Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Blaðsíða 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
Blaðamenn:
Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is
Sara Sjöfn Grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is
ábyrgðarmaður: Ómar Garðarsson.
prentvinna: Landsprent ehf.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Kránni, Vöruval, Herjólfi, Krónunni og Skýlinu.
Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Almannavarnanefnd fór á fundi
sínum í síðustu viku yfir stöðu
jarðskjálftamæla í Vestmanna-
eyjum. Fram hefur komið að
mæliskekkja er töluverð og
nauðsynlegt að bæta við
mælum til að fá gleggri mynd af
því sem er að gerast.
Formaður upplýsti að vísindamenn
úr Háskóla Íslands stefna á að koma
upp mælum til að fylgjast með
mögulegri hreyfingu Norður-
klettanna með tilliti til hruns.
Vísað var í fund viðbragðsaðila
með sérfræðingum Veðurstofu
Íslands og Háskóla Íslands í janúar
sl. þar sem kom fram að einn
jarðskjálftamælir er á Heimaey en
þörf væri á tveimur til viðbótar. Til
þess að staðsetja litla jarðskjálfta
þarf a.m.k. tvo til þrjá jarðskjálfta-
mæla í innan 30 km fjarlægðar frá
upptökum.
Í dag er einn á Heimaey og með
mælum á fastalandinu er staðsetn-
ingarnákvæmni ekki næg til að
fastsetja hvar virknin er. Ákvarðanir
um uppbyggingu jarðskjálftamæla-
netsins eru í dag teknar í teymi
sérfræðinga á Veðurstofunni.
Að mati Almannavarnanefndar
Vestmannaeyja er rík þörf á því að
komið verði upp tveimur varan-
legum mælum til viðbótar í
Vestmannaeyjum hið allra fyrsta.
Almannavarnanefnd felur formanni
nefndarinnar að vinna áfram að
lausn þessa máls í samráði við
Veðurstofu Íslands og sérfræðinga á
hennar vegum.
Stefáni Ó. Jónassyni, bæjarfull-
trúa E-listans var mikið niðri fyrir
í bókun sem hann lagði fram á
síðasta fundi framkvæmda- og
hafnarráðs. Þar óskaði hann
eftir upplýsingum um stöðu og
framtíð Blátinds VE 21 sem er
elsta tréskip Vestmannaeyja og
er í eigu bæjarins.
„Blátindur VE 21 er senn 70 ára,
var smíðaður hér í Eyjum sem hluti
af raðsmíði fiskiskipa fyrir tilstilli
ríkisstjórnarinnar til endurnýjunar á
fiskiskipaflota þjóðarinnar í
stríðslok og var með stærstu og
glæsilegustu fiskiskipum í Vest-
mannaeyjum.
Síðustu ár hefur báturinn verið í
vörslu Vestmannaeyjabæjar, en því
miður í algjörri vanhirðu. Öll veður,
vatn og vindur eiga greiðan aðgang
að bátnum, stýrishús, lestarlúga og
lúkarkappi allt opið. Þrátt fyrir
fjögurra ára gamalt verkplan og
fjármögnun hefur ekkert gerst,“
segir Stefán og spyr:
1. Hafa núverandi bæjarfulltrúar
engan áhuga á athafnasögu
Eyjanna?
2. Ef áhugi er á málinu, hvað tefur?
3. Er ekki staðsetning/,,lægi“ fyrir
bátinn löngu samþykkt?
4. Er ekki 2 milljón króna
fjármögnun löngu tryggð eða
hefur henni verið varið í annað?
5. Ef bæjarfulltrúar eru ekki stoltir
af athafnasögu staðarins
vinsamlega gefið þá Blátind VE
21 þangað sem menn kunna að
meta verk forvera sinna, má þar
til dæmis nefna Síldarminja-
safnið á Siglufirði eða Byggða-
safn Akraness.
Fulltrúar meirihlutans svöruðu með
bókun og sögðu að málefni Blátinds
hafi margoft komið til umræðu í
framkvæmda- og hafnarráði
undanfarin ár og fjármagn tryggt í
þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar
eru.
„Fulltrúa minnihlutans er
fullkunnugt um þær umræður og
þær ákvarðanir sem teknar hafa
verið. Það hefur ekki staðið á
meirihluta framkvæmda- og
hafnarráðs að ýta þessu verkefni
áfram en tafir vegna annríkis
verktaka hafa verið meiri en hægt er
að sætta sig við.
Fyrir liggur að fjármagn í
verkefnið er tryggt og búið er að
ákveða staðsetningu á lægi
Blátinds. Meirihluti framkvæmda-
og hafnarráðs samþykkir að fela
framkvæmdastjóra að ræða við
verktakann og ef fyrir liggur að
hann nái ekki að klára verkefnið
fyrir maílok 2017 þá leiti fram-
kvæmdastjóri til annarra verktaka
með verkefnið,“ segir í bókuninni
sem Sigursveinn Þórðarson, Jarl
Sigurgeirsson, Sindri Ólafsson og
Sæbjörg Logadóttir skrifa undir.
Hafþór Halldórsson kynnti
fyrirhugaðar framkvæmdir við
útisvæði og húsnæði endur-
vinnslustöðvarinnar við Eldfells-
veg á síðasta fundi fram-
kvæmda- og hafnarráðs.
Einnig kynnti hann athuganir á
kaupum á hakkara og færiböndum
sem miða að því að minnka rúmmál
þess sorps sem flutt er frá Vest-
mannaeyjum. Hakkari af þeirri gerð
sem hentar kostar um 45 milljónir
með uppsetningu. Fram kom að fara
þarf í hönnun og útboð á klæðningu
á húsnæðinu og hönnun útisvæðis.
Ráðið samþykkir að festa kaup á
hakkara og felur starfsmönnum
sviðsins að fara í hönnun og útboð á
klæðningu húsnæðis og útisvæði.
Fyrir bæjarstjórn í síðustu viku
lágu drög að reglum og verk-
efnum ungmennaráðs Vest-
mannaeyja sem voru samþykkt.
Þar með samþykkir bæjarstjórn
í samræmi við æskulýðslög frá
árinu 2007 að stofna ungmenna-
ráð sem er hugsað til að vera
sveitarstjórn til ráðgjafar um
málefni ungs fólks í Vestmanna-
eyjum.
Ungmennaráðið verður skipað
fimm fulltrúum á aldrinum 14 til 25
ára sem sitja í eitt ár í senn.
Bæjarstjórn óskar eftir því að
eftirtaldar stofnanir tilnefni árlega
einn fulltrúa fyrir 1. september ár
hvert. Einn fulltrúi frá Grunnskóla
Vestmannaeyja, skipaður af
nemendaráði unglingadeildar, einn
fulltrúi frá Framhaldsskóla
Vestmannaeyja, skipaður af
nemendafélagi skólans og þrír
fulltrúar skipaðir af bæjarstjórn.
Starfstími ráðsins er frá 15.
september og til 15. maí ár hvert og
skal bæjarráð annast skipan og sjá
til þess að boðað verði til fyrsta
fundar.
Ályktunin var samþykkt með sjö
samhljóða atkvæðum.
Blátindur VE 21 elsta tréskip
Eyjanna liggur undir skemmdum
:: Nái verktaki ekki að ljúka verkinu fyrir lok næsta mánaðar verður leita annað
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Almannavarnanefnd :: Jarð-
skjálftamælar og GPS mælingar
á fjöllum:
Þörf á fleiri
jarskjálfta-
mælum
á Heimaey
:: Koma á upp mælum til að
fylgjast með mögulegri hreyfingu
Norðurklettanna með tilliti til hruns
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Bæjarstjórn :: Ungmennaráð Vestmannaeyja
- bæjarstjórn unga fólksins:
Skipað fimm fulltrúum
14 til 25 ára til eins árs
Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja
:: Framtíðarskipan sorpmála:
Samþykkt að kaupa
hakkara til að minnka
ummál sorps