Fréttir - Eyjafréttir - 29.03.2017, Síða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. mars 2017
Íþróttir
u m S j Ó n :
Einar KriStinn HElgaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Framundan
Miðvikudagur 29. mars
Kl. 18:00 ÍBV – Akureyri
Olís-deild karla
Föstudagur 31. mars
Kl. 20:15 Valur U – ÍBV U
1. deild karla
Laugardagur 1. apríl
Kl. 13:30 Haukar – ÍBV
Olís-deild kvenna
Þriðjudagur 4. apríl
Kl. 19:30 Valur – ÍBV
Olís-deild karla
Föstudagur 7. apríl
Kl. 19:30 ÍBV U – Víkingur
1. deild karla
Laugardagur 8. apríl
Kl. 13:30 ÍBV – Grótta
Olís-deild kvenna
Þriðja og síðasta mótaröð í
mótaröðum Karatesambands
Íslands fór fram um nýliðna helgi
en mótaröðin er stigamót. Þess má
geta að fyrstu mótin í mótaröðinni
voru einmitt haldin hér í Eyjum í
byrjun október á síðasta ári. Á
föstudagskvöldið fór fram 3.
Bikarmót KAÍ í Fylkisselinu
Norðlingaholti en þar keppa 16 ára
og eldri í einum flokki fullorðinna.
Karatefélag Vestmannaeyja átti þrjá
keppendur á mótinu. Willum Pétur
Andersen og Zara Pesenti kepptu í
kumite og Arnar Júlíusson keppti í
kata.
„Willum og Zara áttu því miður
ekki mikið erindi í fullorðinsflokk-
inn í kumite en létu þó andstæðinga
sína hafa töluvert fyrir sigri,“ sagði
Ævar Austfjörð, þjálfari Karate-
félags Vestmannaeyja í samtali við
Eyjafréttir. „Í kata átti Arnar
hinsvegar góðan dag og keppti til
úrslita en tapaði fyrir Aron Hyun,
nýbökuðum Íslandsmeistara. Arnar
hlaut því silfur á mótinu.
Á laugardag fór 3. Bushidomótið
fram í Varmárskóla í Mosfellsbæ en
þar er keppt í unglingaflokkum þar
sem KFV átti fjóra keppendur og
þar var annað uppi á teningnum hjá
okkar fólki.
„Zara keppti í flokki 16-17 ára
stúlkna. Flokkurinn var fámennur
en Zara barðist um bronsverðlaun
þar sem hún tapaði á dómaraúr-
skurði eftir að bardaganum hafði
lokið með jöfnu stigaskori. Zara er
efnileg en hún hafði æft Tae Kwon
Do áður en hún kom til KFV og
verður að segjast að það háði henni,
sérstaklega varnarlega séð þótt
einnig sé augljós ávinningur af því
sérstaklega þegar kemur að
spörkum. Zara gæti átt ágæta
framtíð í kumite en hún mun halda
heim til Sviss í sumar að loknu
skiptinámi hér í vetur,“ segir Ævar.
„Willum Pétur lauk keppnistíma-
bilinu á góðum nótum en hann hóf
að keppa síðasta haust í fyrsta skipti
í kumite. Hann keppir í flokki 16-17
ára og er því alltaf að keppa við
drengi sem æft hafa og keppt mun
lengur en hann sjálfur. Markmið
vetrarins voru skýr. Í fyrsta lagi átti
að hafa gaman af þáttökunni og þá
var það sett sem markmið að ná
allavega að skora stig af og til í
viðureignum því sigur á móti mun
reynslumeiri keppendum þótti
óraunhæfur framan af. Þó setti hann
sér ásamt þjálfara það lokamarkmið
að ná að vinna allavega einn
bardaga á lokamóti vetrarins og það
gekk eftir. Willum átti fínan
bardaga í fyrstu viðureign og
sigraði 2-0 í bardaga sem einkennd-
ist af hörku og sókndirfsku. Næstu
viðureign tapaði hann en fékk svo
uppreisnarviðureign til að berjast
um bronsið en tapaði henni á
endanum. Í þeirri viðureign var
töluverð harka og þurfti að stöðva
bardagann stuttan tíma til að stöðva
blóðnasir þar sem Willum hafði
tekið full hraustlega á andstæðingn-
um. Engu að síður gott mót og
góður vetur hjá Willum sem verður
vafalítið enn betri á næsta tímabili,“
segir Ævar.
Arnar keppti í elsta unglingaflokki
í síðasta sinn þar sem hann gengur
uppúr þeim flokki vegna aldurs á
næsta tímabili. „Arnar átti góðan
dag og komst aftur í úrslit en varð
aftur að lúta í lægra haldi fyrir Aron
Hyun. Arnar hefur átt gott tímabil
og unnið til fjölda verðlauna og
ljóst að framtíðin er björt. Hann er
eins og staðan er í dag þriðji besti
kata keppandi landsins á eftir Aron
Hyun og Elíasi Snorrasyni en þeir
tveir eru í sérflokki. Verkefnið
framundan hjá Arnari er að bæta sig
nóg til að geta veitt þeim meiri
keppni. Þess má einnig geta að
Arnar hafnaði í 2. sæti í saman-
lagðri stigakeppni í kata í sínum
aldursflokki í Bushido röðinni. Á
eftir einmitt títtnefndum Aron
Hyun,“ segir Ævar.
Í yngsta unglingaflokki keppti
Mikael Magnússon og er óhætt að
segja að hann hafi komið á óvart því
hann vann til bronsverðlauna eftir
frábæra frammistöðu. „Flokkur
Mikaels er fjölmennur og mjög
margir góðir keppendur þar
innanborðs. Hér er mikið efni á ferð
og verður spennandi að fylgjast
með þeim félögum Mikael og
Arnari í framtíðinni. Það er alveg
ljóst að framtíðin er björt hjá hinu
örsmáa félagi KFV og með sama
áframhaldi mun afrekalistinn
stækka hratt,“ segir Ævar að lokum.
Eyjamenn létu Íslandsmeistara
Hauka líta vægast sagt illa út í
toppslag Olís-deildarinnar sl.
fimmtudag þegar liðin mættust í
Eyjum. Leikurinn endaði með
ótrúlegum 17 marka sigri heima-
manna sem léku á als oddi,
lokastaða 40:23. Liðsmenn ÍBV
settu tóninn strax í fyrri hálfleik en
munurinn á liðunum var átta mörk
þegar flautað var til hálfleiks.
Eyjamenn létu engan bilbug á sér
finna í síðari hálfleiknum og héldu
sínu striki allt til enda. Arnar
Pétursson, þjálfari ÍBV, rúllaði
töluvert á liðinu í leiknum og gaf
mörgum leikmönnum mínútur en
það skipti engu máli hver var inni á
vellinum, Haukarnir áttu engin svör.
Theodór Sigurbjörnsson fór á
kostum og skoraði 13 mörk í liði
ÍBV. Stephen Nielsen sýndi enn og
aftur mátt sinn og megin en hann
var búinn að verja 25 skot þegar
Kolbeinn Arnarsson leysti hann af
hólmi undir lok leiks. Kolbeinn fór
hins vegar rakleiðis aftur út af með
tveggja mínútna brottvísun þar sem
Eyjamenn voru með aukamann í
sókninni þegar skiptingin átti sér
stað.
Liðin eru nú, ásamt FH, jöfn að
stigum í Olís-deildinni en Eyja-
menn eru á toppnum vegna
innbyrðis viðureigna. Síðasti
heimaleikur ÍBV í deildinni verður í
kvöld þegar liðið etur kappi við
Akureyri kl. 18:00.
ÍBV tapaði naumlega fyrir Stjörn-
unni þegar liðin mættust í Vest-
mannaeyjum síðustu helgi í
Olís-deild kvenna, lokastaða 23:24.
Mikið jafnræði var með liðunum
allan leikinn og voru það heima-
menn sem leiddu með einu marki
þegar gengið var til búningsher-
bergja í hálfleik. Gestirnir sóttu
aðeins í sig veðrið í seinni hálfleik
og voru með fjögurra marka forystu
þegar um korter lifði leiks.
Eyjakonur gáfu þá í og náðu að
jafna metin þegar um þrjár og hálf
mínúta var eftir af leiknum. Þegar
20 sekúndur voru eftir náðu
Stjörnukonur aftur forystunni og í
kjölfarið brá Hrafnhildur Skúla-
dóttir, þjálfari ÍBV, á það ráð að
taka leikhlé og freista þess að jafna.
Það fór ekki betur en svo að
Eyjakonur töpuðu boltanum og
grátlegt tap niðurstaðan í
spennandi og ekki síst mikil-
vægum leik.
Eyjakonur eru í harðri baráttu um
sæti í úrslitakeppninni og er alveg
ljóst að með þessu tapi er róðurinn
orðinn ansi þungur. Eftir umferðina
er Grótta í fjórða sætinu og ÍBV í
því fimmta en tvö stig skilja á milli
liðanna. Næsti leikur liðsins er gegn
Haukum á laugardaginn og dugar
ekkert annað en sigur þar því ÍBV
mætir síðan Gróttu í lokaumferðinni
helgina eftir.
Markahæstar í liði ÍBV voru þær
Ester Óskarsdóttir og Sandra Dís
Sigurðardóttir með fimm mörk
hvor. Erla Rós Sigmarsdóttir var
með tíu skot varin í markinu.
Karlalið ÍBV í knattspyrnu tapaði
sínum öðrum leik í röð í Lengju-
bikarnum þegar liðið mætti Selfoss
síðasta miðvikudag. Alfi Conteh
Lacalle kom Selfyssingum í 1:0 á
54. mínútu en það reyndist eina
mark leiksins. Byrjunarlið ÍBV var
töluvert frábrugðið því sem tapaði
0:4 fyrir KR í umferðinni áður og er
ljóst að þjálfari liðsins, Kristján
Guðmundsson, er enn að finna út
sitt sterkasta lið nú þegar rétt rúmur
mánuður er í fyrsta leik liðsins í
Pepsi-deildinni.
Eyjakonur lentu í honum kröppum
strax í byrjun leiks þegar liðið
mætti Þór/KA á sunnudaginn var en
Sandra Stephany Mayor Gutierrez
kom Akureyringunum yfir strax
eftir sjö mínútna leik. Hún var síðan
aftur á ferðinni þegar um tíu
mínútur voru eftir af venjulegum
leiktíma og tvöfaldaði forystuna.
Mörkin urðu ekki fleiri og 0:2 tap
Eyjakvenna staðreynd. Næsti leikur
ÍBV í Lengjubikarnum er gegn
Breiðabliki næstkomandi laugardag
í fjögurra liða úrslitum A deildar.
Fyrsti leikur ÍBV í Pepsi-deildinni
verður síðan föstudaginn 28. apríl í
Vestmannaeyjum en þá koma
KR-ingar í heimsókn.
Karate |
Arnar með silfur í kata
:: það er alveg ljóst að framtíðin er björt hjá hinu örsmáa félagi KFV, segir
Ævar Austfjörð, þjálfari KFV
Fótbolti |
Lengjubikar kvk:
þór/KA
hafði betur
Fótbolti |
Lengjubikar kk:
tap gegn
Selfossi
Handbolti | Olís-deild karla :: ÍBV 40 - Haukar 23:
ótrúlegur 17 marka sigur
Handbolti | Olís-deild kvenna:
Svekkjandi gegn Stjörnunni
ÍBV 25 15 3 7 725 67 33
FH 25 14 5 6 705 49 33
Haukar 25 16 1 8 758 60 33
Afturelding 25 13 3 9 674 -6 29
Valur 25 10 3 12 642 -11 23
Selfoss 25 10 2 13 723 -9 22
Grótta 25 9 3 13 633 -30 21
Fram 25 9 2 14 699 -35 20
Stjarnan 25 8 3 14 612 -47 19
Akureyri 25 7 3 15 611 -38 17
Olísdeild karla
Theodór Sigurbjörnsson fór á kostum og skoraði 13 mörk.
Mikael Magnússon vann til
bronsverðlauna í sínum flokki.
M
yn
d:
Þ
or
st
ei
nn
Y
ng
vi
G
uð
m
un
ds
so
n
Fram 19 16 1 2 469 64 33
Stjarnan 19 15 1 3 527 63 31
Haukar 19 10 0 9 451 1 20
Grótta 19 9 1 9 458 -1 19
ÍBV 19 8 1 10 502 5 17
Valur 19 8 0 11 458 1 16
Selfoss 19 5 0 14 488 -31 10
Fylkir 19 2 2 15 415 -102 6
Olísdeild kvenna