Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Qupperneq 1
Eyjafréttir
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Velheppnuð
flugslysaæfing
frumkVöðlar
frá eyjum >> 13 Í fallegum litum >> 8 >> 12
Vestmannaeyjum 12. apríl 2017 :: 44. árg. :: 15. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Skýringin á rafmagnsleysinu á
fimmtudaginn er bilun í Vest-
mannaeyjastreng 3 sem er nýjasti
rafmagnsstrengurinn af þremur
sem lagðir hafa verið til Eyja.
Búið er að staðsetja bilunina og
er verið að undirbúa viðgerð. Á
meðan er hitaveitan keyrð með
olíu og unnið er að því að koma
fleiri ljósavélum til Vestmanna-
eyja. Strengurinn heyrir undir
Landsnet sem undirbýr aðgerðir.
„Staðan eins og hún er núna er að
bilanagreining á strengnum hefur
farið fram og allt bendir til þess að
bilunin sé staðsett neðansjávar í um
6.2 km frá Eyjum,“ sagði Steinunn
Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi
Landsnets þegar rætt var við hana í
gær. „Verið er að vinna eftir
aðgerðaráætlun og búið er að hafa
samband við framleiðanda og verið
að undirbúa viðgerð. Á þessu stigi er
ekki vitað hvað olli biluninni.
Bilunin kom fram nokkrum dögum
eftir að spenna á strengnum var
hækkuð úr 33 kV í 66 kV.“
Steinunn segir að líklega liggi
strengurinn á 50 metra dýpi þar sem
bilunin er talin vera. „Taka þarf
strenginn upp og fá til þess sérstakt
viðgerðarskip erlendis frá og mun
ferlið taka nokkur tíma, veður og
sjólag geta haft veruleg áhrif á
tímalengd viðgerðar. Búið er að hafa
samband við sérfræðinga á Norður-
löndum með mikla reynslu í lausn
vandamála varðandi sæstrengi.
Unnið er að því að koma auknu
varaafli til Vestmanneyja með
færanlegum varaaflstöðvum.
Forgangsorka kemur frá sæstrengn-
um VM1 og gert er ráð fyrir því að
einnig sé til staðar nægjanlegt varaafl
til að tryggja forgangsorku ef upp
koma vandamál með orkuflutning frá
landi.“
Kostnaður við viðgerðina liggur
ekki fyrir en Steinunn segir ljóst að
hún verði mjög dýr. „Teymi frá
kapalframleiðandanum, verksmiðj-
unni, er komið til landsins og funda
með okkur í dag og munu taka þátt í
að greina og undirbúa viðgerð.
Nánari upplýsingar liggja vonandi
fyrir eftir fundinn í dag,“ sagði
Steinunn að endingu.
„Þetta er grafalvarlegt mál fyrir
hitaveituna. Við fáum enga ótrygga
orku á rafskautaketilinn og hita-
veitan er öll keyrð á olíu,“ sagði Ívar
Atlason, svæðisstjóri vatnssviðs HS
Veitna í Vestmannaeyjum. „Aftur á
móti er VM1 í rekstri, en hann flytur
ekki nema 7,5 MW. Eins og er, þá
þurfum við ekki að keyra ljósa-
vélarnar með þessu. VM1 er frá
1962 og er orðinn ansi gamall. Til
vonar og vara, er Landsnet að senda
til Eyja fimm ljósavélar. Við verðum
þá með 14 ljósvélar allt í allt.“
Alvarleg staða í orkumálum eftir að rafstrengur bilaði:
Hitaveitan keyrð á olíu og
fimm ljósavélum bætt við
:: Bilun á 50 m dýpi :: Þarf sérstakt viðgerðarskip :: Óvíst hvenær viðgerð lýkur
„Þetta er farsi eins og þeir gerast bestir, uppfullur af endalausum misskilningi, vandræðagangi, hagræðingu sannleikans, orðaleikjum og því sem mestu
máli skiptir, sprenghlægilegum húmor,“ segir Helena Pálsdóttir, leikhúsrýnir Eyjafrétta um uppfærslu LV á Sex í sveit sem frumsýnt var á föstudaginn.
>> Sjá bls. 14.