Víkurfréttir - 16.05.2019, Qupperneq 1
Krossmóa 4 | Reykjanesbæ
Opnunartími
mán.–fös. frá 9–20
lau.–sun. frá 11–18
SUÐUR MEÐ SJÓ
Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA
SUNNUDAGINN 19. MAÍ KL. 20:30
SUÐUR MEÐ SJÓ
Ungt fólk á Suðurnesjum er í aðalhlutverki í Suður með
sjó í þessari viku. Dagný Halla Ágústsdóttir, Karín Óla
Eiríksdóttir og Júlíus Viggó Ólafsson eru gestir Sólborgar
Guðbrandsdóttur á sunnudagskvöld kl. 20:30.
Suður með sjó á sunnudagskvöld á Hringbaut.
Xtra Flögur
300 gr - Salt,
BBQ eða Sour
Cream & Onion
239KR/PK
ÁÐUR: 2.99 KR/PK
Kjötsel
nautaborgarar
4x90 gr m/brauði
699KR/PK
ÁÐUR: 998 KR/PK
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 16. - 19. maí
-30%
-20%
CHIP & DIP!
SANTA MARIA VÖRUR Á 20% AFSLÆTTI!
STÓRU
POKARNIR
-20%
Allt fyrir Eurovision partýið!
Vínbúð í
Suðurnesjabæ
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur
samþykkt erindi frá Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins, ÁTVR, þar
sem fyrirtækið óskar eftir leyfi til
reksturs áfengisverslunar í Suður-
nesjabæ.
Bæjarráð tók erindið fyrir á dögunum
og samþykkti að leggja til við bæjar-
stjórn að samþykkja erindið. Bæjar-
stjórn samþykkti svo samhljóða á
fundi sínum í síðustu viku að veita
ÁTVR leyfi til að reka áfengisverslun
í Suðurnesjabæ.
Almannavarnir
skoða afhendingar-
öryggi raforku
Öryggi dreifikerfis raforku á
Suðurnesjum verður ekki tryggt
fyrr en tvær flutningslínur fyrir
raforku til Suðurnesja verða
komnar upp. Þetta kom fram
á síðasta fundi Almannavarna
Suðurnesja þar sem afhend-
ingaröryggi raforku á Suður-
nesjum var til umfjöllunar.
Fulltrúar HS Veitna kynntu stöðu
afhendingaröryggis rafmagns á
Suðurnesjum. Þeir segja öryggi
dreifikerfisins verði ekki tryggt
fyrr en tvær flutningslínur
rafmagns verði komnar upp.
Áhyggjuefnið snýr að Suðurnes-
jalínu 1, því ef hún dettur út, horfi
til vandamála.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í
Vogum, fór yfir stöðu undirbún-
ingsvinnu á fundi almannavarna
Landsnets varðandi fyrirhugaða
Suðurnesjalínu 2. Stefnt er að því
að fá fund Almannavarnanefndar-
innar og fulltrúa frá HS Orku.
Gert er ráð fyrir
sundlaug við nýjan
Stapaskóla sem mun
nýtast til sundkennslu
og sundæfinga fyrir
sundráð ÍRB og fyrir
almenning. Þá verður vaðlaug og
heitir pottar.
Annar áfangi Stapaskóla var kynntur
á fundi íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjanesbæjar þar
sem Helgi Arnarson,
sviðsstjóri fræðslusviðs,
kynnti teikningar af
öðrum áfanga skólans.
Þar kom einnig fram að
íþróttahúsið mun nýtast til íþrótta-
kennslu við Stapaskóla og mun verða
gott æfingahús fyrir körfuknattleiks-
deild UMFN.
Sundlaug, vaðlaug og heitir
pottar við Stapaskóla
Frábærir námsmenn en falla á mætingu
– Fulltrúar unga fólksins á Suðurnesjum gagnrýna mætingakerfi framhaldsskólanna
Knattspyrnuvertíðin er hafin fyrir alvöru á Suðurnesjum. Keflavík og Njarðvík eiga bæði lið í
Inkasso-deild karla. Þau hafa bæði leikið tvær umferðir. Keflavík hefur unnið báða leiki sína en
Njarðvíkingar hafa unnið einn leik og tapað öðrum, gegn Þór frá Akureyri. Myndin er úr þeirri
viðureign í Njarðvík um síðustu helgi. Þarna má sjá Njarðvíkinginn Brynjar Frey Garðarsson í
dauðafæri en knötturinn vildi ekki rata í markið. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
„Námið kemur ekki alltaf til móts við mann en ég held það einskorðist ekkert við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Ég held það sé bara nám á Íslandi yfir höfuð. Það þarf að komast í takt við samtímann,“
segir Júlíus Viggó Ólafsson, nýr formaður nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en hann,
ásamt þeim Dagnýju Höllu Ágústsdóttur og Karín Ólu Eiriksdóttur, er gestur næsta þáttar af Suður
með sjó sem sýndur verður á sunnudagskvöld á Hringbraut kl. 20:30.
Þau Dagný, Júlíus og Karín eiga það sameiginlegt að
vera með sterkar skoðanir á stjórnmálum og hafa
reynt að hafa áhrif á samfélagið með ýmsum hætti
þrátt fyrir ungan aldur. Í þættinum ræða þau meðal
annars skólakerfið á Íslandi og eru gagnrýnin á
mætingakerfi Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem
þau stunda nám. Það sé letjandi fyrir námsmenn
að mörgu leyti.
„Ég er mjög ánægð með skólann og líður vel þar en
árið er samt 2019 og mér finnst margar kennsluað-
ferðirnar úreltar. Ég er hins vegar rosalega ánægð að
sjá að margir áfangar eru orðnir lausir við lokapróf.
Það gengur vel að læra jafnt og þétt yfir önnina,“
segir Karín og hin taka undir það. Kennararnir séu
yndislegir og skólinn almennt mjög fínn.
„Mér finnst mætingakerfið í skólanum fáránlegt.
Maður er orðinn stressaður yfir því hversu oft
maður verður veikur á önninni,“ segir Dagný en
krakkarnir lýsa kerfinu á þá vegu að ef nemandi
er veikur tvo daga í röð fái hann einungis annan
daginn skráðan sem veikindi. Restin verði að fjar-
vistum. „Þú þarft að vera fjarverandi í þrjá daga
til að fá þennan helming til baka sem gefur þér í
rauninni ástæðu fyrir því, ef þú ert veikur í tvo
daga, að vera heima þriðja daginn líka. Nú þekki
ég fólk sem náði öllum prófum, kláraði öll verkefni
en það var fellt í náminu vegna of margra fjarvista.
Þessu þarf að breyta,“ bætir Júlíus við.
„Það er val að fara í framhaldsskóla. Mér finnst
við klárlega eiga að fá meira svigrúm varðandi
mætingu. Það er á ábyrgð okkar að sinna náminu
og okkur ætti að vera treystandi til þess,“ segir
Karín Óla.
fimmtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2