Fréttablaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags
Halldór
Stóra málið
er forgangs-
röðun
fjármuna og
hagkvæm-
asta nýting
þeirra.
Við eigum
rétt til
þátttöku, svo
sem sérstaða
krefst, í
samfélagi
Evrópu-
þjóða.
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lök
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Gildi sagnaritunar Íslendinga fyrir menningar-heiminn í löndum austan hafs og vestan varð mér æ ljósara í ævistarfi mínu í utanríkis-
þjónustunni. Nærtækastur er Noregur. Án Snorra
væri engin heildarmynd til af nokkurra alda tímabili
norskrar sögu. Sagan af víkingaöldinni er ávallt
til reiðu ef Íslendingar kunna með þá auðlegð að
fara og flytja öðrum þjóðum. Íslandskynningin í
Bandaríkjunum og Kanada í tilefni 1000 ára afmælis
landafundar Leifs Eiríkssonar var hin mesta sigurför
tengd siglingu víkingaskipsins Íslendings um hafnir
Nýfundnalands, Nova Scotia og austurstrandar
Bandaríkjanna til New York. Var athygli allra fjöl-
miðla hvarvetna miklu meiri en dæmi eru um slíka
viðburði á Íslands vegum.
Háskólasamfélög í Evrópu og Ameríku hafa lengi
haft í sínu liði sérfræðinga á sviði íslenskra fræða.
Við marga úr þeim hópi mikilla Íslandsvina hafði
ég í Frakklandi, Bretlandi, Noregi og Bandaríkj-
unum afar gagnleg og ánægjuleg samskipti og ber
að þakka. Eftir þá og forvera þeirra liggur ótrúlegur
forði ritverka og þýðinga úr íslenskum fræðum, sem
komið hafa samfara kennslustörfum og einnig ná til
nemenda frá Asíulöndum
Það verður að telja fráleitt, að á öld rappsins
hættum við að rækja hlutverk okkar sem Íslendinga
við varðveislu tungunnar og þeirra fjársjóða sem
hún geymir. Eitthvað slíkt hefur verið fyrir hendi
mína lífstíð: dönskuslettur áður, enskan og Holly-
wood-bylgjan með stríðinu og lengi á eftir eða þá
fyrirferð erlendra sjónvarpsstöðva síðan. En íslensk
fjölmiðlun dafnar og við eigum öflugt menntakerfi.
Við risum upp úr Hruninu með fullgerða Hörpu til
eflingar menningu þjóðfélagsins.
Við eigum rétt til þátttöku, svo sem sérstaða
krefst, í samfélagi Evrópuþjóða. Sá ótvíræði réttur
er reistur á menningu þjóðarinnar, sem er hinn
norðlægi burðarás í grunni Evrópu. Hann sköpuðu
Íslendingar og varðveittu til eignar og útbreiðslu.
Dagrenning sögu hins norræna kynstofns er skráð í
Reykholti.
Fyrr og síðar
Einar
Benediktsson
fyrrverandi
sendiherra
Heilbrigðisþjónusta varðar það sem mestu skiptir, hamingju og lífsgæði fólks. Flest erum við sammála um að nýta sameigin-lega sjóði til að tryggja örugga og hag-kvæma heilbrigðisþjónustu aðgengilega
öllum landsmönnum.
En þetta kostar sitt. Nýir möguleikar til greiningar
og meðferðar sjúkdóma kalla á æ meiri kostnað. Næstu
áratugi aukast áskoranirnar enn með meiri öldrun
þjóðarinnar og lægri fæðingartíðni.
Þar sem fjármagn er af skornum skammti verður
stóra málið forgangsröðun fjármuna og hagkvæmasta
nýting þeirra.
Sú heilbrigðisstefna til ársins 2030 sem Alþingi sam-
þykkti nú í sumar fjallar um skipulag, verkaskiptingu og
ábyrgð innan heilbrigðiskerfisins í þágu betri þjónustu
við sjúklinga. Alvarlegar athugasemdir voru gerðar við
þá ofurtrú ráðherrans að ríkisvaldið eitt eigi að sinna
heilbrigðismálum. Gagnrýnt var að lítið samráð væri
haft við hryggjarstykkið í íslenskri heilbrigðisþjónustu,
það er alla þá sem standa utan ríkisrekinna stofnana.
Kröfunni um fyrsta flokks þjónustu við sjúklinga
með hagkvæmni að leiðarljósi verður best svarað með
því að hvetja til samkeppni í heilbrigðisþjónustu. Þann-
ig nýtast fjármunir skattgreiðenda best. Þróa þarf áfram
sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á vegum annarra en hins
opinbera með greiðsluþátttöku ríkisvaldsins á sömu
forsendum og þjónusta hins opinbera. Þannig kaupi
ríkið fyrir fram skilgreinda þjónustu en nýti samkeppni
og fjölbreytt rekstrarform til að ná fram hagræðingu,
aukinni hagkvæmni og gæðum.
Heilbrigðisráðherra ritaði nýlega grein um forgangs-
röðun í heilbrigðiskerfinu. Þar sagði hún kröfur um
forgangsröðun aukast og mikilvægt sé að byggt sé á
skýrum viðmiðum og siðferðilegum gildum sem sátt
ríki um. Undir þetta skal tekið. Þessi forgangsröðun er
eitt af erfiðari viðfangsefnum stjórnmála komandi ára.
Það var því eftir því tekið þegar Pálmi V. Jónsson,
yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum, ritaði
nýlega grein þar sem hann rifjar upp fyrri stefnumörk-
un og litlar efndir. Dæmi þar um er skýrsla um forgangs-
röðun í heilbrigðisþjónustu frá árinu 1998 sem unnin
var af þingmönnum allra flokka, þverfaglegum hópi
heilbrigðisstarfsmanna og siðfræðingum frá Háskóla
Íslands. Eftir samþykkt Alþingis hefur ríkt grafarþögn.
Sama gildir um ýmis fyrri verk, svo sem heilbrigðis-
áætlun til ársins 2010 og 2020, ásamt stefnumótun í
málefnum aldraðra. Stefnum er ekki fylgt. „Hefur einu
gilt hvort áraði vel eða illa í þjóðarbúskapnum. Nú hefur
verið birt heilbrigðisstefna til ársins 2030. Höfum við
tryggingu fyrir því að þeirri heilbrigðisstefnu eða nýrri
stefnumótun um forgangsröðun verði fylgt, fremur en
fyrr?“ spyr Pálmi.
Prófessorinn hvetur til þess að opinber stjórnsýsla,
sem hafi vaxið fiskur um hrygg, skoði árangur fyrri
stefnumótunarvinnu á sviði heilbrigðisþjónustu. Hvað
hafi gengið eftir og hvað ekki og koma með tillögur með
áherslu á ábyrga eftirfylgd. – Er það ekki skynsamlegt
áður en lengra er haldið?
Forgangsröðun
Horft til Guðna
Miðflokksmaðurinn Ólafur
Ísleifsson vill að Guðni Th.
Jóhannesson forseti lýðveldisins
komi andstæðingum þriðja
orkupakkans til hjálpar og vísi
málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Segir Ólafur engu máli skipta
þótt ekki sé um lagafrumvarp að
ræða. Hér sé ekki nein venjuleg
þingsályktunartillaga á ferðinni.
Ólafur virðist því hafa gefið upp
alla von um að meirihluta þing-
heims hafi snúist hugur í málinu
í sumarmollunni og gengur út
frá samþykkt málsins. Það liggur
fyrir að stór hluti þjóðarinnar
er mótfallinn samþykkt þriðja
orkupakkans. Þar á meðal eru
ýmsir andstæðingar afar heitir
í trúnni og líklegir til alls. Því er
ekki ólíklegt að forsetinn verði
beittur nokkrum þrýstingi til
þess að þjóðin fá aðkomu að
málinu.
Völundarhús
Guðni hefur hingað til setið á
friðarstóli og nýtur gríðarlegra
vinsælda. Þannig mældist hann
með 83 prósent traust í könnun í
vor á meðan 18 prósent sögðust
treysta Alþingi. Það verður
fróðlegt að sjá hvernig spilast úr
þessu. Hvort Guðni þurfi í fyrsta
sinn að taka óvinsæla ákvörðun
og eignast um leið óvinahóp. Sem
betur fer er forsetinn nokkuð
vel að sér í fræðunum og hefur
skrifað heila bók um völundar-
hús valdsins á Bessastöðum.
sighvatur@frettabladid.is
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
9
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
D
-0
6
2
C
2
3
7
D
-0
4
F
0
2
3
7
D
-0
3
B
4
2
3
7
D
-0
2
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
8
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K