Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2015, Síða 16
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19
Vikutilboð
SuShi frá osushi
Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30
Tökum niður pantanir !
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
Á morgun, fimmtudaginn 16. júlí,
kl. 17:00 verður sýningin Konur
opnuð í Einarsstofu í tilefni af 100
ára kosningaafmæli kvenna í ár.
Þetta er samsýning kvenna í
Myndlistarfélagi Vestmannaeyja.
Sýningin verður opin alla daga frá
10:00 til 17:00 og stendur til
miðvikudagsins 29. júlí 2015.
„Það stefnir í að 17 konur úr
Myndlistarfélaginu haldi samsýningu
í Einarsstofu sem við köllum Konur í
tilefni af því að 100 ár síðan konur
fengu kosningarétt. Myndirnar eru
jafn fjölbreyttar og konurnar eru
margar. Yngsti sýnandinn er sex ára
og sú elsta er komin yfir 70 árin,“
sagði Laufey Konný Guðjónsdóttir,
einn stofnenda félagsins.
Félagið var stofnað þann 30. apríl
2009. Stofnfélagar voru Laufey
Konný, Sigrún Þorsteinsdóttir,
Kristín Garðarsdóttir, Bergljót
Blöndal, Jónína Björk Hjörleifsdóttir,
Elín Egilsdóttir, Hólmfríður
Sigurðardóttir og Lilja Þorsteins-
dóttir.
„Í dag eru félagsmenn um 29 talsins,
og konur í meirihluta. Við höfum
flest árin frá því félagið var stofnað
haldið eina samsýningu á hverju ári,
bæði þemasýningar sem og með
frjálsu vali,“ sagði Laufey Konný.
Auk hennar sýna Sigrún Þorsteins-
dóttir, Bjartey Gylfadóttir, Bryn-
hildur Friðriksdóttir, Kristín
Garðarsdóttir, Yvonne Kristín
Nielsen, Jóhanna Kristín Júlíusdóttir,
Jóhanna Gunnarsdóttir, Sigríður
Margrét Friðþjófsdóttir, Steinunn
Einarsdóttir, Guðný Stefnisdóttir
Jónína Björk Hjörleifsdóttir, Bergljót
Blöndal, Þuríður Georgsdóttir, Erna
Ingólfsdóttir, Lilja Þorsteinsdóttir og
Elísabet Hrefna Sigurjónsdóttir.
„Einnig er mynd eftir dóttur
Bjarteyjar, hana Bjartey Ósk
Sæþórsdóttur sem fæddist daginn
eftir að Myndlistarfélagið var
stofnað,“ sagði Laufey Konný að
lokum.
Myndlistarfélag Vm. :: Sýning opnuð í Einarsstofu
á morgun:
Eyjakonur sam-
einast í einni
sýningu – Konur
:: Tilefnið 100 ára kosningaafmæli kvenna í ár
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Aftari röð: Sigrún, Laufey Konný, Bergljót, Steinunn, Sigríður Margrét og Jóhanna Kristín. Fremri röð:
Jóhanna, Erna og Yvonne Kristín
15. til 21. júlí 2015
Lotus wc pappír royale 16 rl
verð nú kr 1198,-
verð áður kr 1398,-
Nippon súkkulaðikex
verð nú kr 388,-
verð áður kr 468,-
Edet eldhúsrúllur 4 stk
verð nú kr 698,-
verð áður kr 878,-
Maryland kex
verð nú kr 158,-
verð áður kr 198,-
Bonduelle maiscorn
verð nú kr 238,-
verð áður kr 298,-
SS Lambalæri frosið
verð nú kr/kg 1398,-
verð áður kr 1688,-