Bæjarblaðið - 13.09.1984, Qupperneq 7
7
Heimavistin
heimsótt
Heimavistin nýja við Fjölbrautaskólann var
formlega tekin í notkun föstudaginn 31. ágúst sl.
Við athöfn sem fram fór í heimavistarhúsinu af-
henti Guðjón Guðmundsson forseti bæjarstjórn-
ar Þóri Óiafssyni, þáverandi skólameistara lykl-
ana af nýja húsinu og Þórir afhenti þá aftur hús
varðarhjónunum þeim Árþóru Ágústdóttir og
Þorsteini Gunnarssyni. Að lokinni athöfninni á
heimavistinni var gestum boðið á Hótel Akranes
þar sem ræður voru fluttar og byggingarsaga
hússins rakin.
Bæjarblaðið leit í heimsókn á heimavistina eftir
að íbúar voru fluttir inn og spjallaði við tvo nem-
endur og húsvarðarhjónin.
Þórir Ólafsson afhendir Þorsteini og Árþóru lyklana af heimavistinni.
Húsvarðarhjónin á heimavistinni
„Best búna
heimavistin“
„Bygging hússins hefur tekist
vel, heimavistin er vel útbúin og
þetta er sú best útbúna heimavist
sem ég hef séð“ sagði Þorsteinn
Gunnarsson kennari við Fjöl-
brautaskólann, en hann er hús-
vörður heimasvistarinnar ásamt
konu sinni Árþóru Ágústsdóttur.
Þau hjón eru bæði lærðir kenn-
arar en Þorsteinn sagði að þau
hefðu ekki efni á því að starfa
bæði sem kennarar. Hann sagði
okkur að þeir nemendur sem ver-
ið hefðu á gömlu heimavistinni í
fyrra væru nú allir á hinni nýju að
einum undanskildum. Aðspurður
um þær kröfur sem gerðar væru til
heimavistarnema sögðu Þor-
steinn og Árþóra að þetta væri
eina heimavist landsins þar sem
gerðar væru lágmarkskröfur til
mætingar og námsárangurs
þannig að í raun væru gerðar
strangari kröfurtil heimavistarbúa
en annarra nemenda.
„Við vorum húsverðir við gömlu
heimavistina á Kirkjuhvoli í fyrra,“
segir Þorsteinn, „og það er ekkert
hægt að bera þessi hús saman
því munurinn er svo mikill. Hins
vegar var gamla vistin vinaleg
þrátt fyrir alla sína galla.“
Þau sögðu okkur að þegar
nemendur kæmu að hausti á
heimavistina væru þeir látnir
skrifa undir samning og gerð væri
úttekt á hverri íbúð og þannig út-
tekt væri aftur gerð í lok samn-
ingstímans og nemendur þurfa
að bæta fyrir ef eitthvert tjón hefur
orðið á íbúðinni. Leigayfirönnina
er 2500 krónur, þannig að nem-
endur spara mikinn pening því al-
geng leiga á herbergjum út í bæ
mun vera 1500 til 3000 krónur á
mánuði.
Við spurðum þau hvort þau
teldu auðvelt að fá nemendur til
að framfylgja öllum reglum sem
settar væru. — Þau töldu það ekk-
ert vandamál því hérna væri um
fullorðið fólk að ræða á aldrinum
frá 16 áratil þrítugs.
Þau Þorsteinn og Árþóra létu
vel að þeirri aðstöðu sem hús-
vörðum er búin í íbúð á annarri
hæð hússins.
AKRANESKAUPSTAÐUR
Útboð -
Brekkubæjarskóli
Frændur úr Miklaholtshreppi:
„Þetta er rosalegur munur“
„Þetta er rosalegur munur frá
gömlu vistinni á Kirkjuhvoli og eig-
inlega ekki hægt að bera þetta
tvennt saman, svo ólíkt er það,“
sagði Björgvin Pálsson frá Borg
Miklaholtshreppi, en hann er í
íbúð með frænda sínum Ásgrími
Halldórssyni frá Minni-Borg í
Miklaholtshreppi.
Björgvin er á öðru ári í Fjöl-
brautaskólanum en Ásgrímur á
fyrsta ári og báðir stunda þeir
frændur nám á verknámsbraut
rafiðna. Eins og fram kom í byrjun
þá gerði Björgvin strax saman-
burð á gömlu og nýju heimavist-
inni enda hefur hann góðan
samanburð þar sem hann bjó á
Kirkjuhvoli í fyrra. Við spyrjum þá
félaga hvað það væri helst sem
þeir væru ánægðir með á hinni
nýju heimavist
„Það er plássið," sagði Ásgrím-
ur, „hér er nóg pláss og svo er það
kostur að vera svona nálægt
skólanum."
Nú er aðstaða til eldunnar í
íbúðum nemenda. Kokkið þið
sjálfir fyrir ykkur?
„Björgvinspæliregg," segirAs-
grímur, en þeir segja svo að það
eigi bara eftir að koma í Ijós. „Við
erum í svokölluðu fimm daga
skertu fæði út í skóla,“ segir
Björgvin, „og það dugar virka
daga, við verðum svo að bjarga
okkur sjálfir um helgar".
Er við spurðum þá félaga um
ástæðuna fyrir því að þeir kæmu
til Akraness í skóla, sögðu þeirað
í fyrsta lagi væri stutt fyrir þá hing-
að og svo væru ekki margir skólar
sem byðu upp á heimavist,
„nema þá menntaskólarog þang-
að förum við ekki,“ sagði Asgrím-
ur.
Nú eru nokkuð stífar reglur í
gildi fyrir heimavistarbúa og m.a.
er krafist góðrar mætingar í skóla
og námsárangurs. Haldið þið að
erfitt verði að halda reglur vistar-
innar?
„Nei við getum ekki séð nein
vandkvæði á að halda reglur vist-
arinnar," sögðu þeir og voru
alveg sammála um nauðsyn
þeirra reglna sem settar hefðu
verið og að lokum sögðu þeir að
Sparireikningar
meó 6 mán.
uppsögn
sérstaklega vel hefði tekist til með
byggingu þessarar heimavistar.
Frá
ritstjórn
Vegna þeirrar óvissu sem
ríkt hefur í prentiðnaði undan-
farið hefur verið ákveðið að
fresta um sinn að hrinda í
framkvæmd vikulegri útkomu
Bæjarblaðsins.
Ekki hefur enn verið ákveðið
endanlega hvenær af þessari
útkomu verður, en ritstjórn vill
ekki flana að neinu í þeim mál-
um og bíða því allar yfirlýsing-
arsínstíma.
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í
framkvæmdir við viðbyggingu Brekku-
bæjarskóla.
Verkið tekur til allra verkþátta þar til fokheld-
isstigi er náð, með frágengnum þökum,
þakbrúnum og gleri í gluggum, ásamt múr-
húðun að innan. Byggingin er tvílift 786
ferm., 4781 rúmm. Grunnur hefur þegar
verið reistur.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 25. sept-
ember kl. 11,00.
Útboðsagögn liggja frammi á Tæknideild
Akraneskaupstaðar, Kirkjubraut 28, Akra-
nesi og fást þar afhent gegn 1000 kr. skila-
tryggingu.
Tæknideild Akraneskaupstaðar.
avoxtun
Sámvínnubankinn