Fréttablaðið - 17.07.2019, Síða 36
ÉG SPYR NÆSTU
MANNESKJU HVAÐ
SÉ EIGINLEGA Í GANGI OG ÞÁ
KOM Í LJÓS AÐ VON VAR Á
BRIAN MAY AÐ ÁRITA
KLUKKAN SEX.
Atli hefur verið aðdáandi sveitarinnar í nokkra áratugi og sá hana spila í Wembley Arena 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Atla Þór finnst mest gaman að safna vínylplötum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég var bara að klára að taka allt til. Ég tók til geisladiskana mína, húfur og bolla. Nefndu það bara, ég á alveg alls konar,“ segir Atli glaður
í bragði.
Hann var meira en lítið til í að
ræða aðdáun sína á hljómsveit-
inni, en hann hefur verið dyggur
aðdáandi hennar í nokkra ára-
tugi. Atli segir að á sínum tíma hafi
minningar tónleikarnir um Freddie
Mercury gert útslagið og hann hafi
verið eldheitur aðdáandi Queen
allar götur síðan.
Spenntur fyrir We Will Rock You
Þegar það var tilkynnt á sínum tíma
að söngleikurinn We Will Rock You
yrði settur á fjalir Háskólabíós nú
síðar í sumar, var aðstandendum
sýningarinnar ljóst að Atli væri vafa-
laust einn helsti aðdáandi sveitar-
innar á landinu í dag.
„Ég varð bara svo spenntur og
sýndi komu sýningarinnar mikinn
áhuga á Facebook. Sjálfur hafði ég
einmitt hugsað í mörg ár hvenær það
stæði eiginlega til að setja We Will
Rock You upp á klakanum. Söng-
leikurinn hefur verið sýndur úti um
allan heim.“
Atli hefur séð uppsetningu We
Will Rock You í Bretlandi, Dan-
mörku og Svíþjóð.
,,Í Svíþjóð var búið að þýða sum
lögin. Ég sá upptökur frá æfingum
hérna heima og heyrðist eitt lag í það
minnsta vera sungið á íslensku, sem
ég er alveg ótrúlega spenntur að sjá
hvernig kemur út. “
Á miða á tvær sýningar
Atli er nú þegar búinn að panta miða
á tvær sýningar á íslensku uppsetn-
ingunni.
,,Ég keypti auðvitað miða á frum-
sýninguna. Svo fer ég með foreldrum
mínum á sýningu númer tvö, þau
ákváðu að bjóða mér með á hana, “
Minningartónleikar voru haldnir
um Freddie Mercury þann 20. apríl
Atli Þór er einn
dyggasti aðdáandi
Queen á Íslandi
árið 1992, um hálfu ári eftir að
söngvarinn lést. Það var ákveðinn
vendipunktur fyrir Atla þegar hann
sá og heyrði upptökur frá tónleik-
unum.
,,Ég man að ég hugsaði hvað
þetta væri ótrúlega flott tónlist. Ég
mundi samt alveg eftir að hafa séð
The Miracle í Skonrokki í gamla
daga og heyrt I Want to Break Free
í útvarpinu þegar ég var bara barn.
Svo man ég líka óljóst eftir að hafa
séð Live Aid á sínum tíma, en á þeim
tónleikum stal Queen hreinlega
senunni,“ segir Atli.
Hitti Brian May fyrir tilviljun
Það er gífurlega skemmtileg saga bak
við það þegar Atli hitti gítarleikara
sveitarinnar, Brian May.
,,Ég var á röltinu í London því ég
hafði misst af rútuferð. Þetta var á
þeim tíma sem internetsamband
í síma erlendis var lélegra og það
varð til þess að ég missti af rútunni.
Ég hafði stefnt á að fara í túristaferð
um London þar sem heimili rokk-
stjarnanna voru skoðuð.“
Atli fann ekki rútuna og var frek-
ar svekktur yfir því. Það reyndist
honum þó til mikils happs.
,,Allt í einu labba ég, enn frekar
svekktur, upp að einhverri langri
biðröð fólks í Queen-bolum. Ég spyr
næstu manneskju hvað sé eiginlega
í gangi og þá kom í ljós að von var á
Brian May að árita klukkan sex. Ég
varð bara eins og Wayne’s World
gaurarnir, svo spenntur varð ég.
Mér fannst flott að hann mætti hálf-
tíma fyrr því hann vildi ekki valda
neinum vonbrigðum.“
Atli segist hafa verið svo spenntur
að hitta átrúnaðargoðið að hann
hafi hreinlega þurft að æfa sig og
undirbúa.
,,Ég hef sjaldan verið jafn stress-
aður. Maður var auðvitað ekki að
búast við þessu. Þetta var svo mikil
tilviljun og heppni. Hefði ég ekki
labbað nákvæmlega niður þessa
götu í London á þessum tíma, þá
hefði þetta aldrei gerst og ég ekki
fengið mynd með honum og eigin-
handaráritun.“
Vil Queen og Adam til Íslands
Atli hefur einnig hitt son trommara
Queen, Rufus Taylor, sem er tromm-
ari eins og pabbi hans og spilar með
hljómsveitinni The Darkness.
„Ég hitti hann í Danmörku 2015.
Þar stóð fólki til boða að hitta með-
limi The Darkness, ég fór snemma
í biðröðina inn á tónleikasvæðið,“
segi Atli.
Rufus hefur spilað með Queen +
Adam Lambert, áður en hann gekk
til liðs við The Darkness.
„Ég hef líka séð Queen spila með
Adam Lambert á tónleikum. Það
var algjör upplifun. Adam Lambert
var góður, hann nær áhorfendum á
sitt band. Hann er líka mjög góður
söngvari. Það eru líka upptökur af
Freddy spilaðar á tónleikunum, þá
sturlast áhorfendur af gleði.“
Atli skorar á tónleikahaldara að
flytja þá til Íslands.
„Það eru svo margir aðdáendur
hérlendis að ég er alveg viss um að
það myndi seljast upp, alveg hand-
viss,“ segir Atli Þór.
steingerdur@frettabladid.is
Lengra viðtal við Atla verður hægt
að nálgast á Fréttabladid.is í dag.
Miði Atla á tónleika
Queen og Adams
Lambert á Wem-
bley Arena 2017.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Atli Þór Matthíasson hefur haldið upp á hljómsveitina Queen í ára-
tugi og er einn dyggasti aðdáandi hennar hérlendis. Hann á ýmsa
muni tengda sveitinni og hitti eitt sinn Brian May fyrir tilviljun.
Hér heldur Atli á eiginhandaáritun-
inni sem hann fékk frá Brian May.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1 7 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
1
7
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
0
-0
6
4
C
2
3
7
0
-0
5
1
0
2
3
7
0
-0
3
D
4
2
3
7
0
-0
2
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
6
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K