Víkurfréttir - 16.05.2019, Page 12
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
SMÁAUGLÝSINGAR
Óskast
Óskum eftir tilboði í sprungu
viðgerðir fyrir lítið fjölbýlishús í
Keflavík.
Upplýsingar í síma 8631790 (Örlygur)
og eftir kl. 15 í síma 6974577 (Ásgeir).
Áskilum okkur rétt að hafna öllum
tilboðum.
Auglýsi eftir lítilli íbúð í um fjóra
mánuði á Suðurnesjum
Eitt herbergi og stofa
Hafið samband í síma 6243485
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Elskulegur unnusti minn, bróðir okkar og frændi,
GÍSLI ÞÓR ÞÓRARINSSON
Lilleberg veien 13,
Mehamn, Noregi
lést laugardaginn 27. apríl.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 17. maí kl. 13.
Aðstandendur
Okkar ástkæra
HREFNA ÓLAFSDÓTTIR
Kirkjuvegi 1, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 3. maí.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigrún Birna Ólafsdóttir
Þórir Jóhann Ólafsson María Sjöfn Helgadóttir
Borgar Unnbjörn Ólafsson Þórdís Herbertsdóttir
Elín Inga Ólafsdóttir Agnar Harðarson
Björn Guðbrands Ólafsson Guðríður Gunnarsdóttir
og systkini hinnar látnu
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURBJÖRN REYNIR SIGURBJÖRNSSON
Tjarnabraut 8, Njarðvík
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, mánudaginn 29. apríl.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju, föstudaginn 17. maí kl. 13.
Eiríkur Stefán Sigurbjörnsson
Jóhanna Pálína Sigurbjörnsdóttir Wayne Carter Wheeley
Valdís Sigríður Sigurbjörnsdóttir Ægir Frímannsson
Símon Grétar Sigurbjörnsson
og frændsystkini.
Heilsuleikskólinn Skógarás á Ásbrú
auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf
Heilsuleikskólinn Skógarás er sjálfstætt starfandi og
staðsettur í Reykjanesbæ. Skólinn er fjögurra deilda
með um 80 börn, 23 starfsmenn og starfar eftir Heilsu-
stefnu Unnar Stefánsdóttur og viðmiðum Heilsueflandi
leikskóla. Í stefnu skólans er lögð rík áhersla á jákvæða
og umhyggjusama skólamenningu og öflugt lærdóms-
samfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Unnið er með
heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti, læsi og
stærðfræði, frjálsan leik, umhverfismennt, snemmtæka
íhlutun í mál- og hreyfiþroska, með áherslu á umhyggju-
samt námsumhverfi.
Því leitum við að samstarfsfólki sem:
• Er tilbúið að tileinka sér stefnu og starfsaðferðir
skólans
• Er samvinnufúst og hefur góða hæfni í sam-
skiptum
• Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun
• Er stundvíst, samviskusamt, jákvætt, sýnir
frumkvæði og hefur ánægju af því að vinna með
ungum börnum
Menntunar og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Uppeldismenntaður starfsmaður
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með
ungum börnum er æskileg
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina
að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun.
Umsóknarfrestur er til 31 maí 2019.
Nánari upplýsingar veita Þóra Sigrún Hjaltadóttir skólastjóri og Katrín Lilja Hraunfjörð aðstoðarskólastjóri
Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://skolar.is/Starf/
Heilsuleikskólar Skóla ehf. eru:
Hamravellir í Hafnarfirði, Skógarás á Ásbrú í Reykjanesbæ,
Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík.
Íbúakosningin og kolefnisfótsporið
Væntanlega kemur að því að íbúar Reykjanesbæjar fái að kjósa um afdrif kísilvers Arion
banka í Helguvík eða réttara sagt kísilveranna í Helguvík. Framkvæmdin krefst talsverðs
undirbúnings þó málefnið sé einfalt en nauðsynlegt verður að hafa orðalag á kosninga-
seðlinum þannig að ekki verði hægt að hártoga og afvegaleiða niðurstöðu kosningarinnar.
Frétt Víkurfrétta 24. apríl síðastliðinn
um að Skipulagsstofnun hafi nú undir
höndum nýja tillögu að matsáætlun
hræðir, því svo sýnist sem keyra eigi
málið áfram með sem minnstum
upplýsingum til íbúa, eða frekari
skýringum um væntanlega mengun
eða heilsufars- og umhverfishættu
frá verksmiðjunni. Skipulagsstofnun
gerir athugasemdir við ýmis atriði,
þar með talið vinnu við kynningu og
samráð með íbúum. Málið virðist ekki
í góðum farvegi fyrir íbúa Reykjanes-
bæjar, sem sakna þess að heyra ekkert
af íbúakosningunni, sem lofað hefur
verið af meirihluta bæjarfulltrúa og
er eðlilegt að væri ein af forsendum
Skipulagsstofnunar fyrir möguleika
þess að leyfa eða leyfa ekki gang-
setningu verksmiðjunnar aftur.
Forsætisráðherra vill fá svör við
því hvert kolefnisfótspor stórskipa-
hafnar í Finnafirði verður. Augu og
eyru stjórnvalda í svona tilfellum eru
væntanlega í verkahring Skipulags-
stofnunar og með aðkomu Umhverfis-
stofnunar. Það sama ætti að eiga við
um Helguvík. Ekki er minnst á slíkt
í fyrrnefndri frétt Víkurfrétta vegna
kísilvinnslunar í Helguvík. Líklegt er
að þar verði ekki um kolefnisfótspor
að ræða heldur kolefnishaug, ef allt
fer af stað eins og fyrirhugað er. Það
gefur auga leið að árleg brennsla á yfir
300 þúsund tonnum af kolum (sam-
anl. Stakksberg og Thorsil) er galin.
Kísilverin munu spúa út í andrými
næsta nágrennis yfir 2000 tonnum af
kolefnum (CO2) á sólarhring (1tonn
kol=2,8 tonn CO2).
Setjum þetta í smá fáránlegt samhengi
við mannlífið í Reykjanesbæ, svona til
að átta okkur betur á umfanginu og
áhrifunum. Samkvæmt upplýsingum
frá umhverfisráðuneytinu er kolefnis-
losun á hvern Íslending 14 tonn af
koltvísýringi á ári. Það reiknast til
að vera rúmlega 38 kíló á dag. Verk-
smiðjurnar tvær munu því bæta við
kolefnissporin, sem samsvarar vel
yfir 52 þúsund manna íbúaaukningu
í bæjarfélaginu. Ef við síðan berum
þetta saman við bílana okkar þá má
gera ráð fyrir, samkvæmt reiknivél hjá
orkusetur.is að þetta jafngildi 150.000
ökutækjum (bensín og dísilbílar), í
viðbót við þá sem nú eru eða tæplega
8 bíla aukningu á hvert mannsbarn
í Reykjanesbæ. Hvern og einn bíl
þyrfti að keyra 100 km alla daga ársins
(133gr. CO2 á km), til að ná sama kol-
efnisspori og kísilverin munu spúa út
á hverjum sólarhring. Er mögulegt
að Skipulagsstofnun eða Umhverfis-
stofnun eða forsætisráðherra, sem er
umhugað um væntanlegt kolefnis-
fótspor í Finnafirði, geti samþykkt
slíkan ósóma? Ég held ekki ef um
150.000 bíla viðbót í bæjarfélagið væri
að ræða, sem brenndu jarðefnaelds-
neyti. Gildir annað um kísilver, sem
einnig brennir jarðefnaeldsneyti og
einu því eitraðasta sem til er?
Að lokum til að auðvelda stjórnendum
bæjarins að undirbúa íbúakosning-
una, þá er hér tillaga að orðalagi á
kosningaseðlinum.
Viltu láta ræsa kísilverksmiðju Stakksbergs í Helguvík á ný. JÁ ( ) NEI ( )
Þeir sem vilja mega klippa eða afrita
orðalagið, krossa við eftir skoðun
sinni og senda síðan til bæjarstjórans,
til að leggja áherslu á að íbúakosn-
ingin fari fram.
Reykjanesbæ 1. maí 2019.
Tómas Láruson.
12 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.