Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.05.2019, Side 16

Víkurfréttir - 16.05.2019, Side 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Með löggum skal land byggja! FITJUM REYKJANESBÆ 5141414 NÚ með pasta og salat á matseðli! 17’’ RISA new york pizza af matseðli Ein KR.2850aðeins Tvær KR.4850aðeins Bjarney S. Annelsdóttir sem starfar hjá embætti Lögreglustjórans á Suður- nesjum hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn. Hún er þar með fyrsta konan sem gegnir því embætti hér á landi. Bjarney leiðir rannsóknardeild og almenna deild embættisins. Bjarney hóf fyrst störf sem afleys- ingamaður í lögreglunni á Keflavíkur- flugvelli árið 1999 og útskrifaðist sem lögreglumaður úr Lögregluskóla ríkisins árið 2003. Hún starfaði hjá lögreglunni í Hafnarfirði árið 2004 og í Keflavík árið 2005. Bjarney hóf störf við kennslu í Lögregluskóla rík- isins sem lögreglufulltrúi árið 2007 til 2013 þegar hún varð aðalvarð- stjóri í lögreglunni á Suðurnesjum. Frá áramótum 2017/2018 var hún settur aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum og síðan skipaður yfirlögregluþjónn frá 15. apríl. Bjarney hefur breiðan menntunar- grunn en til viðbótar við námið úr Lögregluskólanum (2003) lauk hún rekstrarfræði frá Bifröst árið 2002, viðskiptafræði BSc frá Bifröst árið 2006 og M.ed gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá HÍ árið 2016. Þá hefur hún að baki fjölda starfstengdra námskeiða. Skipuð yfirlögregluþjónn fyrst kvenna hér á landi Bjarney S. Annelsdóttir tekur við skipunarbréfinu úr hendi Ólafs Helga Kjartanssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Móðir Mæðradagurinn var haldinn há- tíðlegur síðastliðinn sunnudag um allan heim. Ég er svo heppin að eiga móður sem vildi svo sannarlega eignast mig. Af því að mamma mín þráði að eignast mig þá lagði hún allt á sig til að ala mig upp með sínum góðu gildum og gerði mig að mörgu leyti að þeirri manneskju sem ég er í dag. Ég á henni ótal margt að þakka því ég held það hafi ekki alltaf verið hægðarleikur að ala mig upp, en aldrei kvartar hún samt undan mér. Takk mamma. Það er óumdeilt að börn þurfa um- hyggju, ást og öryggi og svo margt fleira og já endalausan pening. Óvel- komið barn fær slæma vöggugjöf. Það verður byrði í stað þess að vera blessun. Í bókinni Freakonomics er meðal annars fjallað um hvaða áhrif lög- leiðing fóstureyðinga hafði á glæ- patíðni í Bandaríkjunum. Í stuttu máli var niðurstaðan sú að með lögleiðingu fóstureyðinga árið 1973 þá byrjaði glæpatíðni að lækka upp úr árinu 1990. Færð eru sterk rök fyrir því að með því að veita verðandi mæðrum þennan ákvörðunarrétt þá hafi færri börn fæðst sem óvel- komnir einstaklingar, byrði. Þessi fækkun óvelkominna barna skilaði sér í lægri glæpatíðni í framtíðinni. Sem sagt, óvelkomið barn er líklegra til að búa við verri aðstæður en vel- komið barn, sem eykur líkurnar á því að það feti glæpabrautina. Miðað við þessa tölfræði þá eru verðandi mæður vel færar um að meta það hvort þær séu að fæða barn í góðar aðstæður eða slæmar. Í nýsamþykktu frumvarpi á Alþingi Íslendinga mega konur láta eyða fóstri fyrstu 22 vikur meðgöngu en sá tími var áður 18 vikur. Miklar umræður hafa skapast í þjóðfélaginu, bæði með og á móti þessari samþykkt. Einhverjir vildu ganga enn lengra og lengja þann tíma í 24 vikur líkt og í Englandi, meðal annars Sigurlaug Benediktsdóttir fæðingarlæknir sem skrifaði magnað opið bréf til Ingu Sæland í tilefni þessa lagafrumvarps. Inn í þessa umræðu tvinnast áleitnar líffræðilegar og siðfræðilegar spurn- ingar, eins og hvenær fóstur sé orðið sjálfstæður einstaklingur. Í því sam- hengi má líta til þess að andvana fædd börn fá ekki kennitölu hjá Hag- stofunni þrátt fyrir fulla meðgöngu. Það má flækja þetta mál og teygja og toga í allar áttir en mín skoðun er einföld. Ef kona metur það sem svo að fóstur sem hún gengur með verði óvelkomið og/eða muni ekki búa við nægilega góðar aðstæður þá eigi hún að fá eins mikinn tíma og hægt er til að meta ákvörðun um að enda með- gönguna. Það er enginn aðili, nefnd eða stofnun betri til að taka slíka ákvörðun en verðandi móðirin sjálf. Aukinn tími og sveigjanleiki fyrir svo afdrifaríka ákvörðun getur að mínu mati bara verið til bóta fyrir allar verðandi mæður. LOKAORÐ Ingu Birnu Ragnarsdóttur

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.