Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 29.03.2017, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 29.03.2017, Blaðsíða 16
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir TVÆR FERÐIR Á DAG - ALLA DAGA Frá Þorlákshöfn 11:45 19:15 Frá Vestmannaeyjum 08:00 15:30 Opið Mán-fös kl. 7.30-21.00 / Lau. kl. 10-21 / Sun kl. 10-21 VöruVal góð Verslun í alfaraleið Ný tilboð vikulega. Heimsendingarþjónusta. Opið frá 7:30 - 21:00 virka daga og 10:00 - 21:00 um helgar. SuShi frá Osushi kemur til okkar föstudaga kl. 17.30. Tökum niður pantanir! s. 481-1300 | frettir@eyjafrettir.is | www.eyjafrettir.is hEiM AÐ DYRuM - kr. 1.920 á mán. Með áskrift að Eyjafréttum færðu vikulegar fréttir, heim að dyrum, af öllu því helsta sem um er að vera í Vestmannaeyjum eða tengist Eyjum á einn eða annan hátt. Ekki nóg með það heldur getur þú einnig nálgast blaðið þitt á Eyjafrettir.is hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum færðu líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum um leið og þær gerast. NETÁSKRiFT - kr. 1.490 á mán. Með netáskrift að Eyjafréttum ertu alltaf með blaðið við hendina. Þú færðu aðgang að blaði Eyjafrétta á Eyjafrettir. is þegar þér hentar, hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum færðu líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum um leið og þær gerast. Vertu með á nótunum og skráðu þig í áskrift núna á eyjafrettir.is eða í síma 481-1300. ÞÚ FÆRÐ MEiRA ÁSKRiFTÍ „Þetta snýst um allt það besta í manneskjunni, en samt ekki,“ segir Guðjón Þorsteinn Pálmarsson leikstjóri um sýninguna Sex í sveit sem frumsýnd verður föstudaginn 7. apríl. „Þetta er bara helgi sem fer úr böndunum,“ heldur Guðjón áfram. „Það eru hjón sem eiga þennan fína sumarbústað og þau er svolítið að fara á bak við hvort annað. Frúin þarf að skreppa austur og á meðan nýtir karlinn tækifærið og hringir í viðhaldið og í kjölfarið verður mikill ruglingur.“ Leikritið segir Guðjón margslungið og einfalt á sama tíma og algjört meistara þunnildi. „Ef það kemur einhver inn á sviðið þá halda áhorfendur að hann sé einhver annar en hann er í raun og veru. Ofan á það eru allir að reyna að gabba alla og allir að reyna að ná sínu fram sem eru ekki endilega alltaf góðar fyrirætlanir. Leikritið er ofboðslega vel skrifað, þetta eru sex persónur og ég held að það sé ekki hægt að flækja samband sex persóna meira en gert er í þessu leikriti. Maður veit einhvern veginn alltaf hvað er í gangi en það getur reynst þrautinni þyngri að setja það í orð, allir eru með eitthvað í pokahorninu og allir eru að halda framhjá öllum,“ segir Guðjón. Plottið segir Guðjón vera langt frá raunveruleikanum þó það eigi í grunninn rætur sínar í harmleik fólks. „Þetta er klárlega broslega hliðin af þessum harmleik. Þetta er ofboðslega vel skrifað en það er franska leikskáldið Marc Camoletti sem gerir það. Þetta leikrit hefur mjög oft verið sett upp á Íslandi og í raun út um allt land. Leikfélag Reykjavíkur setti þetta upp eftirminnilega fyrir um 20 árum og það gekk og gekk. Við höfum aðeins verið að uppfæra leikritið og setja í nútímalegri búning en það er t.d. talað um gulu línuna í þýðingunni sem við erum að vinna með og það man enginn eftir henni. Í staðinn eru við að nota snjallsímafor- rit og annað sem færir leikritið til dagsins í dag,“ segir Guðjón. Sagan og atburðarrásin helst þó nokkuð óbreytt að sögn leikstjórans. „Þetta er svo ofboðslega vel smíðað og gott dæmi um það er að það er eiginlega vonlaust að stytta leikritið án þess að missa samhengið. Þetta er svo viðkvæmt því plottið er svo margslungið.“ „Undirbúningur hefur gengið vel og hefur þetta verið mikil og skemmti- leg vinna,“ segir Guðjón aðspurður um efnið. „Ég hef sett mikla pressu á krakkana um að vera skemmtileg og fyndin og fá þau til að skora sjálf sig á hólm. Textinn er alveg rosalega mikill og það verður allt að komast til skila, það er stóra áskorunin. Við brutum þetta allt niður í litlar senur þannig að það eru mjög snörp skipti. En það má ekkert bregða út af, farsinn er bara eins og íþróttagrein,“ segir Guðjón og bætir við að vaxtarferlið hjá hverjum og einum leikara sé í raun ástæðan fyrir því að hann sé í þessum bransa. „Það gerist eitthvað hjá þeim, þau mæta fyrst og eru ferlega til baka en örfáum vikum seinna hafa þau margfaldast og eru 20 cm hávaxnari á sviðinu og það er bara virkilega gaman að sjá nýja manneskju fæðast,“ segir Guðjón sem lofar jafnframt mikilli skemmt- un. LV :: Leikritið Sex í sveit verður frumsýnt 7. apríl: Farsi eins og hann gerist bestur :: Ekki hægt að flækja samband sex persóna meira en gert er í þessu leikriti, segir leikstjórinn :: Helgi sem fer úr böndunum Einar KriStinn HElgaSon einarkristinn@eyjafrettir.is Viktor Rittmüller, Guðjón Þorsteinn og Unnur í nýju sætunum í sal leikhússins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.