Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Side 1
Eyjafréttir Örlygur og Katrín meistarar>> 13 >> 8 >> 14 Hvernig var Jón drepinn góður gangur í ferðaþJónustu Vestmannaeyjum 15. júní 2015 :: 42. árg. :: 28. tbl. :: Verð kr. 450 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is Fanney Björk Ásbjörnsdóttir hefur barist fyrir því að fá viðeigandi lyf við lifrarbólgu C sem hún fékk við blóðgjöf eftir barnsburð. Henni var neitað um lyfin á þeim forsendum að þau væru of dýr. Kærði hún þessa ákvörðun og hefur Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkt að veita henni flýti- meðferð í málinu. Ríkið hefur tíma fram í næstu viku til að skila greinargerð um málið sem verður líklegast tekið fyrir í ágúst. Mál Fanneyjar hefur vakið mikla athygli fjölmiðla og á Vísir.is segir Sigurður Ólafsson yfirlæknir og sérfræðingur í meltingarsjúkdómum algerlega óásættanlegt að fólk með lifrarbólgu C fái ekki tilskilin lyf og það eigi sér enga hliðstæðu í nágrannalöndunum. Þarna séu í sumum tilfellum sjúklingar með alvarlegan lifrarsjúkdóm sem fái ekki viðeigandi meðferð. Áður hafði Stöð 2 sagt að 200 sjúklingar hafi greinst með lifrar- bólgu og standi þeim einungis til boða lyf sem þykja úrelt í Evrópu og Bandaríkjunum. Þau eru ódýrari í innkaupum en hafa miklar aukaverk- anir og miklu minni svörun. Hluti þessa hóps er mjög veikur og getur vart beðið miklu lengur. Þá er haft eftir Ólafi Baldurssyni lækningaforstjóra Landsspítalans að sérfræðingar spítalans vildu kaupa lyfin en Sjúkratryggingar segðu nei. „Það sem skiptir mestu máli núna er að það fáist lausn og hún fáist strax. Fyrir mig sem lækni og sjúklingana mína skiptir ekki mestu máli úr hvaða vasa innan heilbrigðiskerfisins, peningarnir koma, þeir þurfa bara að koma og það fljótlega,“ segir Sigurður Ólafsson í viðtali á Vísir.is. Það er sama hvar borið er niður í fræðin og viðtöl við lækna og sérfræðinga, niðurstaðan er að lyfjamálið vegna lifrarbólgu C sé fordæmalaust og jaðri við að vera hneyksli. Börn Fanneyjar hrintu af stað söfnun um miðjan maí og er markmiðið að safna tíu milljónum til að Fanney geti fengið lyfin. Tinna Tómasdóttir, elsta dóttir Fanneyjar, sagði að söfnunin hefði gengið vel. „Það er alveg ótrúlegt hvað fólk er tilbúið að leggja okkur lið í bar- áttunni hennar mömmu,“ sagði Tinna. Fanney nær stórum áfanga í baráttu sinni fyrir að fá viðeigandi lyf: Lyfjamálið vegna lifrar- bólgu C er fordæmalaust og jaðrar við hneyksli :: Það er mat sérfræðinga :: Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti að veita henni flýtimeðferð Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Hann fékk heldur óblíðar móttökur, sílamáfurinn sem ætlaði að krækja sér í æðarunga á Daltjörninni um daginn. „Þær voru einar sex kollurnar sem fannst hann gerast helst til nærgöngull og réðust á hann,“ sagði Ruth Zohlen sem náði að mynda slaginn. Undanfarin sumur hefur hópur af æðar- kollum haldið sig á tjörninni með unga sína og er hann óvenjustór núna. „Máfurinn varð undir í slagnum og hélt ég fyrst að hann væri dáinn. Hann náði þó að koma sér í burtu en kollurnar héldu áfram að sinna ungum sínum,“ sagði Ruth.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.