Víkurfréttir - 16.05.2019, Qupperneq 14
GOLFSKÓLI GS 2019
FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 6 TIL 13 ÁRA
NÝLIÐAKENNSLA
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á GS.IS
NÝLIÐAGJALD Í GS ER 43.000 KR.
BÖRN AÐ FJÓRTÁN ÁRA ALDRI GREIÐA EKKERT
UNGLINGAR (15–18 ÁRA) GREIÐA 13.000 KR.
Komdu út að leika!
Leiran er ei af betri golfvöum landsins
18 holu golfvöur á besta stað
Það er gaman í golfi!
SIGURPÁLL GEIR SVEINSSON
PGA-GOLFKENNARI OG ÞREFALDUR ÍSLANDSMEISTARI
ER ÍÞRÓTTASTJÓRI OG GOLFKENNARI GS
Brynjar Vilmundarson er einn af stofnendum Golfklúbbs
Suðurnesja (GS) en klúbburinn var stofnaður árið 1964.
„Já, ég segi þetta við hann Sidda ef hann er eitthvað að
ybba sig að ég eigi þennan golfvöll. Ég segi að þetta sé
tímaeyðsla núna þegar maður er orðinn gamalmenni því
þá er gott að koma hingað út á völl og eyða tímanum hér.
Ég tók pásu árið 1978 en byrjaði aftur að spila 2009.“
Sigurður „Siddi“ Friðriksson: „Já þetta er
skemmtileg íþrótt en fyrst fannst
mér þetta ekki vera íþrótt. Það er nú
smá saga á bak við það að ég byrjaði
að spila golf en nágranni minn á Nón-
vörðunni, hann Ástþór Valgeirsson,
var búinn að vera í golfklúbbnum og
ég hló að honum. Ég hafði æft sund í
mörg ár sem keppnisíþrótt og fannst
golf nú ekki vera íþrótt í samanburði
við það. Svo lét ég tilleiðast og fór út
á golfvöll og hef ekki hætt síðan en
þetta var árið 1982. Það er stór plús
að spila golf þegar maður eldist.“
Kristinn Þór Guðmundsson „Kiddi í Dropanum“:
„Ég er nú búinn að vera byrjandi í
fimmtíu ár. Ég hef ekki stundað golf af
alvöru fyrr en núna með þessum hópi
en ég sé orðið illa boltann
en Rúnar sér hann fyrir
mig. Ég slæ bara.“
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson
„Rúnar Hallgríms“: „Ja, ég er
nú bara kaddí hjá honum
Kidda en við keyrum í
sama bílnum. Ég get kennt
konu minni um það að ég
fór að spila golf en ein jólin
gaf hún mér þrjár kylfur
í jólagjöf blessunin. Ég
var um fimmtugt en fór ekki að spila
reglulega fyrr en eftir sextugt þegar
ég hætti á sjónum.“
Brynjar: „Kiddi slær vel en púttar eins og
hálfviti, Rúnar er hins vegar afburða
púttari.“ Þeir hlæja allir að þessari at-
hugasemd og velta því fyrir sér hvort
það megi setja svona ummæli í blaðið.
Siddi: „Það er góð hreyfing sem við
fáum hér alla daga en á veturna
mætum við í Reykjaneshöllina og
göngum þar saman og hittum fleiri
Keflvíkinga sem eru að hreyfa sig.
Við erum að byggja upp þol fyrir
golfið. Golfbílarnir auðvelda þetta
fyrir okkur í Leirunni.“
Brynjar: „Ég fer ekki í Reykjaneshöll-
ina á veturna því þá spila ég bridds
á Nesvöllum.“
Brynjar var í hópi golfáhugamanna
sem byrjuðu snemma að eiga við hvíta
boltann á Hólmsvelli í Leiru.
„Grænásmenn komu þessu af stað,
menn í lögreglunni og flugmálastjórn.
Þorgeir Þorsteins, þáverandi lögreglu-
stjóri og Kiddi Pé, Kristján Pétursson,
tollari, voru í þessum hópi og fleiri
góðir menn. Ásgrímur Ragnarsson
var fyrsti formaðurinn. Þá voru þeir
að smala mönnum saman og fá þá til
þess að byrja að spila golf. Þeim sé
þökk fyrir þetta framtak. Unga fólkið
í dag heldur sumt að þessi golfvöllur
hafi dottið niður af himni en svo er
ekki, það liggur mikil vinna í vellinum
í öll þessi ár. Það er heilmikil saga á
bak við þetta framtak. Við byrjuðum
fyrst með sex holu völl og svo urðu
þær níu en í dag er völlurinn átján
holu völlur.“
Kiddi: „Brynjar er langbestur af okkur
í golfi en við Rúnar erum frægastir.
Þetta er bara svo gaman og hópurinn
góður. Þeir eru nýbyrjaðir að leyfa
mér að vera með sér.“
Siddi: „Já, við erum góðir félagar og
eyðum ákveðnum tíma saman á
hverjum degi, hittumst hér á milli tíu
og hálfellefu á morgnana og spilum
átján holur. Maður þarf að hreyfa
sig, það er svo gott og heldur manni
frískum. Gaman að því hversu margir
byrja að æfa sig á gamla æfingasvæð-
inu, Jóelnum, og koma svo hingað og
spila völlinn en þannig byrjaði ég.“
Rúnar: „Við erum ljónheppnir að hafa
heilsu til að vera hérna og spila. Mér
finnst golf vera góð afþreying og góð
útivera. Þetta er ljómandi gott og aldr-
ei kalt. Svo fáum við okkur kaffi hér
í golfskálanum á eftir og spjöllum
saman áður en við förum heim.“
Brynjar: „Kaffi og með því til þess að
styrkja veitingasöluna í golfskálanum.
Það þarf að kaupa til þess að þjón-
ustan lifi. Já, það er mikil ánægja og
gleði hjá okkur og ég segi aldrei ljótt
orð úti á golfvelli enda er ég vaxinn
upp úr því.“ Þeir hlæja allir sem einn
að þessum ummælum frá Brynjari.
GOLFá hverjum morgni
Sumarið er komið. Golfvellirnir eru að fyllast af fólki á öllum aldri sem langar
að eltast við pínulítinn bolta í grasinu, með kylfu í annarri hendi og derhúfu á
höfði eða þannig lítur þessi íþrótt út fyrir þeim sem ekki spila golf. Sidda fannst
þetta ekki vera nein íþrótt á árum áður en lét samt tilleiðast og byrjaði að spila
árið 1982 eftir að nágranni hans náði honum út á golfvöll en eftir það var ekki
aftur snúið. Í dag er Siddi, eða Sigurður Friðriksson réttu nafni, orðinn átt-
ræður og spilar alla morgna með þremur félögum sínum í Golfklúbbi Suðurnesja
sem heita Brynjar Vilmundarson, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Kristinn Þór
Guðmundsson. Þeir aka um völlinn í Leirunni á þremur golfbílum og segja bílana
gera það að verkum að þeir geti spilað í dag. Allir eru þeir í kringum áttrætt.
Við spurðum þá félaga hvort það væri gaman í golfi.
Kiddi slær vel en
púttar eins og hálfviti,
Rúnar er hins vegar
afburða púttari ...
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Brynjar Vilmundarson,
Kristinn Þór Guðmundsson og Sigurður Friðriksson.
Það ríkir þögn á meðan verið er að pútta.
Golfbílarnir gera félögunum kleift að spila golf alla morgna.
Mar ta Eiríksdóttir
marta@vf.is
VIÐTAL
14 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.