Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Síða 1
Eyjafréttir
Örlygur og
Katrín meistarar>> 13 >> 8 >> 14
Hvernig var
Jón drepinn
góður gangur
í ferðaþJónustu
Vestmannaeyjum 15. júní 2015 :: 42. árg. :: 28. tbl. :: Verð kr. 450 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Fanney Björk Ásbjörnsdóttir hefur
barist fyrir því að fá viðeigandi lyf
við lifrarbólgu C sem hún fékk við
blóðgjöf eftir barnsburð. Henni
var neitað um lyfin á þeim
forsendum að þau væru of dýr.
Kærði hún þessa ákvörðun og
hefur Héraðsdómur Reykjavíkur
samþykkt að veita henni flýti-
meðferð í málinu. Ríkið hefur
tíma fram í næstu viku til að skila
greinargerð um málið sem verður
líklegast tekið fyrir í ágúst.
Mál Fanneyjar hefur vakið mikla
athygli fjölmiðla og á Vísir.is segir
Sigurður Ólafsson yfirlæknir og
sérfræðingur í meltingarsjúkdómum
algerlega óásættanlegt að fólk með
lifrarbólgu C fái ekki tilskilin lyf og
það eigi sér enga hliðstæðu í
nágrannalöndunum. Þarna séu í
sumum tilfellum sjúklingar með
alvarlegan lifrarsjúkdóm sem fái ekki
viðeigandi meðferð.
Áður hafði Stöð 2 sagt að 200
sjúklingar hafi greinst með lifrar-
bólgu og standi þeim einungis til
boða lyf sem þykja úrelt í Evrópu og
Bandaríkjunum. Þau eru ódýrari í
innkaupum en hafa miklar aukaverk-
anir og miklu minni svörun. Hluti
þessa hóps er mjög veikur og getur
vart beðið miklu lengur.
Þá er haft eftir Ólafi Baldurssyni
lækningaforstjóra Landsspítalans að
sérfræðingar spítalans vildu kaupa
lyfin en Sjúkratryggingar segðu nei.
„Það sem skiptir mestu máli núna er
að það fáist lausn og hún fáist strax.
Fyrir mig sem lækni og sjúklingana
mína skiptir ekki mestu máli úr
hvaða vasa innan heilbrigðiskerfisins,
peningarnir koma, þeir þurfa bara að
koma og það fljótlega,“ segir
Sigurður Ólafsson í viðtali á Vísir.is.
Það er sama hvar borið er niður í
fræðin og viðtöl við lækna og
sérfræðinga, niðurstaðan er að
lyfjamálið vegna lifrarbólgu C sé
fordæmalaust og jaðri við að vera
hneyksli.
Börn Fanneyjar hrintu af stað
söfnun um miðjan maí og er
markmiðið að safna tíu milljónum til
að Fanney geti fengið lyfin. Tinna
Tómasdóttir, elsta dóttir Fanneyjar,
sagði að söfnunin hefði gengið vel.
„Það er alveg ótrúlegt hvað fólk er
tilbúið að leggja okkur lið í bar-
áttunni hennar mömmu,“ sagði
Tinna.
Fanney nær stórum áfanga í baráttu sinni fyrir að fá viðeigandi lyf:
Lyfjamálið vegna lifrar-
bólgu C er fordæmalaust
og jaðrar við hneyksli
:: Það er mat sérfræðinga :: Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti að veita
henni flýtimeðferð
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Hann fékk heldur óblíðar móttökur, sílamáfurinn sem ætlaði að krækja sér í æðarunga á Daltjörninni um daginn. „Þær voru einar sex kollurnar sem
fannst hann gerast helst til nærgöngull og réðust á hann,“ sagði Ruth Zohlen sem náði að mynda slaginn. Undanfarin sumur hefur hópur af æðar-
kollum haldið sig á tjörninni með unga sína og er hann óvenjustór núna. „Máfurinn varð undir í slagnum og hélt ég fyrst að hann væri dáinn. Hann
náði þó að koma sér í burtu en kollurnar héldu áfram að sinna ungum sínum,“ sagði Ruth.