Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.05.2019, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 16.05.2019, Blaðsíða 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM REYKJANESBÆR GRINDAVÍK VOGARGARÐUR 4° 40kg 14° 1250kg 12° 75kg12° 4kg SPÁÐ ER SENDINGUM UM ALLT REYKJANESFLUTNINGASPÁ DAGSINS SANDGERÐI -20° 150kg Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is // Marta Eiríksdóttir, sími 421 0002, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Hefurðu skoðað Reykjanesskagann? Jón Bjarnason: „Já ég hef farið út um allan Reykjanesskaga, það eru svo margir fallegir staðir. Mér finnst rosa gaman að skoða bergið út á Reykjanesvita og Gunnuhver.“ Oddný J.B. Mattadóttir: „Já ég er lærður leiðsögu­ maður og hef farið ásamt fjöl­ skyldunni og með hópa um svæðið. Mig langar að skoða margt betur. Að standa úti á Reykjanesvita og horfa út í Eld­ ey það er magnað. Jarðfræðin er heillandi og flekaskilin. Ströndin á Garðsskagavita og Melabergi, skógurinn á Háa­ bjalla, Seltjörn og margt fleira er gaman að sjá.“ Ólafur Örvar Ólafsson: „Já, ég hef keyrt fram og til baka um skagann. Svæðið í kringum Reykjanesvita er áhugavert svæði. Uppáhaldsstaðurinn minn er samt Blue­höllin eða Íþróttahúsið í Reykjanesbæ en þar ver ég mörgum stundum.“ Ragnheiður Skúladóttir: „Já í fyrrasumar ókum við frá Grindavík út að Reykjanesvita. Svo langt síðan ég hef farið þessa leið og það kom mér á óvart hvað þetta er merkilegt svæði. Gunnuhver, bjargbrúnin á Reykjanesvita og brimið var gaman að sjá.“ SPURNING VIKUNNAR á timarit.is Eldur kom upp í rusli við húsnæði Suðurflugs á Keflavíkurflugvelli á laugardag. Eldurinn logaði í rusla- keri og var byrjaður að læsa sig í klæðningu á húsnæðinu þegar slökkvilið kom á staðinn. Útkall barst Brunavörnum Suðurnesja kl. 13:10 á laugardag en fjölmennt slökkvilið frá Isavia var sent á staðinn og slökkti eldinn fljótt og örugglega. Auk Suðurflugs er Isavia með svo­ kallað Silfurhlið Keflavíkurflugvallar við húsið. Myndin var tekin þegar slökkvistarfi var að ljúka. VF-mynd: Hilmar Bragi Eldur í rusli læsti sig í klæðn­ ingu á húsnæði Suðurflugs Gróður brann á Miðnesheiði Gróður brann á Miðnesheiði milli Garðs og Sandgerðis á laugardagskvöldið. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja sendi mannskap á staðinn sem slökkti eldinn. Myndin var tekin með flygildi yfir brunastaðinn á háheiðinni. Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Reykjanesbæ, segist undrandi á ráðgjöfum Capacent vegna kynningar á hugsanlegri sameiningu Kölku og Sorpu. „Ég tel að bæjarstjórn þurfi að fá betri útskýringar hvað felst í þessari sameiningu. Við þurfum að fá skýrari og betri gögn varðandi málið. Ég er til dæmis alveg undrandi á ráðgjöfum Capacent, hvernig þeir héldu þessa kynningu, varðandi sameiningu Kölku og Sorpu. Hún var mjög sérstök og ekki nægilega vönduð að mínum dómi. Það hallaði verulega á okkur og þetta birtist mér þannig að hagsmunir Sorpu væru aðalmálið í þessu,“ segir Margrét í bókun á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Í bókuninni segist Margrét velta fyrir sér hver vilji búa í Reykjanesbæ sé það þar sem tvö stærstu kísilver í Evrópu eiga að rísa, einnig álver og síðan stærsta sorpbrennsla landsins. „Allavega ekki ég. Eins og allir vita þá er stóriðja mengandi og henni fylgir oft byggðarleg röskun. Ég spyr því meirihlutann að því hvort að það sé búið að gera heildstætt umhverfismat fyrir Helguvík ásamt mengunarmati miðað við að öll þessi starfsemi hefjist í Helguvík. Miðflokkurinn lagði áherslu í kosn­ ingarbaráttu sinni á íbúalýðræði og íbúakosningu varðandi mikilvæg og stór málefni. Ég tel svo vera að bæjar­ búar ættu að fá greinargóða kynningu á því hvað felst í sameiningu Kölku og Sorpu og síðan ætti að fara fram íbúakosning enda er hér um mikið hagsmunamál fyrir íbúa Reykjanes­ bæjar en eins og ég kom inn á áðan að öll stóriðja er mengandi,“ segir Margrét í bókun á fundinum og þar ítrekaði hún jafnframt fyrri bókun sína um sameiningu Kölku og Sorpu. Í þeirri bókun segir: „Bæjarfulltrúi Miðflokksins geldur varhug við því að Kalka eigi að taka við megninu af sorpi af höfuðborgar­ svæðinu. Bæði er það mikið umhverf­ isálag fyrir Reykjanesbæ og ekki síður umferðarálag á Reykjanesbrautina. Svona til glöggvunar þá fara í dag um 55.000 bílar á sólarhring í gegnum Hafnarfjörð. Á þeim hluta sem er einbreiður í Hafnarfjarðarbæ er um­ ferðin um 27.000 bílar á sólarhring. Vestur af Straumsvík aka um 19.000 bílar á sólarhring. Á meðan ástandið á Reykjanesbraut­ inni er ekki betra en raun ber vitni er varhugavert að auka álagið á braut­ ina enn frekar með sorpflutningum hingað suður eftir. Áður en lengra er haldið verða frekari upplýsingar að liggja fyrir s.s. þær hvort áætlað er að nýr brennsluofn eigi að vera staðsettur í Helguvík. Bæjarbúar eiga heimtingu á að vita hver áform meirihlutans eru í þessum efnum. Áætlað er að 10 manns verði í stjórn sameinaðs félags en einungis 5 að­ ilar verði í framkvæmdaráði. Verði af þessari sameiningu er það skýr krafa bæjarfulltrúa Miðflokksins að Reykjanesbær eigi fulltrúa í fram­ kvæmdaráðinu þar sem bærinn er fjórða stærsta sveitarfélagið sem að þessari sameiningu standa.“ Segir hagsmuni Sorpu tekna fram yfir Kölku – bæjarfulltrúi Miðflokksins vill ekki búa í bæ með tvö kísilver, álver og stærstu sorpbrennslu landsins Sækjast eftir auknu stöðugildi skólahjúkrunar­ fræðings – við Grunnskóla Grindavíkur Grunnskóli Grindavíkur er fjöl- mennasti grunnskóli á Suður- nesjum, með yfir 500 nemendur samkvæmt samantekt um skóla- hjúkrun á Suðurnesjum. Samkvæmt árangursviðmiðum landlæknis ætti að miða eitt stöðugildi heilbrigðis- starfsmanns við 500 til 700 nem- endur. Fræðslunefnd hefur falið fræðslu­ stjóra að vera í samstarfi við aðra fræðslustjóra á Suðurnesjum um við­ ræður við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um að samræma þjón­ ustu skólahjúkrunar við grunnskóla á svæðinu. Einnig þarf að sækjast eftir auknu stöðugildi skólahjúkrunar­ fræðings við Grunnskóla Grindavíkur, segir í fundargerð fræðslunefndar. Íbúafundur um skipulag hátíða í Suðurnesjabæ Áætlað er að íbúafundur um skipu- lag hátíða í Suðurnesjabæ verði haldinn í Vörðunni 21. maí kl. 20:00. Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hefur falið for- manni ráðsins að undirbúa fundinn. Umræða um fyrirkomulag Sand­ gerðisdaga fór einnig fram á fundi ráðsins á dögunum. Ráðið myndi vilja sjá fyrirkomulag Sandgerðisdaga verða með sama hætti og Sólseturs­ hátíðina í Garði þar sem félagasamtök tengd Suðurnesjabæ sjá um fram­ kvæmdina. 2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.