Fréttir - Eyjafréttir - 29.03.2017, Page 9
9Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. mars 2017
fara til Eyja þrátt fyrir að kjör-
dæmaviku væri lokið. ,,Full sátt var
meðal þingmanna Suðurkjördæmis
um að fara til Eyja sem við og
gerðum 10 dögum seinna. Ég legg
á það áherslu að við, þessir 10
þingmenn Suðurkjördæmis, tökum
þau mál sem þverpólitísk samstaða
ríkir um og vinnum þau saman.
Hvert í sínum þingflokki og hvert í
sinni þingnefnd. Við eigum að geta
unnið sameiginlega að mörgum
úrlausnarefnum fyrir kjördæmið og
þannig sett meiri þyngd á bak við
þau en ef við værum að potast hvert
í sínu horni“.
Páll segir að næst á döfinni sé að
kalla saman þingmenn Suðurkjör-
dæmis. ,,Þar förum við yfir
niðurstöðurnar úr þessum heim-
sóknum okkar og samræðum við
heimamenn og búum okkur til
skotlista yfir helstu úrlausnarefni á
þeim grundvelli. Síðan reynum við
sameiginlega að þoka þessum
málum til viðunandi niðurstöðu á
kjörtímabilinu.“ Spurður hvort þetta
sé ný nálgun, svarar Páll. ,,Ég hef
ekki samanburð en eftir því sem ég
best veit var þetta ekki unnið svona
á síðasta kjörtímabili.“
Skóla- og löggæslumál í lagi,
heilbrigðisþjónusta og
samgöngur ekki
,,Í Eyjum eru fyrst og fremst fjórir
snertipunktar á milli bæjarins og
ríkisins. Skólamál sem snúa að
framhaldsskólastiginu, löggæslu-
mál, samgöngumál og heilbrigðis-
þjónusta. Ég held að í öllum
meginatriðum séu löggæslu- og
skólamál í lagi.“ Áfram heldur Páll
alvarlegur: ,,Heilbrigðisþjónustan er
hins vegar fjarri því að vera í lagi.
Hún hefur snarversnað á síðustu
árum og sameiningin í Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands 2014 hefur
ekkert hjálpað í þeim efnum; raunar
síður en svo.“
,,Við þekkjum öll umræðuna um
fæðingarþjónustuna. Það liggur
fyrir það álit sérfræðinga að með
tilliti til allra aðstæðna og öryggis-
sjónarmiða beri að halda hér úti
fæðingarþjónustu á svokölluðu
,,C1'“ stigi samkvæmt flokkun
Landlæknis og haga mönnun
skurðstofu samkvæmt því. Þetta er
ekki gert og því miður virðist vera
takmarkaður vilji hjá yfirstjórn-
endum Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands til að ráða bót á þessu.
Þetta mál verður þá að takast upp á
hinum pólitíska vettvangi því það er
auðvitað óboðlegt að bæjarfélag á
borð við Vestmannaeyjar skuli búa
við miklu lakari heilbrigðisþjónustu
en raunin var bara fyrir nokkrum
árum - og það öryggisleysi sem því
fylgir.“
Úrbætur þangað til nýja
ferjan kemur
,,Nú hafa menn ýmsar skoðanir á
Landeyjahöfn og hvort bíða hefði
átt með smíði ferjunnar þar til búið
væri að leysa vandamálin með
höfnina og þar fram eftir götunum.
En við verðum alltaf að reyna að
spila sem best úr þeirri stöðu sem
við erum í á hverjum tíma - og hér
erum við; nýja ferjan kemur á næsta
ári, sem betur fer tókst að tryggja
það í gildandi fjárlögum, og við
sjáum svo hvernig hún spilar með
höfninni,“ segir Páll og bætir við:
,,Það verður hins vegar að halda
áfram að bæta höfnina til þess að
upphafleg markmið um samgöngu-
bætur standist. “
,,Það eru hins vegar nokkrir hlutir
í samgöngumálum sem þola enga
bið og þarfnast lagfæringar strax.
Það verður að auka ferðatíðnina -
sérstaklega yfir sumartímann og
þegar Landaeyjahöfn er opin. Það
er ekki hægt að láta skipið liggja
lungann úr deginum við bryggju
þegar fullt af fólki er að bíða eftir
ferðum. Það þarf að auka ferðatíðn-
ina strax í sumar og þoka málum í
þá átt að jafna fargjöld. Eins og
þetta er núna þá margfaldast
kostnaður þeirra sem þurfa að koma
og fara frá Eyjum við það að
Landeyjahöfn verði ófær og siglt er
í Þorlákshöfn.“
Páll heldur áfram með þunga í
röddinni: ,,Það kostar langleiðina í
30 þúsund kall fyrir fólk að fara
með tvö börn og bíl, það er
algjörlega fáránlegt. Það er hægt að
fljúga til London fyrir sama pening.
Það er verið að refsa fólki tvöfalt
þegar ekki er hægt að sigla í
Landeyjahöfn, gera ferðalagið
erfiðara og margfalt dýrara.“
Öryggi Eyjamanna minnst
á landinu
Páll er hugsi smá stund en segir svo
,,Þegar þú leggur saman þessa
samgöngulegu og veðurfarslegu
þætti við stöðuna á spítalanum í
Vestmanneyjum - og staðsetningu
sjúkraflugvélar á Akureyri - þá er ég
alveg klár á því að þegar upp koma
slys og bráðaveikindi er öryggi íbúa
minnst í Vestmannaeyjum á öllu
landinu. Það verður að bæta úr
þessu,“ segir fyrsti þingmaður
Suðurkjördæmis
alvarlegur í bragði.
Samfélagssátt
um afgjald
af auðlindum
Hvaða skoðun
hefur fyrsti
þingmaður
Suðurkjördæmis á
auðlindagjaldi í
sjávarútvegi? ,,Um
sjávarútveginn vil
ég segja að
núgildandi
aflamarkskerfi er í
öllum aðalatriðum
mjög gott. Það
tryggir sjálfbæra nýtingu á
auðlindinni og hámarkar arðsemina
af henni fyrir þjóðina í heild. Við
þurfum hins vegar að ná sem mestri
samfélagslegri sátt um það hvernig
afgjaldi fyrir afnot af auðlindinni
skuli háttað. Núverandi veiðileyfa-
gjald er ekki heilagt í mínum huga;
við verðum bara að gæta þess að
gjaldtakan minnki ekki heildar-
arðsemina í greininni. Við erum að
mörgu leyti með besta og arðsam-
asta sjávarútveg í heimi og þurfum
að tryggja að svo verði áfram.“
Órjótandi möguleikar,
að því gefnu að samgöngur
séu í lagi
Nú er Páll komin á flug. ,,Af því að
við erum að tala um Eyjar í
samhengi við gjaldeyrisöflun þá
held ég fáir staðir á Íslandi séu
betur settir í því samhengi. Við
erum sennilega sterkasta sjávarút-
vegspláss á landinu, miðað við
margumtalaða höfðatölu, og við
erum með sum af glæsilegustu
fyrirtækjum landsins í þeim geira
staðsett í Vestmannaeyjum. Og
möguleikar okkar í ferðaþjónustu
eru nánast óþrjótandi að því gefnu
að samgöngur séu í lagi”.
Áfram heldur Páll og er heitt í
hamsi: ,,Stór hluti af þeim tveimur
milljónum ferðamanna sem koma
til landsins árlega aka framhjá
afleggjaranum niður í Landeyja-
höfn. Stóran hluta af árinu er
enginn valkostur fyrir ferðamenn að
taka hægri beygjuna niður í Herjólf
og búa sér til
dagsferð eða lengri
til Eyja. Þorláks-
höfn er ekki
valkostur í þessu
samhengi. Þegar
Landeyjahöfn er
opin þarf að auka
tíðni ferða. Skipið
þarf að ganga
stöðugt fram og til
baka eins og ferjur
gera víðast hvar.
Þær standa ekki
bundnar við bryggju
lungann úr deginum
eins og gerist meira
að segja yfir
hábjargræðistímann á sumrin flesta
daga í Eyjum.“
,,Með þeim samgöngubótum sem
fyrirhugaðar eru verður hægt að
margfalda umfangið við móttöku
ferðamanna. Þegar við horfum fram
á veginn þá felast vaxtarmöguleikar
Vestmannaeyja í móttöku ferða-
manna annars vegar og vaxandi
þróunarstarfi og nýsköpun í
sjávarútvegi hins vegar. Þetta tvennt
kemur til með að bera Vestmanna-
eyjar uppi tekjulega og atvinnulega
næstu áratugina, að því gefnu að
samgöngur verði í lagi,“ segir Páll
Magnússon.
Langt frá hugmynd að
framkvæmd
Páll var kosinn á þing í lok október
á síðasta ári. Það tók nokkurn tíma
að ná saman ríkisstjórn og því hefur
Páll í rauninni ekki setið við
eiginleg þingstörf nema í þrjá
mánuði eða svo. ,,Þingstörfin
leggjast að flestu leyti vel í mig.
Það er skemmtileg ögrun svona
seint á starfsævinni að fara úr
einhverju sem maður er búinn að
gera alla starfsævina og vinda sér
yfir í allt annað. Það má kannski
segja að ég hafi að sumu leyti verið
óbeinn þátttakandi í íslenskri póltík
sem fjölmiðlajaxl. En þetta er
spennandi og öðruvísi en ég hef átt
að venjast“.
,,Lengst af hef ég verið í stjórn-
unarhlutverki í fjölmiðlaheiminum
þar sem ofboðslega stuttur tími
líður frá hugmynd að ákvörðun. Það
er öðruvísi í pólitíkinni, þar er langt
á milli hugmyndar og þess að
eitthvað verði úr henni. Og það er
ástæða fyrir því. Lýðræðislegur
ákvörðunarferill tekur langan tíma.
Hugsunin er auðvitað sú að þannig
sé vandað til verka. Menn geta svo
haft alls konar skoðanir á því hvort
sú sé raunin! Ég er í lærdómsferli
og er að stilla mig inn á þessi
vinnubrögð,“ segir nýi þingmaður-
inn.
,,Þetta er allt talsverð opinberun
fyrir mann eins og mig sem hélt að
ég þekkti þetta. Búinn að vera
meðal annars þingfréttamaður, þótt
það hafi verið fyrir tæplega 100
árum, þá taldi ég mig hafa talsverða
nasasjón af því hvernig þetta færi
allt saman fram“ segir Páll og hlær.
,,Það er margt eins og ég hafði séð
en annað kom mér talsvert á óvart.
Til dæmis hversu umfangsmikið
starfið er í nefndunum. Ég var
gerður að formanni í atvinnuvega-
nefnd og sit auk þess í fjárlaganefnd
og má hafa mig allan við!“
Engin fýla né seyra
Páll var ósáttur við ráðherraskipan
Bjarna Benediktsonar. Er gróið um
heilt milli hans og formannsins?
,,Já, já, þetta er fullrætt milli mín
og formannsins og það situr ekki í
mér nein fýla eða seyra, enda
snerist þetta ekki um mína persónu.
Ég tók upp þykkjuna fyrir Sjálf-
stæðismenn í Suðurkjördæmi sem
er höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins.
Það lýðræðislega umboð sem
skapaðist fyrst með óvenju
afgerandi niðurstöðu úr prófkjöri og
síðan með úrslitunum í kosning-
unum sjálfum, þar sem flokkurinn
jók verulega fylgi sitt og bætti við
sig fjórða kjördæmakjörna
þingmanninum, var með þeim hætti
að oddviti flokksins í kjördæminu
átti að sitja í ríkistjórn.Formaðurinn
hefur síðan útskýrt sín sjónarmið
sem ég tel mun léttvægari en mín.
Við það situr og áfram veginn!“
Duglegasti maðurinn í Eyjum
Sem þingmaður þarf Páll Magnús-
son að þekkja sitt heimafólk, hann
stóðst prófið þegar blaðamaður
spurði hann hver væri duglegasti
maðurinn í Vestmannaeyjum;
spurning sem hann hafði verið
beðinn sérstaklega fyrir. Eftir góða
hláturroku svarar Páll,, Hverjum
gæti dottið í hug svona spurning?
Það eru margir duglegir í Eyjum en
ef ég á að velja einn þá er það hann
Hanni harði,“ segir Páll og hlær
dátt þegar blaðamaður upplýsir
hann um að spurningin væri einmitt
frá Hanna harða sjálfum eins og
hann kýs að kalla sig, kominn.
Páll á góðri stundu með eiginkonu og börnum. Páll, Hildur, Edda Sif, Páll Magnús, Eir og Hlín.
Eyjapeyinn að störfum í sal Alþingis. Ljósmynd Hákon Broder Lund
Stóran hluta af árinu er enginn valkostur
fyrir ferðamenn að taka hægri beygjuna
niður í Herjólf og búa sér til dagsferð eða
lengri til Eyja. Þorlákshöfn er ekki valkostur í
þessu samhengi. Þegar Landeyjahöfn er
opin þarf að auka tíðni ferða. Skipið þarf að
ganga stöðugt fram og til baka eins og ferjur
gera víðast hvar. Þær standa ekki bundnar
við bryggju lungann úr deginum eins og
gerist meira að segja yfir hábjargræðistím-
ann á sumrin flesta daga í Eyjum.
”