Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Page 13
13Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júlí 2015
Það sem af er sumri hafa margir
ferðamenn lagt leið sína til Eyja
og lífgar það svo sannarlega upp
á mannlífið í bænum. Eyjamenn
virðast vera almennt mjög
ánægðir með fjölgun ferða-
manna hér í Eyjum en fjölgun
þeirra felur þó í sér það vanda-
mál að erfiðara reynist að
komast með Herjólfi milli lands
og Eyja þar sem margar ferðir
eru uppbókaðar.
Blaðamaður tók stöðuna hjá
nokkrum ferðaþjónustuaðilum
hvernig sumarið hafi gengið hjá
þeim hingað til.
Magnús Bragason
- Hótel Vestmannaeyjar
„Sumarið er búið að vera mjög gott
og það er vel bókað út ágúst. Þó
veðrið sé ekki búið að vera gott, þá
hafa gestir okkar verið ánægðir með
það sem Eyjarnar hafa upp á að
bjóða.
Söfnin okkar fá góða dóma og
veitingastaðirnir okkar eru komnir í
fremstu röð.
Rútuferðir, bátsferðir, hestaferðir
og önnur afþreying er líka vel unnin
af fólki með ástríðu fyrir því sem
þau eru að gera. Það styður okkur
sem erum að selja gistingu og það
hjálpar þeim að gestir vilja dvelja
yfir nótt í Eyjum.“
Magnús segir að mikil aukning
hafi verið hjá þeim á milli ára en ný
álma var opnuð á hótelinu í fyrra og
sé það að skila sér núna. Hann
nefnir einnig að meira sé bókað
fyrir sumarið 2016 en þau hefðu
gert ráð fyrir að væri á þessum
tíma.
Magnús segir vera mikla aukningu
erlendra ferðamanna og gestir sem
áður hafi komið í dagsferð séu nú
að koma og dvelja nótt eða nætur.
„Það hefur verið meira um það hjá
okkur að golfarar eru að koma og
gista, en golfvöllurinn fær mikið lof
þeirra. Íslenskir starfsmanna- og
félagahópar koma svo mikið á vorin
og haustin.“
„Framtíð ferðaþjónustunnar í
Eyjum er björt. Eina verkefnið sem
þarf að leysa eru öruggar sam-
göngur“ segir Magnús að lokum.
Kristín Jóhannsdóttir
- Eldheimar
„Eftir að mesta óvissan með
Landeyjahöfn var liðin fór allt að
gerast hér hjá okkur og það er búið
að ganga mjög vel síðustu vikur“
segir Kristín. Gestirnir sem
heimsækja Eldheima eru að hennar
sögn bæði Íslendingar og erlendir
ferðamenn og eru þeir síðarnefndu
þó heldur fleiri. Hún nefnir einnig
að í Eldheima komi stór hluti þeirra
farþega á skemmtiferðaskipunum,
sem á annað borð fara í land.
Aðspurð um breytingar á milli ára
telur hún að það sé of snemmt að
ræða það. „Hins vegar urðum við
fyrir miklu tekjutapi frá janúar til
maí vegna samgangna.“
Kristín segir Eldheimasýninguna
heafa spurst vel út og telur hún að
kynningarvinnan sé að skila sér.
Einar Björn Árnason
- Einsi kaldi
Einar Björn Árnason á Einsa kalda
segir að sumarið hafi farið nokkuð
hægt af stað og telur hann veðrið
spila þar stóran þátt og leiddi það til
þess að mikið af hópum sem áttu
bókað hafi afbókað. „En júní var
alveg frábær, bæði á veitingastaðn-
um og í veisluþjónustunni,“ segir
Einar. Hann nefnir að viðskipta-
vinirnir séu blanda af heima-
mönnum og íslenskum og erlendum
ferðamönnum.
„Sumarið er afar skemmtilegur
tími hjá okkur og aðalatriðið að fólk
fari ánægt frá okkur“ segir Einar
Björn að lokum.
Aldís Grímsdóttir
- Penninn Eymundsson
Aldís segir mjög mikið vera að gera
í upplýsingamiðsstöðinni í
versluninni. „Hér fyllist allt þegar
Herjólfur kemur en róast svo inn á
milli.“ Hún segir ferðamennina
mikið vera að leita eftir sömu
upplýsingunum og spyrja um
rútuferðir, afþreyingu og matsölu-
staði. Ég held það væri mjög gott
að hafa bækling með öllum
upplýsingum um allt sem hægt er
að gera hér í Eyjum svo ferðamenn
geti nálgast þessar upplýsingar á
sem auðveldastan máta.“
Aldís segir það vera mjög
skemmtilegt að aðstoða ferðamenn
sem koma til Eyja og geri það
starfið mjög fjölbreytt og skemmti-
legt.
Hallgrímur Rögnvaldsson
- Canton
„Við opnuðum mánudaginn sjötta
júlí og það er nánast búið að vera
fullt út úr dyrum síðan þá“ segir
Hallgrímur aðspurður um hvernig
hafi gengið.
Hann segir að gestirnir séu 90%
heimamenn en svo komi túristar inn
á milli. Honum þykir mjög gaman
að heimamenn séu svona duglegir
að koma og borða hjá þeim. „Við
hlökkum bara til framhaldsins og
vonum að það verði áfram eins gott
að gera eins og hefur verið fyrstu
vikuna“ segir Hallgrímur.
Hilmar Kristjánsson
- Rib safari
Hilmar segir að það sé búið að vera
frekar rólegt hjá Rib safari það sem
af er sumri og sé það helst veðrinu
sem hægt sé að kenna um það.
„Fólk vill ekki fara í ferðir í roki og
rigningu heldur í góðu veðri og því
miður hafa góðviðrisdagarnir ekki
verið mjög margir það sem af er
sumri“ segir Hilmar.
Breyting á milli ára er ekki mikil
að sögn Hilmars þar sem seinasta
sumar hafi heldur ekki verið mjög
gott veðurfarslega séð.
Svava Gunnarsdóttir
- Gistihúsið Hamar
„Það er búið að vera mjög gott og
mikið af bókunum það sem eftir
lifir af sumri.“
Svava segir aukningu vera á milli
ára en þetta er fjórða sumarið hjá
fjölskyldunni með gistiheimilið.
„Sama fólkið kemur aftur til okkar
og lætur svo ættingja og vini vita af
okkur sem er alveg frábært.“
Svava segir að þó það sé mikið að
gera hjá þeim þá gæti verið enn
meira að gera ef þessir biðlistar og
óvissa væri ekki til staðar hjá
Herjólfi.
„Þetta fær fólk til að hætta við því
það vill vera öruggt með sitt
sumarfrí. Það er mikið um það að
fólk panti gistingu, það hringir svo
aftur og lætur vita að það sé fullt
með Herjólfi og hættir við. Er ekki
kominn tími til að tengja okkur við
Ísland skammarlaust og geta boðið
upp á öruggar siglingar bæði fyrir
okkur sem búum hér í Eyjum og
okkar gesti?“ segir Svava.
Ferðaþjónustan :: Mikill straumur frá byrjun júní :: Ánægja með stöðuna í dag:
Söfnin okkar fá góða dóma
og veitingastaðirnir okkar
eru komnir í fremstu röð
:: Rútuferðir, bátsferðir, hestaferðir og önnur afþreying er líka vel unnin af fólki með
ástríðu, segir Magnús Bragason á Hótel Vestmannaeyjum
ÁSTa SiGrÍður GuðjÓnSdÓTTir
asta@eyjafrettir.is