síðan Vinstri græna.“
Smám saman kveðst Sjöfn hafa
farið að skipta sér af verkalýðsmálum.
„Eftir að hafa unnið í fiski, keyrt vöru-
bíl og gert það sem til féll, fékk ég vinnu
í Borgarbókasafninu og það er besta og
skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið.
Þar gerðist ég bókavörður af lífi og sál,
fór á öll námskeið sem ég gat og varð
f ljótlega trúnaðarmaður fyrir starfs-
menn. Svo vatt það upp á sig og allt í
einu var ég komin inn í fulltrúaráð og
síðan stjórn Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar. Í tímans rás varð ég for-
maður og var það í ansi mörg ár og þá
um leið varaformaður BSRB, vann þar
lengst og best með Kristjáni Thorlacius
og Ögmundi Jónassyni. Þetta var góður
tími og skemmtilegur. Ég sé ekki eftir
einum degi.“
Aldrei kveðst Sjöfn hafa farið í fram-
boð til Alþingis. „Það var ekki takmark-
ið,“ segir hún. „En ég hef unnið mikið
fyrir Vinstri græna, verið svona í snún-
ingum. Við Sigríður heitin Kristinsdóttir
áttum oft heiðurinn af því að klósettin
voru hrein og nóg af kaffi á könnunni.
Vorum líka góðar í vöfflunum.“
Nú á Sjöfn heima í Mörkinni og
kveðst njóta lífsins eins og aðrir sem
þar búi. „Ég hef átt góða ævi,“ segir
hún. „Ekki síst fyrir það að ég hef verið
heilsuhraust og eignast góða vini.“
gun@frettabladid.is
Tel mig lánsama að geta
horft til beggja heima
Sjöfn Ingólfsdóttir, forystukona í verkalýðshreyfingunni til margra ára, fagnar áttræðis
afmæli í Kaupmannahöfn með börnum og barnabörnum, enda fædd undir dönskum
kóngi, en hún sleppir rússíbananum í Tívolíinu þótt sumir í hópnum ætli í öll tækin.
Sjöfn kveðst ekki sjá eftir einum degi sem hún hefur varið í stéttabaráttu um ævina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Eftir að hafa unnið í fiski,
keyrt vörubíl og gert það sem
til féll, fékk ég vinnu í Borgar-
bókasafninu og það er besta og
skemmtilegasta vinna sem ég
hef unnið.
1751 Innréttingarnar, hlutafélag um eflingu iðnaðar á
Íslandi, eru stofnaðar á Þingvöllum að frumkvæði Skúla
Magnússonar landfógeta.
1762 Katrín 2. verður einvaldur í Rússlandi eftir að Pétur
3. var ráðinn af dögum.
1930 Þýska loftskipið Graf Zeppelin kemur til Íslands og
flýgur yfir alla suðurströnd landsins.
1932 Á Skólavörðuholti í
Reykjavík er afhjúpuð stytta
af Leifi heppna Eiríkssyni.
Styttan er gjöf Bandaríkja-
manna til Íslendinga í tilefni
af þúsund ára afmæli Alþingis
árið 1930.
1945 Potsdam-ráðstefnan
hefst. Þar hittast Harry S.
Truman Bandaríkjaforseti,
Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkjanna, og Winston Churchill,
forsætisráðherra Bretlands.
1946 Fyrsti landsleikur Íslands í knattspyrnu er leikinn í
Reykjavík. Hann er gegn Dönum sem sigra, 3:0.
1969 Bing Crosby, leikari og söngvari, kemur til Íslands og
dvelur í nokkra daga við laxveiðar.
Merkisatburðir
1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
7
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
F
-E
8
A
C
2
3
6
F
-E
7
7
0
2
3
6
F
-E
6
3
4
2
3
6
F
-E
4
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K