Víkurfréttir - 16.05.2019, Page 8
Hænur á vappi í gamla bænum
Hjónin Álfheiður Jónsdóttir og Ólafur Ásmundsson eru orðnir hænsnabændur. Þau höfðu
hugsað um það lengi að fá sér hænur í garðinn. Svo gerðist það að þau fréttu af þremur
íslenskum landnámshænum sem vantaði heimili og stukku á þær.
Það er mánuður síðan þau fengu
þessar hænur og hænsnahúsið heim
á hlað til sín en hænurnar heita Dag
björt, Nótt og Skvetta.
Víkurfréttir kíktu í heimsókn en hæn
urnar voru ekkert alveg til í að heilsa
útsendara blaðsins, sem varð að beita
smá brögðum og halda næstum niðri
í sér andanum til að komast nálægt
og ná góðum myndum af þeim.
Voru búin að spá í þetta lengi
„Já, þær eru mjög tortryggnar á
ókunnuga og það tók tíma að fá þær
til að treysta mér en það er hægt að
laða þær til sín með núðlum sem þeim
finnst gott að borða. Með núðlunum
tekst mér að fá þær aftur heim ef þær
eru einhvers staðar á vappi í hverf
inu. Það er nefnilega þannig að þær
fara yfirleitt beint heim til prestsins
þegar ég hleypi þeim út, í garðinn hjá
henni og vappa þar um dágóða stund.
Það er svona uppáhalds garðurinn
þeirra en þær skila sér alltaf heim í
kringum áttaleytið á kvöldin. Ég held
að þær séu að leita að guðlegri forsjá í
garðinum hjá séra Erlu,“ segir Ólafur
og hlær. Álfheiður hlær að þessum
ummælum eiginmannsins og segir:
„Við vorum búin að spá í þetta lengi
út frá umhverfisvernd, að fá okkur
hænur en þær borða alla mataraf
ganga frá okkur og svo fá þær einnig
lífrænt fóður. Við fáum sem sagt líf
ræn egg á heimili okkar núna. Það er
voða skemmtilegt og eggin eru mjög
bragðgóð. Við viljum leyfa hænunum
að vera frjálsar því þannig eru þær
hamingjusamari ímyndum við okkur.
Ég hef samt verið að kanna viðhorf
nágranna okkar hér í kring og athuga
hvort þeir séu pirraðir á þeim en hef
ekki enn fengið nein neikvæð við
brögð. Ein nágrannakona okkar finnst
þær bara krúttlegar þegar þær eru á
vappi hér í hverfinu okkar.“
„Já, við viljum leyfa þeim að upp
lifa frelsi því við teljum þær vera
ánægðari með hreyfingunni en ég
er samt kominn með hugmyndir um
að færa hænsnahúsið aftar í garðinn
hjá okkur og girða þær af í ágætlega
stóru hreyfirými. En á meðan fólkið
hér í kring er sátt og við höfum ekki
fengið kvartanir um að þær séu að
skemma eitthvað þá erum við róleg,“
segir Ólafur.
„Hænurnar eru alltaf að klóra í jarð
veginn og leita að ormum eða ein
hverjum ætilegum skordýrum en í
leiðinni eru þær að losa um arfa og
mosa í garðinum. Ég kalla þær garð
yrkjukonurnar mínar og finnst þær
bara krúttlegar,“ segir Álfheiður og
brosir.
Hafa hænurnar mismunandi per-
sónueinkenni?
„Nei það sjáum við ekkert sérstaklega
nema að við tökum eftir því að Skvetta
er greinilega leiðtoginn í hópnum.
Þær hinar elta hana þangað sem hún
fer. Ef ein verður villu vegar og tvær
skila sér heim á kvöldin þá verða hinar
mjög órólegar og róast ekki fyrr en
sú þriðja er komin aftur til þeirra.
Við fáum ekki að klappa þeim eða
koma of nálægt þeim en samt fáum
við heilmikið út úr því að hafa þær í
kringum okkur hér í garðinum okkar.
Bara það að sitja og fylgjast með þeim,
heyra purrið í þeim og sjá þær vappa
um er mjög róandi. Eldri barnabörnin
okkar hafa einnig mjög gaman af því
að fylgjast með þeim. Mér finnst þetta
rosalega vinalegt. Það er samt ekki
hægt að kyssa þær og kjassa,“ segir
húsfreyjan á bænum hlýlega.
Íslenskar landnámshænur
verpa passlega mikið
„Okkur finnst þetta mjög gefandi
og ekki mikil binding ef við viljum
skreppa í helgarfrí því þá má gefa
þeim nógan mat áður og vatn sem er
ekki síður mikilvægt en fóðrið. Hænur
passa yfirleitt sjálfar að borða það sem
þær þola og borða ekki allt, við erum
svona að þreifa okkur áfram í þessu.
Við vitum að þær þola ekki appelsínur
og sítrónur. Ef þær fá lauk þá kemur
laukbragð af eggjunum. Við vorum
á námskeiði um helgina þar sem við
fræddumst um íslenskar landnáms
hænur hjá samnefndu félagi. Jóhanna
Harðardóttir, Kjalnesingagoði hjá
Ásatrúarfélaginu, sú hin sama og er
blaðamaður og kennari, hélt þetta
námskeið en hún ræktar sjálf þessa
tegund af hænum og selur. Íslenskar
landnámshænur voru í útrýmingar
hættu fyrir nokkrum árum en nú
lítur út fyrir að búið sé að bjarga
þessum merkilega stofni. Þetta var
mjög fróðlegt námskeið sem kenndi
okkur einnig margt um hænsnahald í
þéttbýli. Hanar eru bannaðir í þéttbýli
en þeir geta verið hættulegir börnum,
þeir góla líka eldsnemma á morgnana
sem fólk kærir sig ekki um. Það eru
annars engar sérstakar reglur til um
hænsnahald í Reykjanesbæ og því
getur fólk haft hænur ef það vill, að
því að okkur er tjáð. Annars finnst
mér mávarnir mjög hávaðasamir og
kettir geta einnig valdið miklu ónæði
þegar þeir breima. Hænur eru mun
hljóðlátari og fer í raun lítið fyrir
þeim,“ segir Ólafur.
„Landnámshænur verpa ekki eins
mörgum eggjum og þær hvítu hefð
bundnu sem við þekkjum. Þær verpa
einu eggi á dag, við erum aðeins
búin að fá þrjú egg þrisvar sinnum
síðan þær komu til okkar
en það gerðist í dag þegar
von var á blaðamanni Víkur
frétta,“ segir Álfheiður og
brosir. Ólafur bætir við „en í
fyrsta sinn verptu þær þremur
eggjum á páskadag, sem okkur
fannst fyndið því þær sækja mikið
í garðinn hjá prestshjónunum. Séra
Erla sagði okkur frá því að hún hefði
séð þær á vappi fyrir utan kirkjuna
einn daginn. Hvað allt þetta táknar
vitum við samt ekki,“ segir Ólafur
leyndardómsfullur á svip.
Búskapur endurvakinn í
Þorvarðarhúsi
Í gömlu Keflavík var eitthvað
um að fólk væri með húsdýr við
heimili sín. Margir bæjarbúar af
eldri kynslóðinni muna sjálfsagt
eftir Helgu Geirs sem var með kýr
á túninu heima hjá sér og Dóru Hjöss
sem var með kindur í túnfætinum.
Hjónin Álfheiður og Ólafur búa í einu
elsta íbúðarhúsi Keflavíkur sem heitir
Þorvarðarhús, byggt árið 1884 og
er friðað.
„Langalangafi minn hét Þorvarður
Helgason og var beykir en hann
byggði þetta hús sem var að vísu
miklu minna þegar hann byggði það.
Húsið var byggt á þeim tíma sem
skipið Jamestown strandaði út við
Hafnir og tókst að bjarga farminum.
Húsið er byggt úr hluta af þessum við
arfarmi. Þetta var rauð fura sem verið
var að sigla með frá Ameríku til Eng
lands en viðurinn var sérlega þykkur
og átti að nota sem undirlag fyrir
járnbrautateina á Englandi. Viðurinn
var 3 tommu þykkir plankar og 8 til 11
tommu breiðir. Það eru nokkur gömul
hús hér á Suðurnesjum sem byggð
eru úr þessum sama viðarfarmi. Ég
ímynda mér að langalangafi minn og
fleiri sem bjuggu hér í upphafi hafi
verið með einhver húsdýr á túninu
hjá sér, kindur, kýr og hænur því á
þeim tíma ríkti sjálfsþurftarbúskapur
víða. Hér fyrir ofan túnið hjá honum
var saltfiskbreiða veit ég og því ekki
ólíklegt að langalangafi hafi skaffað
sér og fjölskyldu sinni, eigin mjólk,
kjöti og eggjum til heimilisins. Í dag
eru þá aftur komnar hænur á túnið
eins og var fyrir hundrað árum,“ segir
Ólafur kíminn.
VIÐTAL Marta Eiríksdóttirmarta@vf.is
Við vitum að þær þola ekki
appelsínur og sítrónur.
Ef þær fá lauk þá kemur
laukbragð af eggjunum ...
Hænurnar heita Nótt, Dagbjört og Skvetta.
Hjónin Ólafur Ásmundsson og Álfheiður Jónsdóttir
eru ánægð með hænurnar þrjár.
Hænsnafjaðrir flögra nú
í gamla bænum.
Þorvarðarhús er friðað en það var byggt
árið 1884 af langalangafa Ólafs.
8 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.