Fréttir - Eyjafréttir - 29.03.2017, Qupperneq 13
13Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. mars 2017
Síðustu ár hefur Viska sömu-
leiðis verið með raunfærnimat í
skipstjórn þar sem árlega hafa
um 25 – 26 einstaklingar lokið
mati í greininni. Raunfærnimat
er spennandi tækifæri fyrir alla
sem vilja styrkja stöðu sína á
vinnumarkaði og fá færni sína
metna að verðleikum.
Miðvikudaginn 15. mars voru 11
einstaklingar útskrifaðir úr
raunfærnimati Visku, fræðslu- og
símenntunarmiðstöð Vestmanna-
eyja, níu í leikskólaliðanum og tveir
í stuðningsfulltrúanum.
Fyrir þá sem ekki þekkja þá er
raunfærnimat frábært tækifæri fyrir
einstaklinga sem vilja styrkja stöðu
sína á vinnumarkaði en það gengur
út á að kortleggja færni einstaklinga
og auka möguleika þeirra til að
bæta við sig í námi eða annarri
uppbyggingu. Margir einstaklingar
á vinnumarkaðnum hafa í gegnum
áralanga reynslu byggt upp
umtalsverða færni, en ekki lokið
námi af einhverjum ástæðum. Þessir
einstaklingar búa yfir raunfærni sem
vert er að skoða og meta. Raunfærni
er samanlögð færni sem einstak-
lingur hefur náð með ýmsum hætti,
s.s. starfsreynslu, starfsnámi,
frístundanámi, skólanámi, félags-
störfum og fjölskyldulífi.
Tveir þriðju hlutar
karlmenn
Til þess að geta orðið þátttakandi í
raunfærnimati þarf viðkomandi að
vera orðin 23 ára og hafa að
lágmarki þriggja ára starfsreynslu á
viðkomandi sviði. Á vefsíðunni
naestaskref.is er hægt að skoða
hvernig færni viðkomandi passar
við hæfniþætti hinna ýmsu starfa
með því að gera gróft yfirlitsmat á
færni í tilteknum fögum. Í dag er á
sjötta tug faga í boði, allt frá
bakaraiðn til blikksmíði og allt þar
á milli. Árið 2016 luku alls 516
einstaklingar raunfærnimati og er
það nokkur fjölgun frá árinu áður
þegar 450 manns luku mati. Tveir
þriðju hlutar þeirra sem kláruðu
voru karlmenn (66%) og einn þriðji
hluti konur (34%) og var meðal-
aldurinn rétt tæp 40 ár.
Alls hafa 3.952 einstaklingar lokið
raunfærnimati frá árinu 2004 og er
það 7.2% af heildarmarkhópi
framhaldsfræðslunnar (þeir sem
ekki hafa lokið námi úr framhalds-
skóla) en sá hópur telur um 55.000
manns og er 28% fólks á vinnu-
markaði. Undanfarin ár hefur verið
algengara að fólk ljúki raunfærni-
mati á brautum sem ekki teljast til
iðngreina og rímar það ágætlega við
vinsældir bóknámsins á kostnað
hins fyrr nefnda.
Eins og fyrr segir var þetta tiltekna
raunfærnimat ætlað ófaglærðum
leiðbeinendum í leik- og grunn-
skólum og einnig ófaglærðu
starfsfólki við aðhlynningu. Í
framhaldi raunfærnimatsins er síðan
í boði að ljúka náminu í leikskóla-
liðanum og stuðningsfulltrúanum í
gegnum Fræðslunet Suðurlands á
Selfossi. Þessar námsleiðir eru í
boði núna í fjarkennslu og munu
nemendur hafa aðstöðu í Visku.
Meirihluti þeirra sem nú hafa
útskrifast úr raunfærnimatinu stefna
á að fara í námið sem hefst í haust.
Raunfærnimatið í þessum greinum
er enn í boði hjá Visku og er verið
að safna í nýjan hóp. Áhugasamir
geta sent Sólrúnu Bergþórsdóttur,
náms- og starfsráðgjafa, tölvupóst á
netfangið solrunb@eyjar.is.
Matsviðtöl gegnum Skype
Viska hefur síðustu ár þróað
raunfærnimat í skipstjórn en það
hefur verið í gangi frá árinu 2013.
Árlega hafa að meðaltali 25 – 26
einstaklingar lokið raunfærnimati í
þessari grein og koma þeir víða að
af landinu en það stendur til boða
að fara í svokölluð matsviðtöl í
gegnum skype í sinni heimabyggð.
Viska hefur einnig verið með
raunfærnimat í verslunarfagnámi,
vélstjórn, fisktækni og nú síðast í
leikskólaliðanum og stuðnings-
fulltrúanum.
Að auki er Viska í samstarfi við
Iðuna fræðslusetur sem sér um
raunfærnimat í iðngreinum og er
hægt er að fara í gegnum slíkt mat í
gegnum Visku og heldur Sólrún
Bergþórsdóttir utan um það ferli. Í
slíku samstarfi hafa einstaklingar úr
Eyjum farið í gegnum raunfærnimat
í matartækni, netagerð, vélstjórn,
vélvirkjun, stálsmíði, rennismíði,
húsasmíði og sjókokkinn, svo
eitthvað sé nefnt.
Viska :: 11 útskrifuðust úr raunfærnimati:
Frábært tækifæri fyrir einstak-
linga sem vilja styrkja stöðu
sína á vinnumarkaði
:: Metið upp í nám í leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú :: Dæmi um að menn hafi
lokið námi í bæði húsasmíði og skipstjórn.
Þær útskrifuðust úr raunfærnimatinu upp í leikskólaliðann. Frá vinstri, Stefanía Ástvaldsdóttir, Sólrún
Helgadóttir, Árný Richardsdóttir, Guðrún Lilja Friðgeirsdóttir, Hugrún Magnúsdóttir, Þuríður Júlíusdóttir,
Kristín Tryggvadóttir og Guðrún Helga Sigurðardóttir. Á myndina vantar Valgerði Þorsteinsdóttur. Að auki
útskrifuðust þær Guðrún Karen Tryggvadóttir og Sigríður Vigdís Ólafsdóttir upp í stuðningsfulltrúann.
Í framhaldi af raunfærnimati býður
náms- og starfsráðgjafi Visku upp á
ráðgjöf varðandi mögulegt nám í
framhaldi. Smári Björn Þorvaldsson
er einn þeirra sem hefur reynslu af
því að fara í nám eftir raunfærnimat
en í matinu fékk hann m.a. heila 11
áfanga metna í húsasmíðanámi sem
hann klárar núna í vor.
Hafðir þú starfað lengi við smíðar
áður en þú fórst í raunfærnimat?
„Ég hafði starfað í rúm fimm ár en
ég byrjaði að vinna hjá Steina og
Olla ehf. í ágúst 2010,“ segir Smári
Björn en eins og fyrr segir styttist
námið töluvert eftir raunfærnimat.
„Námið styttist frekar mikið. Ég
fékk metið 50 vikur af smíðasamn-
ingnum og 11 áfanga metna.“
Smári segir stöðuna á sér í dag
vera góða en hann hefur verið að
sækja nám á Sauðarkrók og stefnir
á að klára í maí. „Ég var að klára
síðustu helgina mína í Fjölbrautar-
skóla Norðurlands vestra. Þó um
langa leið sé fyrir mig að sækja
nám á Sauðárkróki þá var það skásti
kosturinn vegna þess að þar er í
boði helgarlotunám fyrir húsasmíði
og húsgagnasmíði. Þar er líka
frábært smíðaverkstæði og mjög
góðir og liðlegir kennarar. Svo fer
ég 18. maí næstkomandi í mína 13.
ferð á Krókinn og tek sveinsprófið,“
segir Smári sem útilokar ekki að
halda áfram í meistaranám í
framtíðinni. „Já kannski síðar en
ekki í bráð.“
Svipaða sögu er að segja af Georg
Skæringssyni en hann hefur lokið
námi í skipstjórn eftir að hafa farið í
raunfærnimat í greininni. Georg
kláraði námið í lok árs 2015 en áður
hafði hann verið í vélstjóranámi og
klárað réttindi á 1500 kW skip.
Hvað fékkstu mikið metið í
náminu? „Af þeim fögum sem var í
boði fékk ég allt metið nema eitt en
ég hafði þá áður tekið réttindi á
1500 kW í Eyjum. Eftir það tók ég
ársfrí og fór í raunfærnimat þar sem
ég fékk eins og ég segi allt metið
nema eitt fag,“ segir Georg.
Hvaða starfsreynslu hafðir þú
áður en þú fórst í raunfærnimatið?
„Ég var áður fyrr á sjó, á netum,
loðnu og síld, svo eitthvað sé nefnt.
Svo hef ég verið á Friðriki Jessyni,
fyrst fyrir Hafró frá 1998 til 2000
og síðan aftur frá 2009 til dagsins í
dag en báturinn er nú í eigu
Þekkingarsetursins,“ segir Georg og
játar því að raunfærnimatið hafi
verið þess valdandi að hann hafi
farið alla leið og klárað námið. „Ég
var ekkert á leiðinni í neitt skip-
stjórnarnám en fyrst ég átti ekki það
mörg fög eftir þá ákvað ég bara að
klára þetta.“
Þannig þú myndir mæla með
þessari leið fyrir aðra? „Þetta er
alveg brillíant leið fyrir þá sem hafa
t.d. verið á sjó. Námið er svokallað
dreifnám sem er ekki ósvipað
fjarnámi, en þar fer kennslan mikið
fram á netinu, verkefni og annað
slíkt. Svo er þetta bara ein og ein
helgi suður þar sem maður þarf að
vera á staðnum,“ segir Georg.
Smári Björn Þorvaldsson:
Fékk metnar 50
vikur af samningi
og 11 áfanga
Georg Skæringsson:
Brillíant leið fyrir
þá sem hafa t.d.
verið á sjó
Smári nemur húsasmíði við
Fjölbrautarskóla norðurlands
vestra.
Georg Skæringsson lauk
skipstjórnarnámi i kjölfar
raunfærnimats.