Fréttir - Eyjafréttir - 29.03.2017, Síða 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. mars 2017
Páll Magnússon er fyrrverandi
fjölmiðlamaður og útvarpsstjóri.
Páll eða Palli Magg eins og hann
er kallaður er uppalinn í Eyjum
en segist því miður hafa fæðst í
Reykjavík. Faðir Páls var Magnús
H. Magnússon bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum og síðar
þingmaður og ráðherra Alþýðu-
flokksins. Það kom því mörgum
í opna skjöldu þegar Páll bauð
sig fram til Alþingis fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Páll náði góðum
árangri og er nú fyrsti þingmað-
ur Suðurkjördæmis.
Eins og maður hafi
aldrei farið
Hver er Páll Magnússon? ,,Ja,
stutta svarið er náttúrulega bara
Eyjapeyi. Ég hef lengi verið þeirrar
skoðunar að heimili manns sé þar
sem hjartað er en ekki þar sem
hatturinn er eins og segir í dægur-
laginu. Ég hef alltaf sótt mikið til
Eyja. Kom heim að vinna öll
sumrin eftir að ég fór í nám í
Reykjavík og þar til ég fór í þriggja
ára útlegð til Svíðþjóðar. Þar lærði
ég stjórnmálasögu og stjórnmála-
fræði. Árin sem ég var í Svíþjóð
kom ég ekkert heim, hafði ekki efni
á því, en vann bara þar úti á
sumrin.“
,,Æskuslóðirnar heima í Eyjum og
uppeldið mótuðu mig,“ segir Páll
og bætir við að hann komi nú æ
oftar til Eyja og stoppi þar lengur.
,,Það er sérkennileg og skemmtileg
upplifun að finnast eins og maður
hafi aldrei farið neitt, maður tekur
bara þráðinn upp aftur. Í Eyjum eru
ræturnar,“ segir Páll með dreym-
andi augu.
Áður en Páll flutti til Svíþjóðar
1975 eignaðist
hann dótturina Eir
með fyrri konu
sinni og síðar
eignuðust þau aðra
dóttur, Hlín. Með
núverandi eigin-
konu sinni, Hildi
Hilmarsdóttur, á
Páll dótturina Eddu
Sif og soninn Pál
Magnús. Barna-
börnin eru fimm
talsins. Að loknu
námi í Svíþjóð
kenndi Páll einn
vetur í Þinghólsskóla í Kópavog og
annan í Fjölbraut í Breiðholti og
réði sig svo sem blaðamann á Vísi.
Lét bara vaða og bauð
sig fram
,,Ég hef verið alla mína hundstíð í
fjölmiðlum fyrir utan tvö ár eða svo
þegar ég vann hjá Íslenskri
erfðagreiningu sem framkvæmda-
stjóri upplýsinga- og samskipta-
sviðs. Ætlaði þá að kveðja fjöl-
miðlabransann sem ég hafði starfað
í frá því er skóla lauk, en hann
togaði í mig aftur. Það er mín
reynsla og margra annarra að eftir
langvarandi hark í fjölmiðlum þá
virka önnur störf fremur daufleg og
tilbreytingalítil. Ég sogaðist inn í
þetta aftur og hef verið í fjölmiðla-
tengdum störfum þar til ég sneri við
blaðinu núna,“ segir Páll.
Páll var hvattur til þess að bjóða
sig fram til Alþingis og hlutirnir
gerðust hratt í framhaldinu. ,,Ég
held því fram að allar mikilvægustu
ákvarðanirnar í lífinu taki maður
eftir tilfinningu en ekki eftir
útpældri rökhyggju eða útreikn-
ingum. Ég var með í höndunum
mjög álitlegt tilboð um spennandi
og skemmtilegt fjölmiðlastarf, en
ákvað að ögra sjálfum mér einu
sinni enn. Klukkutíma áður en
framboðsfrestur í prófkjörinu rann
út ákvað ég að láta vaða og bauð
mig fram.“
Samfylkingin langt frá
Alþýðuflokki föður míns
Hvers vegna bauð Páll sig fram
fyrir Sjálfstæðisflokkinn alinn upp á
krataheimili? ,,Það eru eiginlega
tvö svör við þessu. Í fyrsta lagi
hefur Sjálfstæðisflokkurinn um
áratuga skeið staðið næst mínum
stjórnmálaskoðunum. Ég hef að
vísu alltaf verið í þannig störfum að
ég hef þurft að halda mínum
stjórnmálaskoðunum nánast
leyndum, eða bara fyrir sjálfan mig
og mína nánustu. Og hafi það
komið einhverjum á óvart að ég
bauð mig fram fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn bendir það til að mér hafi
bara tekist það bærilega!“
Páll heldur áfram: ,,Í öðru lagi
gerðu sumir ráð fyrir því að ég
hefði sömu
stjórnmálaskoðun
og pabbi minn. Ég
hef ég haldið því
fram, mörgum
Samfylkingar-
mönnum til óyndis
nokkurs, að ef karl
faðir minn hefði
verið að velja sér
flokk í dag þá hefði
hann ekki valið
flokk á borð við
þann sem Sam-
fylkingin er núna.
Það er nefnilega
skoðun mín að Alþýðuflokkurinn
sem faðir minn tilheyrði sé býsna
langt frá þeirri Samfylkingu sem nú
segist vera flokkur íslenskra
jafnaðarmanna. Það á auðvitað ekki
að gera látnu fólki upp skoðanir en
ég tel líklegt að faðir minn hefði
arkað sömu leið og ég við nú-
verandi aðstæður í íslenskri
flokkapólitík.“
Skotlistinn á teikniborðinu
Þingmenn Suðurkjördæmis reyndu í
tvígang að heimsækja Eyjar í
síðustu kjördæmaviku en það tókst
ekki vegna samgangna. Páll sem
fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis
segist hafa lagt mikla áherslu á að
Páll Magnússon fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis í Alþingisgarðinum. Ljósmynd Hákon Broder Lund
Kosningasigri fagnað í Ásgarði, Hildur Hilmarsdóttir, Edda Sif,
Páll og Páll Magnús.
Náttúrulega
bara Eyjapeyi
Ég held því fram að allar mikilvægustu
ákvarðanirnar í lífinu taki maður eftir
tilfinningu en ekki eftir útpældri rökhyggju
eða útreikningum. Ég var með í höndunum
mjög álitlegt tilboð um spennandi og
skemmtilegt fjölmiðlastarf, en ákvað
að ögra sjálfum mér einu sinni enn.
Klukkutíma áður en framboðsfrestur
í prófkjörinu rann út ákvað ég að láta
vaða og bauð mig fram.
”
guðrún ErlingSdÓttir
frettir@eyjafrettir.is