Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Side 8

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Side 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júlí 2015 Í júlímánuði minnumst við þess að 388 ár eru frá Tyrkjaráninu. Af því tilefni er boðið upp á afar áhugaverða dagskrá í Sagn- heimum fimmtudaginn 16. júlí kl. 12-13. Skemmst er að minnast eftirminnilegs flutnings Steinunnar Jóhannesardóttur, rithöfundar og leikkonu, á Örlagasögu Hallgríms og Guðríðar á bryggjusvæði safnsins um goslok. Að þessu sinni kynnum við annan góðan gest, dr. Þorstein Helgason, sagnfræðing en doktorsritgerð hans: Minning og saga í ljósi Tyrkjaránsins kom út á síðasta ári. Í rannsókn sinni leitaði Þorsteinn fanga í áður óþekktar heimildir, einkum danskar, hollenskar og franskar. Tyrkjaránið á sér fastan sess í þjóðarminningunni og birtist víða í örnefnum og þjóðsögum auk ritaðra frásagna ekki síst hér í Eyjum. Í hádegiserindi sínu ætlar Þorsteinn einkum að beina augum sínum að séra Jóni Þorsteinssyni presti að Kirkjubæ og fjölskyldu hans, ekki síst ævintýralegu lífshlaupi sonar sr. Jóns, er kallaði sig Jón Vestmann. Sá átti fyrir höndum að turnast sem kallað var, þ.e. að gerast múslimi og komst þar til æðstu metorða, varð m.a. skipstjóri í ránsferðum um Miðjarðarhafið. Síðar var Jón handtekinn og fluttur fangi til Kaupmannahafnar og átti þó enn eftir að rísa til metorða áður en yfir lauk. Þorsteinn mun fjalla um þá feðga en einnig rekja kenningar sínar um myndmál altaristöflu kirkjunnar á Krossi í Landeyjum, sem allir Vestmannaeyingar ættu að skoða á ferð sinni um Suðurlandið. Að venju er boðið upp á súpu á undan erindinu. Heimildir Jón Þorsteinsson, annar sóknar- prestanna í Vestmannaeyjum, var drepinn í Tyrkjaráninu. Um það ber heimildum saman og vitnar m.a. um það legsteinn hans sem grafinn var úr jörðu árið 1924 og á stendur: „Síra Jón Þorsteinsson Occisus [veginn] 17. júlí 1627.“ 1 En af tildrögunum að vígi hans fer nokkuð misjöfnum sögum. Þessar eru helstar: Elst og lengst er frásaga Kláusar Eyjólfssonar, lögréttumanns frá Hólmum í Landeyjum. Hún er hins vegar til í ólíkum gerðum og sker sú gerð, sem Jón Þorkelsson nefnir D í útgáfu sinni, sig mest frá hinum. Tvö bréf eru varðveitt sem skrifuð voru skömmu eftir ránið, annað frá Benedikt Halldórssyni, tvítugum pilti fyrir norðan, og hitt frá Oddi Einarssyni, Skálholtsbiskupi og er þar sagt frá ráninu í stuttu máli eftir því sem sögur hafa gengið. Guðmundur Erlendsson, prestur í Skagafirði, orti rímur um Tyrkja- ránið eins og áður er nefnt og segir allítarlega frá ævilokum Jóns píslarvotts í bundnu máli. Ólafur Egilsson, hinn presturinn í Eyjum, víkur að vígi starfsbróður síns í ferðasögu sinni sem jafnframt er ítarlegasta upprunaheimild um ránið í Vestmannaeyjum. Loks koma kaflinn úr Tyrkjaráns- sögu Björns Jónssonar á Skarðsá, sem Þorlákur Hólabiskup fékk hann til að rita eftir ýmsum skrifuðum heimildum, og kafli úr Biskupa- sögum Jóns Halldórssonar, ritaður um hálfri öld síðar. Píslarvættisdauði Jóns Í nær öllum frásögnunum er vígi Jóns lýst sem píslarvætti með frumfyrirmynd í píslarsögu Krists. Júdas, sem leiddi hermennina að frelsaranum, er til staðar, sömu- leiðis orð Krists á krossinum. Þrisvar er Jón höggvinn og þrisvar mælir hann fram orð sem lýsa guðstrausti og rósemd þess sem veit hvað fram verður að ganga. Orð Krists voru að vísu sjö en þrenn- ingin er einnig við hæfi. Trafið, sem kona séra Jóns leggur um blóðugt höfuð hans, er krýning píslarvotts- ins. Ein heimildin sker sig úr að því leyti að þar hefur lýsingin ekki fengið á sig form píslarsögunnar; þar er lýst formlausu ódæðisverki. Þetta er bréf Benedikts Halldórs- sonar og þar er ungur maður í öðrum landsfjórðungi að segja frá því sem spurst hefur mann frá manni um voðaverk í Vestmanna- eyjum. Munnlegar heimildir Oddur Einarsson, biskup, byggir einnig á munnlegum heimildum þegar hann skrifar bréf, að líkindum haustið 1627. „...er það hér almælt“, segir hann um dráp Grindavíkur- kaupmanna. Vitneskjuna um að ræningjar hafi hleypt Djúpavogs- kaupfari í sjó og það mari þar enn hefur hann eftir „sögn þeirra, sem það hafa séð.“ 2 Um atburðina í Vestmannaeyjum er hann ákveðnari í orðalagi en lýsing hans á vígi séra Jóns er þó varla byggð á skrifaðri frásögn Kláusar. Engu að síður hefur hún á sér yfirbragð píslar- sögunnar; þrískiptingin er til staðar, konan og börnin eru nálæg. Ef til vill hefur sagan borist um Suður- land með þessum einkennum, Oddur heyrt eina útgáfu hennar og Kláus skráð aðra. En Oddur hefur einnig kunnað að draga upp frumeinkenni píslarsögu af sjálfsdáðum þar sem hann var lærður maður í trúfræðum og mælskulist. Mótaði píslarvættissöguna Bréf Odds breiddist hins vegar ekki út í afskriftum enda var það ekki til þess ætlað. Það var Kláus Eyjólfs- son sem mótaði hina skýru píslarsögu með frásögn sinni (sem að vísu er til í nokkuð mismunandi gerðum). Björn á Skarðsá byggir fyrst og fremst á Kláusi í Tyrkja- ránssögunni. Í nokkrum handritum af Kláusar sögu er Þorsteinn svikari, sá er leiddi korsara til uppgöngu í Eyjum, einnig gerður að banamanni séra Jóns Þorsteinssonar, stundum með nokkrum fyrirvara. 3 Í einu afritinu, sem skrifað var í byrjun 19. aldar, JS 80 8vo, er gengið lengra en í öðrum. Þar er fullyrt að Þorsteinn þessi hafi verið „verka-þjónn“ séra Jóns en „hafði þeim ei í besta máta fallið“. 4 Í þessu handriti fær verka-þjónninn einnig makleg málagjöld með því að korsarar tóku hann og hengdu upp í mastur á stærsta skipinu. 5 Hinn íslenski svikari Björn á Skarðsá endursegir úr ritum annarra eins og vant er og hann greinir einnig frá hinum íslenska svikara sem sýndi korsurum uppgönguleið en hann greinir hann ekki sem banamann Jóns í helli eða skipi. 6 Björn hafði aðgang að fleiri heimildum en við höfum nú þar sem hann notaði einnig herleið- ingarsögu Einars Loftssonar úr Eyjum. Björn moðar úr frásögnum Kláusar og Einars en mest fer hann þó að jafnaði eftir þriðju sögunni, reisubók séra Ólafs Egilssonar. Hálfum fjórða áratug síðar voru Ræningjarímur Guðmundar Erlendssonar í Felli skráðar í bók sem enn er varðveitt. Það gerði Skúli sonur hans og er ekki ástæða til að ætla annað en að hann hafi afritað sem næst frumriti föður síns þó að ekki sé hægt að fullsanna það. Guðmundur hefur vísast ort rímurnar stuttu eftir að Ólafur Egilsson kom aftur úr herleiðing- unni sumarið 1628. Í 82. erindi, þriðju rímu (af fjórum), yrkir Guðmundur: „Aftur kominn er hann þó...“ og í næsta erindi: „Drottinn styrki hann í hug...“ 7 Þarna er greinilega talað til Ólafs áður en hann endurheimti konu sína frá Algeirsborg um áratug eftir rán. Þó að Guðmundur nefni ekki frásögn Kláusar beinum orðum hefur hann greinilega haft hana í höndum og í bundnu máli hans verður píslar- sagan mjög skýr með þrenningu högga og orða. Guðmundur kveður beinlínis upp úr um Jón Þorsteins- son, að hann hafi dáið sem píslarvottur, merktur blóði eins og herrann Kristur: 72. Postullegan part sá hlaut í pínu og dauða hirðir frægur himnasauða, herrans bar hann merkið rauða. 73. Er hann felldur eins og blóm af illskurottum, á því part með píslarvottum sem prýddust [fyrr] í dreyra- þvottum. 8 Heggur þrisvar Sá sem á orðastað við séra Jón og heggur hann þrisvar er ekki sagður íslenskur og því síður nefndur nafni heldur aðeins kallaður „[p]retta- limur púkans“, ennfremur „hirðir lasta“ og morðingi.9 Ekki hefur Guðmundur í rímum sínum lýsinguna á banamanni Jóns sem þvær hendur sínar á skipinu á útleið til Afríku. Svikarinn Þorsteinn er hins vegar talinn hafa vísað ránsmönnum leið í eyna eins og Kláus segir frá. Guðmundur gengur sem sé ekki eins langt og gert er í JS 80 8vo.10 Í stuttu máli má segja að vígi Jóns Þorsteinssonar sé lýst í dramatísk- ustu sögunum sem píslarvætti sem fylgir frásagnarhætti píslarsögu Krists og seinni píslarvotta. Lýsingin er styrkt með því að herma að vitni hafi verið að atburðunum og má vera að séra Jón hafi tekið þeim með kristilegum skilningi. Kristileg minning og skilningur mótuðu í öllu falli frásögnina sem rituð var og ætluð var eftirheiminum. Morðinginn Þorsteinn Hver er þá hin sanna lýsing á vígi Jóns Þorsteinssonar? Kláus styrkir sögu sína með því að tilgreina Súpa og erindi í Sagnheimum :: Í ár eru 388 ár frá Tyrkjaráni: Hver er þá hin sanna lýsing á vígi Jóns Þorsteinssonar? :: Dr. Þorstein Helgason, sagnfræðingur, segir frá doktorsritgerð sinni, Minning og saga í ljósi Tyrkjaránsins :: Leitaði leitaði Þorsteinn fanga í áður óþekktar heimildir Í nær öllum frásögnunum er vígi Jóns lýst sem píslarvætti með frumfyrirmynd í píslar- sögu Krists. Júdas, sem leiddi hermennina að frelsaranum, er til staðar, sömuleiðis orð Krists á krossinum. Þrisvar er Jón höggvinn og þrisvar mælir hann fram orð sem lýsa guðstrausti og rósemd þess sem veit hvað fram verður að ganga. Orð Krists voru að vísu sjö en þrenningin er einnig við hæfi. Trafið, sem kona séra Jóns leggur um blóðugt höfuð hans, er krýning píslarvotts- ins. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.