Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Page 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júlí 2015
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
Blaðamenn: Gígja Óskarsdóttir - gigja@eyjafrettir.is
Ásta Sigríður Guðjónsdóttir - asta@eyjafrettir.is
Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og
Íþróttir: Guðmundur Tómas Sigfússon
Ábyrgðarmaður: Ómar Garðarsson.
prentvinna: Landsprent ehf.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Toppnum,Vöruval,Herjólfi,Flughafnarversluninni,
Krónunni, Kjarval og Skýlinu.
Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Makrílvertíðin hefur farið mjög
vel af stað þetta árið, bæði
veiðar og vinnsla. Fiskurinn er
líka stærri og í betra ásigkomu-
lagi en var í fyrra. Unnið er á
vöktum bæði hjá Ísfélagi og
Vinnslustöð. Segja má að hið
eina sem skyggi á, sé óvissa á
stærstu mörkuðum okkar fyrir
makríl, í Rússlandi, Úkraínu og
Nígeríu. Eyjafréttir náðu tali af
nokkrum aðilum sem tengjast
makrílnum í veiðum og vinnslu.
„Þetta hefur gengið alveg skínandi
vel það sem af er,“ sagði Ólafur
Ágúst Einarsson, skipstjóri á
Heimaey VE þegar við ræddum við
hann á mánudag. „Reyndar má
segja að við séum meira í landi en á
sjó, við fórum út um hádegið í gær
og vorum komnir inn með skammt-
inn okkar fyrir hádegi í dag. Nú
bíðum við bara eftir löndun.“
Ólafur segir að veiðarnar hafi farið
mun betur af stað núna en í fyrra.
Skarpara en í fyrra
„Þetta er skarpara en menn höfðu
gert sér vonir um og auk þess stærri
og betri fiskur en var í fyrra. Svo er
heldur ekki langt að sækja, þetta 30
til 60 sjómílur og túrarnir hjá okkur
hafa yfirleitt verið í kringum
sólarhringur úr höfn og í höfn og
aflinn þetta 400 til 500 tonn. Sem
sagt, stutt og þægilegt,“ sagði
Ólafur og bætti við að það eina sem
hægt væri að kvarta yfir væri veðrið
sem hefði mátt vera betra að
undanförnu. „Kvótastaðan er líka
góð hjá okkur auk þess sem við
áttum eitthvað óveitt frá því í fyrra.
Það er bara bjart framundan í
makrílveiðum,“ sagði Ólafur að
lokum.
Páll Þór Guðmundsson, útgerðar-
stjóri Hugins VE, var ánægður með
gang mála á mánudag þegar við
slógum á þráðinn til hans. „Það
hefur gengið ágætlega, búið að vera
betra en undanfarin ár. Huginn er
búinn að landa þrisvar sinnum, í allt
eru það um 2000 tonn. Af því eru
um 1200 tonn af frystum afurðum
eða um 400 tonn í hverjum túr.
Vonandi helst þetta svona áfram og
sem lengst. Í fyrra vorum við að
alveg fram í október og við vonum
bara að það endurtaki sig núna,“
sagði Páll að lokum.
5000 tonn hjá VSV
„Bæði veiðar og vinnsla hafa
gengið nokkuð vel,“ sagði Sindri
Viðarsson hjá Vinnslustöðinni.
Eitthvað um 5000 tonn komin á
land og má segja að veiðin sé á pari
við það sem var í fyrra en ástandið
á fiskinum betra, auk þess sem hann
er stærri í ár. Einhverjir óttuðust að
makríllinn myndi ganga seint inn í
íslensku lögsöguna en sú spá hefur
sem betur fer ekki gengið eftir,
a.m.k. ekki á miðunum hér við
Eyjar.“
Í fréttum RÚV á mánudagskvöld
kom fram að nokkur óvissa er í
markaðsmálum í þeim löndum sem
hafa keypt megnið af makrílnum og
Sindri tekur undir það. „Já, það er
ákveðið óvissuástand núna. Rússar
hafa verið stórir kaupendur á
þessum markaði en nú eiga þeir
birgðir síðan í fyrra og halda að sér
höndum á meðan.
Úkraína og Nígería hafa einnig
keypt mikið magn en stríðsástand í
báðum löndum ásamt stjórnar-
kreppu í Nígeríu setur strik í
reikninginn. Þá hafa Egyptar einnig
verið nokkuð stórir kaupendur en
loft er lævi blandið í þeim heims-
hluta og á meðan má segja að þessir
markaðir svífi hálfvegis í lausu lofti
þar sem þessir aðilar hafa keypt
gríðarlegt magn af makríl. Raunar
höfum við verið að leita fyrir okkur
á nýjum mörkuðum líka en það
tekur tíma og kostar fé og slíkt er
ekki gert á einni nóttu. En útlitið er
bjart, alla vega hvað snertir veiðar
og vinnslu og vonandi rætist úr í
markaðsmálunum,“ sagði Sindri.
Skammturinn 400 tonn
Eyþór Harðarson, hjá Ísfélagi
Vestmannaeyja, tók mjög í sama
streng og Sindri. „Þetta hefur rúllað
ágætlega, skipin eru að koma með
400 tonn eftir sólarhringinn og
hefur verið stanslaus löndun;
fiskurinn stór og fallegur. En eins
og fram hefur komið í fréttum þá
virðist ganga hægt á markaðnum.
Ég veit ekki hvort þarf að hafa
miklar áhyggjur af því, við höfum
leyst þetta með því að hægja aðeins
á í veiðum og vinnslu ef geymslu-
plássið minnkar og vonandi horfum
við fram á góða makrílvertíð,“
sagði Eyþór Harðarson.
Góður gangur í veiðum
og vinnslu á makríl
:: Stærri og betri fiskur en í fyrra :: Stutt að sækja á miðin :: Óvissa
í markaðsmálum hjá stærstu kaupendunum
SiGurGEir jÓnSSon
sigurge@internet.is
Á fundi umhverfis og skipulags-
ráðs á mánudaginn lagði Stefán
Ó. Jónasson, oddviti Eyjalistans,
fram fyrirspurn um stöðu
uppgræðslumála og hvað hafi
verið gert. Gróður og jarðvegur
kom víða illa undan síðasta
vetri sem var einn sá harðasti í
mörg ár. Gekk hvert stórviðrið af
öðru yfir landið og varð í
sumum tilfellum stórtjón. Í einu
austanveðrinu fauk stór gróður-
þekja og hundruð ef ekki
þúsundir tonna af jarðvegi úr
Stórhöfða austanverðum. Þá
hefur suðurhlíð Eldfells látið
mikið á sjá.
Bæjarráð fól starfsmönnum sviðsins
að taka saman greinargerð um
umhverfismál. Í samtali Eyjafrétta
við Ólaf Snorrason, framkvæmda-
stjóra, kemur fram að þegar hefur
verið hafist handa. „Það er búið að
fara í Eldfellið í tvígang með hóp
sumarstarfsmanna og bera áburð og
fræ í fellið. Unnið hefur verið í rofi
við Brimurð. Það er beðið eftir
tillögum Landgræðslunnar varðandi
Stórhöfða og svo höfum við fengið
í lið með okkur nokkra vaska
göngugarpa sem hafa verið að bera
í Dalfjallið, Heimaklett og fleiri
svæði. Einnig hefur verið slegin
lúpína, bæði í Herjólfsdal og
Ofanleitishrauni auk annarra
almennra umhverfisaðgerða,“ sagði
Ólafur.
Á fundi sínum í apríl lýsti ráðið
áhyggjum af gróðureyðingu á
Heimaey sökum veðurfars.
„Ljóst er að ákveðin svæði eru illa
farin og þarfnast sértækra aðgerða
svo koma megi í veg fyrir frekari
skemmdir. Starfsmenn Vestmanna-
eyjabæjar hafa undanfarin sumur
unnið að úrbótum en nú er ljóst að
kalla þarf fleiri aðila að verkinu, s.s.
Landgræðsluna, félagasamtök og
aðra áhugasama hópa og einstak-
linga,“ sagði í fundargerð um-
hverfis- og skipulagsráðs.
Stefán Jónasson í umhverfis- og skipulagsráði :: Uppgræðsla
á foksvæðum:
Byrjað að bera fræ í Eldfell
:: Unnið í rofi við Brimurð :: Beðið eftir tillögum um Stórhöfða
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Umhverfis- og skipulagsráð
lagði til á fundi sínum á mánu-
daginn að heimila lundaveiði í
Vestmannaeyjum í þrjá daga í
sumar, dagana sjöunda til
níunda ágúst og báðir dagar
meðtaldir.
Árin 2011 og 2012 var engin lunda-
veiði heimiluð í Vestmannaeyjum
að frumkvæði bæjaryfirvalda en
árin þar á undan voru verulegar
hömlur settar á veiði. Árin 2013 og
2014 var veiði heimiluð í fimm
daga.
„Reynslan frá því í fyrra sýnir að
þeir fáu dagar sem lundaveiði er
heimiluð eru nánast eingöngu nýttir
til að kenna ungmennum og
nýliðum handtökin og menninguna
í kringum veiðar. Þá er tíminn
nýttur til að að huga að húsnæði
úteyjanna og öðru sem til fellur í
úteyjalífi,“ segir í greinargerð
ráðsins.
Kemur fram að nánast engin veiði
var þessa daga og víðast hvar var
þeim fáu fuglum sem sveiflað var
fyrir sleppt. „Ákvörðunin nú er sem
sagt tekin með hliðsjón af ástandi
stofnsins sl. ár og þeim mikilvæga
menningarlega þætti sem lunda-
veiði er í sögu Vestmannaeyja.
Ráðið hvetur bjargveiðimenn til
þess að haga veiðum þannig að
lundinn njóti ætíð vafans,“ segir í
lokaorðum greinargerðarinnar.
Þessi heimild til lundaveiða í
sumar var samþykkt af fulltrúum
Sjálfstæðisflokks í ráðinu, Margréti
Rós Ingólfsdóttur, Ingólfi Jó-
hannessyni og Esther Bergsdóttur.
Stefán Ó. Jónasson Eyjalista lét
bóka að þar sem ekki liggja fyrir ný
gögn frá Náttúrustofu Suðurlands
taki hann ekki afstöðu til málsins.
Samkvæmt því sem komið hefur
fram hjá vísindamönnum er
lundastofninn í Vestmannaeyjum
enn á niðurleið.
Umhverfis- og
skipulagsráð ::
Heimilar lunda-
veiði í þrjá daga:
Lítil veiði
en reynt
að halda
í hefðir
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Nýr Ísleifur VE 63 til Vinnslustöðvarinnar. Vinnslustöðin hefur tekið við uppsjávarskipinu Ingunni AK sem
hún keypti af HB-Granda fyrr í sumar ásamt Faxa RE og aflaheimildum í loðnu. Ingunn heitir nú Ísleifur
VE 63 og er kominn með græna litinn sem verið hefur einkennislitur Ísleifanna í áratugi. Skipstjórar á Ísleifi
VE verða Helgi Geir Valdimarsson og Eyjólfur Guðjónsson. Yfirvélstjóri verður Guðjón Gunnsteinsson.
Faxi verður afhentur síðar og fær hann nafnið Kap VE. Skipstjórar verða þeir Gísli Þór Garðarsson og
Jón Atli Gunnarsson. Yfirvélstjóri verður Örn Friðriksson. Mynd: Sveinn Magnússon.