Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Síða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Síða 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júlí 2015 Guðmundur Jónsson tónlistar- maður, sem er best þekktur sem einn af Sálarmönnum, heldur tónleika með vel völdu tónlistarfólki næsta föstudag en þau ganga undir nafninu Vestanátt. Gummi, eins og hann er oftast kallaður, samdi einnig þjóðhátíðarlagið í ár, Haltu fast í höndina á mér, við texta Stefáns Hilmarssonar, félaga síns í Sálinni. Lagið er núna aðra vikuna á vinsældalistum. Þær eru ófáar þjóðhátíðirnar sem Sálin hefur kætt gesti í Herjólfs- dal og á föstudaginn má fá forsmekkinn þó nú mæti Gummi með Vestanáttinni en ekki Sálinni. Stefán Hilmarson sagði að þú hafir átt þjóðhátíðarlagið í pokahorninu, hvenær samdir þú lagið? „Lagstúf þennan samdi ég fyrir einu og hálfu ári, í ársbyrjun 2014. Ég hef vanið mig á það í gegnum tíðina að taka skorpu í byrjun hvers árs til að semja lög og þessi ópus kom í það skiptið. Ég man að ég var undir miklum áhrifum frá sveitatónlist á þessum tíma sem kom síðar Vestanáttinni til góða og var nú kannski ástæðan fyrir því að sú hljómsveit varð til. Þess vegna fannst mér lagið Haltu fast í höndina á mér, koma eins og skrattinn úr sauðaleggnum, svona grúvskotið en þó í kunnuglegum sálarpoppstíl. Þegar sköpunarneist- inn kviknar þá verður maður bara að elta hann og sjá hvert það leiðir og þetta lag kom fljótt og vel.“ Af hverju var það svo fyrir valinu? „Þegar þjóðhátíðarnefnd bað okkur um lag þá fannst mér liggja beinast við að athuga hvort ég hefði ekki eitthvað boðlegt á lager, í stað þess að semja eitthvað þarna á staðnum og það vildi svo vel til að ég átti slatta af lögum sem gátu hugsanlega virkað. Ég gerði því sex laga demó að mig minnir, sem ég síðan sendi á hljómsveitina til hlustunar. Ég hef aldrei verið hrifinn af því að semja eftir pöntunum og vil yfirleitt hafa frjálsar hendur í tón - listinni, þannig að þetta var öðruvísi og aðeins snúið. Líka af því að þjóðhátíðarlög eru elskuð af þjóð- inni og hafa á sér sérstakan brag. Eftir að hafa hlustað á demóin og velt þessu fyrir okkur þá ákváðum við að kýla á þetta lag sem síðan varð fyrir valinu. Það er grípandi og í kunnuglegum sálarstíl en hafði líka einn þýðingarmikinn kost umfram hin lögin. Það er einfalt í uppbyggingu, sem er yfirleitt sjaldgæft með Sálarlög, og vonandi svo einfalt að flestir gítareigendur þjóðhátíðar geti spilað það. Síðan var komið að hlut Stefáns í jöfnunni, að semja texta við lagið og leysti hann það verkefni af sinni alkunnu snilld, frábær texti, vel ortur og fellur vel að lagi og tilefni. Við útsettum síðan lagið, tókum það upp fljótt og vel, og bættum við aukabrassi, orgeli og bakröddum.“ Hvernig finnst þér viðtökurnar hafa verið? „Bara góðar held ég, þjóðhátíðar- nefndin er sátt. Maður hefur svo sem ekkert verið að fiska eftir viðbrögðum, ég veit að lagið er á toppnum á Rás 2 sem er skemmti- legt, þannig að hver veit? Það er með svona tækifærislög, fólk fílar þau eða ekki og allt í góðu með það, enda elskar fólk sína þjóðhátíð og vill henni sem allra best. Það er ekkert til sem heitir rétt eða rangt í tónlist. Ég veit að við Sálverjar gerðum eins vel og við gátum á þessum tímapunkti og ef maður veit það í hjarta sínu, þá getur maður tekið við flestu sem að manni kemur. Þannig að við erum bara sáttir með útkomuna.“ Vestanátt – getur þú aðeins sagt okkur frá tilkomu hennar? „Vestanáttin varð til fyrir einu og hálfu ári er ég fékk heiftarlegt æði fyrir amerískri sveitatónlist og langaði að syngja lögin mín, gömul og ný í þeim stíl. Þegar slíkt brestur á, ber að hóa í vini sína og kunn- ingja og hnoða í band og skíra það eftir tilefninu; Vestanáttin. Það leið ekki á löngu áður en við vorum farin að spila á tónleikum um allar koppagrundir og bandið er skipað slíku öndvegisfólki sem ég fæ því seint fullþakkað fyrir að spila með mér; Alma Rut söngdíva sem syngur allt af stakri snilld, Sigurgeir Sigmundsson, gítarhetja, spilar á petal stálagítar og önnur strengjahljóðfæri og í hryndeildinni eru svo öðlingarnir Eysteinn Eysteinsson á trommur og bakrödd og Pétur Kolbeinsson á bassa. Ég, ef mig skyldi kalla, strömma svo á gítar og syng. Á hverju á fólk von á föstudaginn? „Fólk á von á afslappaðri kvöldstund með helling af frum- saminni, íslenskri tónlist. Við gáfum út plötu, samnefnda hljómsveitinni, í vor með tíu nýjum lögum, sem sum hver hafa fengið prýðisvið- tökur í útvarpinu og hægt er að versla í Eymundsson Bárustíg eða á síðunni minni; gummijons.is eða bara á Háaloftinu um kvöldið. Við komum til með að spila lög af nýja diskinum, ásamt ópusum sem ég hef samið fyrir Sálina, Pelican, Sjonna Brink, Björgvin Halldórs og af sólóplötum mínum o.fl. Af nógu er að taka eftir mörg ár í bransanum og verður farið yfir víðan völl, sagðar sögur um tilurð laga og texta og reynt að búa til góðan galdur fyrir gesti og gangandi. Því maður fær aldrei nóg af því að semja lítið lag upp úr engu, flytja það með góðu fólki fyrir framan þakklátan sal og ná kannski í augnablik að hreyfa við sálinni – það gerist ekki betra.“ Gummi í Sálinni með Vestanáttinni á Háaloftinu: Grípandi og í kunnuglegum sálarstíl :: Segir hann um þjóðhátíðarlagið :: Hentar gítarspilurum í Dalnum :: Lofar góðum tónleikum á föstudaginn Sara SjöFn GrETTiSdÓTTir sarasjofn@eyjafrettir.is Guðmundur Jónsson hefur samið ófáa smellina. Sá nýjasti er Þjóðhátíðarlagið 2015, Haltu fast í höndina á mér. Staðfest hefur verið að bekkja- bílar verði ekki á þjóðhátíð í ár eins og fram kemur í yfirlýsingu sem birtist í Eyjafréttum í dag. Í yfirlýsingunni segir að þjóðhá- tíðarnefnd hafi samið við einkaaðila innanbæjar um að taka að sér að aka fjórum strætisvögnum. „Margir kostir eru við að fá hingað strætisvagna. Þeir taka fleiri farþega, betri aðstaða er fyrir farþega, betra aðgengi fyrir barnavagna, auðveldara að flytja farangur auk þess sem strætis- vagnar eru mun öruggari til farþegaflutnings,“ segir í yfirlýsingunni. Enn fremur kemur fram að strætisvagnarnir munu aka sömu leið og bekkjabílarnir hafi hingað til gert en lestun og losun mun fara öðruvísi fram. „Fyrirkomulagið í dalnum verður þó með öðru sniði þar sem strætisvagnar stoppa hægra megin á hringtorginu og nota hringinn til að snúa við og er það gert til þess að auka öryggi þjóðhátíðargesta og flýta fyrir lestun og losun vagnanna.“ Bekkjabílar hafa frá því bílar komu til sögunnar í Vestmanna- eyjum verið hluti af þjóðhátíð. Þeim fylgir ákveðin stemmning og fjör en nú er þessum kafla í sögu hátíðar- innar að öllum líkindum lokið. Það er því ekki óeðlilegt að mikil óánægja hefur gert vart við sig á samskiptamiðlum eins og Face- book. Hefur verið stofnuð síða þar inni undir nafninu, Bekkjabíla á þjóðhátíð og hafa yfir 2000 manns lýst yfir ánægju sinni með síðuna á síðasta sólarhring. Einnig hefur verið hrundið af stað undirskriftasöfnun til að þrýsta á lögreglustjóra að breyta ákvörð- uninni um að gefa ekki leyfi fyrir bekkjabílum þetta árið. Nú þegar hafa 1238 skrifað undir og hækkar talan jafnt og þétt. Margir hafa sagt sína skoðun á málinu. Óréttlátt Blaðamaður Eyjafrétta setti sig í samband við Hildi Jóhannsdóttur einn af forsprökkum undir- skriftasöfnuninnar. „Mér finnst þetta óréttlátt. Á sama tíma er verið að leyfa hjólabíla í Reykjavík, heykerrur í Hrísey og háhæla skó á stórum pöllum á Gay pride. Einnig stendur fólk í strætisvögnunum á milli Reykjavíkur og Landeyja- hafnar á 90 kílómetra hraða. Hér er um skemmtileg hefð að ræða sem hefur verið síðan um miðja tuttugustu öld en er nú að hverfa á braut. Geta menn ekki sest niður og komið með hugmyndir að bættu öryggi bekkjabílanna í stað þess að kasta þessu frá sér.“ Sameiginleg niðurstaða lögreglustjóra og Þjóðhátíðarnefndar ÍBV: Fjórir strætisvagnar en engir bekkjabílar :: Undirskriftasöfnun hrundið af stað vegna þess að fólk vill halda í bekkjabílana GÍGja ÓSKarSdÓTTir gigja@eyjafrettir.is Bekkjabílar hafa, frá því bílar komu til sögunnar í Vestmannaeyjum, verið hluti af þjóðhátíð.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.