Fréttir - Eyjafréttir - 29.03.2017, Page 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. mars 2017
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Matgæðingur vikunnar
Landakirkja
Fimmtudagur 30. mars
Kl. 20.00 Æfing hjá kór Landa-
kirkju.
Föstudagur 31. mars
Kl. 10.00 Mömmumorgunn í
Safnaðarheimili Landakirkju.
Kl. 12.00 Aðalfundur KFUM&K í
Vestmannaeyjum í fundarherbergi.
Sunnudagur 2. apríl. 5. sunnu-
dagur í föstu.
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli með
söng, sögu og miklu fjöri.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta. Sr.
Guðmundur Örn prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Landakirkju syngur
undir stjórn Kitty Kovács.
Kl. 20.00 Æskulýðsfundur hjá
ÆsLand, Æskulýðsfélagi Landa-
kirkju og KFUM og K í Vestmanna-
eyjum.
Mánudagur 3. apríl
Kl. 15.30 STÁ (6-8 ára).
Kl. 18.30 12 spora fundur Vina í
bata. Byrjendahópur.
Kl. 20.00 12 spora fundur Vina í
bata. Framhaldshópur.
Þriðjudagur 4. apríl
Kl. 10.00 Kaffistofan. Létt spjall
um allt og ekkert. Allir velkomnir.
Kl. 14.00 ETT (11-12 ára).
Kl. 17.00. Æfing fyrir fermingu
þann 9. apríl
Kl. 20.00 Samvera Kvenfélags
Landakirkju í Safnaðarheimilinu.
Kl. 20.00 Opið hús í KFUM og K
heimilinu Vestmannabraut. Gengið
inn af Fífilgötunni.
Miðvikudagur 5. apríl
Kl. 10.00 Bænahópurinn með
samveru í fundarherbergi Landa-
kirkju.
Kl. 11.00 Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 16.00 NTT (9-10 ára).
Kl. 17.30 Alzheimer samvera.
Kl. 20.00 Aglowfundur í Safnaðar-
heimilinu.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00
Guð er ekki dáinn, biblíulestraröð
10:10 „Lifandi sönnun.“
Föstudagur kl. 14:00 Bænastund.
Föstudagur kl. 20:30
Opinn AA-fundur.
Sunnudagur kl. 13:00
Samkoma, ræðumaður Lilja Óskars-
dóttir. Kaffi og spjall eftir á.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
Það yrði mér mikill
heiður að fá að spila
með íslenska landsliðinu
Markvörður karlaliðs ÍBV, Stephen
Nielsen, hefur átt hvern stórleikinn
á fætur öðrum síðan hann kom til
baka í liðið eftir lánsdvöl í Frakklandi
fyrir áramót. Í síðustu viku varði
hann til að mynda heil 25 skot
þegar ÍBV lagði Hauka eftirminni-
lega með 17 marka mun. Í dag eru
Eyjamenn á toppi Olís-deildarinnar
og er það ekki síst markverðinum
knáa að þakka. Stephen er Eyja-
maður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Stephen Nielsen.
Fæðingardagur: 2. april 1985.
Fæðingarstaður: Hróaskelda í
Danmörku.
Fjölskylda: Kona og barn.
Draumabíllinn: Alltof margir til að
velja bara einn.
Uppáhaldsmatur: Mexíkóskur og
indverskur matur.
Versti matur: Ég veit það ekki,
mér finnst flestur matur góður.
Uppáhalds vefsíða: www.
allblacks.com.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Mér líkar flest öll tónlist og
er það misjafnt hvað virkar hverju
sinni. Aðallega er það þó hip/hop
og rokk.
Aðaláhugamál: Aðallega handbolti
og rugby en svo bara íþróttir yfir
höfuð og svo tónlist og saga.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Ég myndi gjarnan vilja hitta eina af
mínum helstu fyrirmyndum í
íþróttum, Jonathan „Tana“ Umaga,
fyrrverandi fyrirliða Nýsjálenska
rugby liðsins New Zealand All
Blacks. Hann veitir manni sannar-
lega innblástur bæði utan sem innan
vallar og virkar sem náungi sem
maður gæti lært mikið af.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Peter Gentzel, Tana
Umaga og Richie McCaw.
Uppáhalds íþróttafélag er New
Zealand All Blacks.
Ertu hjátrúarfull/ur: Já, ætli það
ekki.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Já, ég spila handbolta, þrátt fyrir að
einhverjir af liðsfélögum mínum
segja að markverðir hreyfi sig ekki
mjög mikið. Einnig spila ég rugby á
sumrin eins mikið og ég kemst upp
með.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi
á allt frá Designated Survivor til
The Walkin Dead. Ég horfi í raun á
allt sem er þessi virði að horfa á.
Þið unnuð núna síðast Haukana
með 17 mörkum, hvernig var
tilfinningin eftir þann leik:
Andrúmsloftið í klefanum eftir leik
var virkilega gott. Það er frábært að
ná svona sigri en við vitum allir að
þetta var bara einn leikur og það er
langur vegur framundan ef við
ætlum okkur að komast á þann stað
sem við viljum í lok tímabils.
ÍBV hefur ekki tapað leik á árinu
og á góða möguleika að vinna
deildina. Er nokkuð annað sem
kemur til greina: Á þessum
tímapunkti erum við einungis að
einbeita okkur að því að bæta okkur
í hvert skipti sem við förum út á
völlinn. Augljóslega viljum við
vinna alla titla sem í boði eru en
núna er allur okkar fókus á að bæta
okkur og klára þá leiki sem eru
framundan frekar en að hugsa út í
hvar við getum mögulega endað.
Nú hefur þú verið að verja um og
yfir 20 skot í leik síðan þú komst
aftur frá Frakklandi. Er ekki
landsliðssæti eitthvað sem þú
stefnir á: Það yrði mér mikill
heiður og forréttindi að fá að spila
með íslenska landsliðinu. Núna er
ég fyrst og fremst að einbeita mér
að því að spila vel fyrir ÍBV, það
eina sem ég hef stjórn á er að gefa
mitt allt í hvern leik fyrir sig og
einbeita mér að því verkefni sem er
fyrir framan mig hverju sinni.
Framhaldið kemur svo í ljós.
Stephen Nielsen
er Eyjamaður vikunnar
Ég þakka Jóhanni Inga kærlega fyrir
áskorunina og ætla að bjóða upp
grillkjöt meistarans.
1 kíló nautalund.
Salt & nýmalaður svartur pipar.
Salat: Nei takk!
Köld E. FINNSON piparsósa.
Fetaostur.
Hendið þessu í grillið, tvær mínútur
hvora hlið. Krydda vel báðar hliðar
og ég segi það og skrifa, þessi
aðferð er algjörlega skotheld,
nautalundin verður fullkomlega
grilluð á þennan hátt!
Með kjötinu er rosalega gott að
skola þessu niður með heimabrugg-
uðu rauðvíni.
Ég skora á frænku mína Höllu Björk
Jónsdóttir sem næsta matgæðing
Grillkjöt meistarans
Birgir Davíð Óskarsson
er matgæðingur vikunnar
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Fyrir nokkrum árum komu
fjölmargir Vestmannaeyingar saman
á Stakkó til að mótmæla ófremdar-
ástandi því sem ríkti í heilbrigðis-
málum okkar Eyjamanna. Þessi
mótmæli áttu fyllilega rétt á sér
enda var margt í megnasta ólestri
og full ástæða til þess að mótmæla
ástandinu og setja fram kröfur um
umbætur. Í mótmælunum bar mest
á hetjulegri framgöngu margra
forystumanna Sjálfstæðisflokksins í
bænum og í máli sínu hlífðu þeir
ekki ríkisstjórninni sem þá sat við
völd. Stór orð fuku enda málið
grafalvarlegt.
En hvað hefur síðan gerst? Ég held
að fullyrða megi að ekkert hafi gerst
og enn búum við hér við allsendis
ófullnægjandi heilbrigðisþjónustu.
Hér þarf ekki að tíunda frekar þá
ömurlegu stöðu sem heilbrigðismál
okkar eru í, hún er okkur öllum
kunn og er til háborinnar skammar.
Frá því að boðað var til mótmæl-
anna á Stakkó hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn verið ráðandi í tveimur
ríkisstjórnum og m.a. sérstaklega
farið með heilbrigðismálin í
landinu. Þeir sem hæst töluðu í
mótmælunum hafa einhverra hluta
vegna hvorki haft hátt síðan né
mótmælt framkomu stjórnvalda nú
eins kröftuglega og sköruglega sem
þá. Þeim ætti hins vegar að vera
auðveldara nú en fyrr að ná eyrum
ráðamanna þar sem flokkssystkini
þeirra fara nú með völdin í landinu.
Nú er lag.
Ég legg því til að það ágæta fólk
sem fór með eldmóðinn að vopni á
mótmælafundinn á Stakkó hér um
árið sjái til þess að enn á ný verði
haldinn fundur á Stakkó. Þar mætti
endurtaka ummælin sem þá voru
höfð uppi og jafnvel gefa í ef
eitthvað er. Ég er meira en til í að
mæta eins og þá og ég er viss um að
fleiri eru til. Slagorðið á fundinum
gæti verið: „Ríkisstjórn Íslands,
burt með lítilsvirðingu ykkar
gagnvart heilbrigðismálum
Vestmannaeyinga.“
Burt með lítilsvirðinguna
ragnar Óskarsson
Ég legg því til að það
ágæta fólk sem fór
með eldmóðinn að
vopni á mótmæla-
fundinn á Stakkó hér
um árið sjái til þess
að enn á ný verði
haldinn fundur á
Stakkó. Þar mætti
endurtaka ummælin
sem þá voru höfð
uppi og jafnvel gefa í
ef eitthvað er.
”