Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Side 14

Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Side 14
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júlí 2015 Meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja lauk á laugar- dag. Meistaramótið er fjögurra daga mót, flokkaskipt, og leikur hver flokkur fjóra 18 holu hringi að öldugaflokkum undan- skildum en þeir leika þrjá hringi. Keppni í barna- og unglinga- flokkum fór fram á mánudag og þriðjudag í síðustu viku og verðlaun í þeim flokkum voru veitt á miðvikudaginn var. Alls skráðu sig 65 kylfingar til keppni í fullorðinsflokkum að þessu sinni og er það svipaður fjöldi og undanfarin ár. Veður var þokkalegt alla dagana, reyndar nokkur strekkingur á fimmtudag og föstudag og lítils háttar regnúði á laugardag. Verðlaunaafhending fór fram í Golfskálanum eftir síðasta hringinn á laugardag. Meistaraflokkur karla Í meistaraflokki leika þeir sem eru með 5 í forgjöf eða lægra. Níu hófu keppni og átta sem luku henni. Örlygur Helgi Grímsson vann titilinn nú í 12. sinn og nálgast met Sveins Ársælssonar sem vann 14 sinnum. Örlygur lék vel alla dagana, 73 – 67 – 72 – 70 eða samtals 282 högg og var með 11 högga forystu í lokin. Þrír efstu voru þessir: 1. Örlygur Helgi Grímsson .... 282 h 2. Jón Valgarð Gústafsson ...... 293 h 3. Gunnar Geir Gústafsson ..... 303 h 1. flokkur karla Í 1. flokki leika þeir sem eru með forgjöf milli 5 og 10 og voru það níu kylfingar sem allir luku leik. Þar var Brynjar Smári Unnarsson með nokkuð trygga forystu allan tímann en síðasta daginn hljóp spenna í leikinn, þá saumaði ungur og efnilegur kylfingur, Lárus Garðar Long, að honum og var munurinn aðeins tvö högg þegar upp var staðið. Þessi urðu úrslit: 1. Brynjar Smári Unnarsson ... 309 h 2. Lárus Garðar Long ............. 311 h 3. Arnsteinn I. Jóhannesson ... 316 h 2. flokkur karla Í 2. flokki leika þeir sem eru með forgjöf milli 10 og 18, voru ellefu talsins og luku allir leik. Þar komu ungir og efnilegir kylfingar hvað mest við sögu, piltar sem hafa lagt mikla rækt við æfingar og eru nú að uppskera samkvæmt því. Þrír efstu urðu þessir: 1. Nökkvi Snær Óðinsson ...... 329 h 2. Jörgen Freyr Ólafsson ........ 334 h 3. Sigurður Óli Guðnason ...... 342 h 3. flokkur karla Þessi flokkur var fámennastur í mótinu, aðeins fjórir keppendur en í 4. flokki leika þeir sem eru með 18 og hærra í forgjöf. Þar hafði Sigurjón Birgisson nokkra yfirburði allt frá byrjun þrátt fyrir að vera með hæstu forgjöfina í hópnum. 1. Sigurjón Birgisson ............. 379 h 2. Kristján Hauksson .............. 386 h 3. Kristófer Helgi Helgason ... 386 h Öldungaflokkur karla (55 – 69 ára) Þetta var fjölmennasti flokkurinn á mótinu, nítján gamalreyndir kappar hófu keppni en einn heltist úr lestinni. Í öldungaflokkum er keppt bæði með og án forgjafar og spilaðir þrír hringir. Þessi urðu úrslit með forgjöf: 1. Kristján Gunnar Ólafsson .. 207 h 2. Þórður H. Hallgrímsson ..... 212 h 3. Viðar Elíasson .................... 214 h Í keppni án forgjafar: 1. Sigurjón Pálsson................. 240 h 2. Magnús Þórarinsson ........... 246 h 3. Ásbjörn Garðarsson ........... 248 h Öldungaflokkur karla (70 ára og eldri) Sex keppendur voru skráðir til leiks í þessum flokki og fimm sem luku leik. Í þessum flokki er einnig keppt með og án forgjafar og leiknir þrír hringir. Þessi urðu úrslit með forgjöf: 1. Sigurgeir Jónsson ............... 240 h 2. Sigurður Guðmundsson ..... 253 h 3. Gísli H. Jónasson ............... 255 h Í keppni án forgafar: 1. Sigurður Guðmundsson ..... 274 h 2. Sigurgeir Jónsson ............... 288 h 3. Gísli H. Jónasson ............... 303 h Kvennaflokkur Í raun ætti að keppa flokkaskipt hjá konunum í meistaramóti, eins og hjá körlunum en sökum þess hve fáar konur skrá sig alla jafna í þetta mót, hefur sá háttur verið á hafður að hafa aðeins einn flokk og leika fjóra hringi með og án forgjafar. Sex konur mættu til leiks og luku allar leik, þar af þrjár systur sem ekki eiga langt að sækja golfhæfi- leikana, Alda, Hrönn og Katrín, dætur þeirra Harðar Jónssonar og Sjafnar Guðjónsdóttur sem bæði eru látin fyrir nokkrum árum. Reyndar voru systkinin fjögur talsins, þar sem Eyþór bróðir þeirra keppti í 1. flokki karla. Þessi urðu úrslit með forgjöf: 1. Katrín Harðardóttir ............. 286 h 2. Alda Harðardóttir ............... 291 h 3. Guðmunda Á Bjarnadóttir .. 319 h Í keppni án forgjafar: 1. Katrín Harðardóttir ............. 362 h 2. Alda Harðardóttir ............... 375 h 3. Katrín Lovísa Magnúsd. ..... 421 h Katrín Harðardóttir er því Vestmannaeyjameistari kvenna 2015 en hún vann þann titil einnig í hitteðfyrra. Eins og sjá má af skorinu hafði hún talsverða yfirburði, lék sérstaklega vel tvo seinni dagana og lækkaði forgjöfina sína verulega í þessu móti. Barna- og unglingaflokkar Eins og áður segir var keppt í barna- og unglingaflokkum á mánudag og þriðjudag í síðustu viku. Í drengjaflokki 14 ára og yngri voru leiknir tveir 12 holu hringir í höggleik og þessir efstir: 1. Kristófer Tjörvi Einarsson 94 h 2. Andri Steinn ....................... 124 h 3. Andri Kristinsson ............... 127 h Í peyjaflokki voru leiknir tveir sex holu hringir í stigakeppni og þessir efstir: 1. Karl Jóhann .......................24 stig 2. Daníel Frans ......................24 stig 3. Andri Snær ........................22 stig Í stúlknaflokki voru einnig leiknir tveir sex holu hringir í stigakeppni og þessar efstar: 1. Amelía ...............................20 stig 2. Erika ..................................14 stig 3. Rebekka .............................13 stig Íslandsmót eldri kylfinga í Eyjum Í þessari viku verður Íslandsmót eldri kylfinga haldið í Vestmanna- eyjum. Þetta er þriggja daga mót sem hefst á fimmtudag og lýkur á laugardag. Alls eru 130 kylfingar skráðir til leiks, þar af 13 úr GV. Nánar verður greint frá mótinu í næsta tölublaði Eyjafrétta. Golf | Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja: Örlygur Helgi og Katrín Harðardóttir Vestmannaeyjameistarar GV 2015 :: Brynjar Smári meistari í 1. flokki :: Sigurjón Pálsson og Sigurður Guðmundsson öldungameistarar. Örlygur Helgi Grímsson og Katrín Harðardóttir Vestmannaeyjameistarar GV 2015. Verðlaunahafar á meistaramóti GV 2015.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.