Alþýðublaðið - 23.12.1919, Blaðsíða 1
GeiiÖ út aí Alþýðuflokknum.
1919
Þriðjudaginn 23. deseœber
48. tölubl.
Sullnál jslanðsbanka.
Landsstjórnin hefir nú innsigiað
gull íslandsbanka og reyndist það
rúm 700 þúsund krónur og er
í>að sáralítil trygging fyrir á ann-
uu tug miljóna króna, sem bank-
inn hefir 1 seðlum. Nú er í reikn-
ingum bankans sagt að hann hafi
öægt gull til þess, að tryggja alla
seðlana. En sterkar líkur hafa
verið færðar fyrir því, að bankinn
fiafi ekkert gull erlendis. Og þó
svo væri, þá er það að^athuga,
að gull í Danmörku er sama sem
ekkert gull, eða ekki betra en
fiver önnur inneign í banka, því
að gull má alls ekki flytja burt
úr Danmörku, ekki einu sinni
til íslands.
Vonandi lætur landsstjórnin ekki
hjá líða að láta rannsaka þetta
mál frá rótum. Og vafalaust skip-
ar hún nefnd manna, sem hafa
bæði hug og dug til þess að ganga
hreint frá öllu þessu máli; hún
getur á engan hátt gengið fram
hjá því þegjandi.
Mötmæli námamaima.
Khöfn 19. des._
^Franskir Jnámamenn hafa sam-
l>ykt það ,-á íundi, að gera alls-
herjar verkfall, ef franska stjórnin
' insann.M'r - ■ TOHCJWiuMi»t.l'rrj*i wii—ii n u iiw>
kalli "ekki heim aftur þýzka náma-
menn, sem reknir hafa verið |, á
brott.
Pranska stjórnin afsakar brott-
rekstur Þjóðverja frá Strassbarg
meðjiúsnæðiseklu.
___Setuliðið^í borginni hefir fengið
skipun':um, að vera við^öllu búið.
cTEyju Bœfiurnar
eru nú komnar í bókaverzlanirnar.
í aísilki, gylt í sniðum.
Sjólférnir
SSngvar förumannsins sömuleiðis.
Svartar fjaörir í þrennskonar skrautlegu bandi.
fóstbræður í tvennskonar skrautlegu bandi.
» f
ÆóRaverzí. cJlrsœls cHrnasonar.
Hi daginn 09 veginn.
Jólamessur. Í dómkirkjunni:
Aðfangadagskvöld: kl. 6, síra Jó-
hann Þorkelsson. — (Kl. 61/* al-
menn guðsþjónusta í húsi K. F.
U. M., síra Fr. Friðriksson).
Jóladag: kl. 11, síra Bjarni Jóns-
son; kl. 2, Biskupinn (dönsk
messa); kl. 5 síra Jóh. Þorkelsson.
2. jóladag: kl. 11 síra Jóh. Þor-
kelsson; kl. 5 síra Bjarni Jónsson.
í frikirkjunni: Aðfangadags-
kvöld: í Rvík, kl. 6 síÖd, síra
Ólafur Ólafsson. — í Hafnarf., kl.
9 síðd., síra Ólafur Ólafsson.
Jóladag: í Rvík, kl. 12 á hád.,
síra Ól. Ól. — Kl. 5 síðd. síra
Haraldur Níelsson.
2. jóladag: í Rvík, kl. 2 síðd.,
skírnarguðsþjónusta, síra Ólafur
Ólafsson.
Jólapóstur. Póstmeistari biður
menn að skila jólapósti sínum í
dag (Þorláksmessudag) og skrifa á
hornið vinstra megin að ofan:
„aðfangadagskvöld" og verða þau
þá borin út á aðfangadagskvöld.
Póstkassarnir verða tæmdir kl. 10
f. h. á aðfangadag, þau bréf, sem
eftir þann tíma verða látin í póst,
verða ekki borin út fyr en á jóla-
dag.
Svartar Qaðrir heitir hin ný~
útkomna ljóðabók Davíðs frá Fagra-
skógi. Hún fæst nú hjá bóksölum
og mun vafalaust verða mörgum
kærkomin jólagjöf.
Lagarfoss kom í gær úr hring-
ferð kringum land. Frá Húsavik
hafði hann hrept hið versta Yeður,
en þó ekkert laskast. Margir far-
þegar voru með skipinu til Yest-
mannaeyja; voru að fara til róðra;
hingað komu og nokkrir með
skipinu.
Opið til kl. 12. í dag verða
sölubúðir opnar til kl. 12 í kvöld.
Ouðm. Oamalíelsson bóksali,
sem varð snögglega mjög veikur
um daginn, svo sem sagt var frá.
hér í blaðinu, er nú aftur á bata-
vegi. Hann liggur á Landakots-
spítala.