Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Qupperneq 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Landakirkja
Fimmtudagur 13. apríl.
- Skírdagur:
Kl. 20.00. Kvöldmessa. Sóknar-
nefndin aðstoðar við afskrýðingu
altaris í lok messu. Kór Landakirkju
syngur undir stjórn Kitty Kovács.
Sr. Viðar Stefánsson prédikar og
þjónar fyrir altari.
Föstudagur 14. apríl.
- Föstudagurinn langi:
Kl. 11.00. Guðsþjónusta. Fólk úr
söfnuðinum les píslarsöguna í stað
hefðbundinnar prédikunar. Kór
Landakirkju syngur undir stjórn
Kitty Kovács. Sr. Guðmundur Örn
þjónar fyrir altari.
Sunnudagur 16. apríl.
- Páskadagur:
Kl. 08.00. Hátíðarguðsþjónusta.
Kór Landakirkju syngur undir
stjórn Kitty Kovács. Sr. Guðmundur
Örn prédikar og þjónar fyrir altari.
Að guðsþjónustu lokinni er
morgunverður í Safnaðarheimilinu í
boði sóknarnefndar.
Kl. 10.30. Hátíðarguðsþjónusta á
Hraunbúðum. Kór Landakirkju
syngur undir stjórn Kitty Kovács.
Sr. Viðara Stefánsson prédikar og
þjónar fyrir altari.
Þriðjudagur 18. apríl:
Kl. 17.00. Æfing og mátun fyrir
fermingarbörn sem fermd verða
laugardaginn 22. apríl.
Kl. 18.00. Æfing og mátun fyrir
fermingarbörn sem fermd verða
sunnudaginn 23. apríl.
Kl. 20.00. Opið hús í KFUM&K-
húsinu.
Miðvikudagur 19. apríl.
- Síðasti vetrardagur:
Kl. 17.30. Alzheimer samvera.
Fimmtudagur 20. apríl.
- Sumardagurinn fyrsti:
Kl. 20.00. Æfing hjá kór Landa-
kirkju.
Viðtalstímar prestanna eru
þriðjudaga til föstudaga milli 11.00
og 12.00 í Safnaðarheimilinu.
Hvítasunnu-
kirkjan
Skírdagur kl. 20:00
Brauðsbrotning.
Föstudagurinn langi kl. 14:00
Bænastund.
Páskadagur kl. 14:00
Samkoma, ræðumaður Guðni
Hjálmarsson. Kaffi og spjall eftir á.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Eyjamaður vikunnar
Væri gaman að
drekka te með þeim
Jesú Kristi, Búdda
og Múhameð
Bjarni Sighvatsson, verkefnisstjóri
Flugvallastoðþjónustu Isavia,
stjórnaði vel heppnaðri flugslysaæf-
ingu á Vestmannaeyjaflugvelli um
síðustu helgi þar sem æfð voru
viðbrögð við ímynduðu flugslysi
flugvélar með 24 manns innan-
borðs. Slíkar æfingar eru reglulega
haldnar á öllum áætlunarflugvöllum
landsins en sjálfur hefur Bjarni tekið
þátt í um 40 æfingum á sínum ferli.
Bjarni Sighvatsson er Eyjamaður
vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Bjarni Sighvatsson.
Fæðingardagur: 19. júlí 1949.
Fæðingarstaður: Aðalból í
Vestmannaeyjum.
Fjölskylda: Konan mín heitir
Auróra Guðrún Friðriksdóttir og
sonur Sighvatur Bjarnason.
Draumabíllinn: Karlmenn eru
lauslátir þegar kemur að bílum og
falla léttilega fyrir hvaða fallegum
bíl sem er. Ætli ég myndi ekki enda
með G-class jeppann frá Mercedes-
Bens. Hann er klassískur og hefur
verið að fullkomnast í 40 ár.
Uppáhaldsmatur: Erfitt að velja
enda borðað margt dásamlega gott
um ævina. En til að enda einhvers-
staðar þá er best að nefna vel
grillaðan humar fljótandi í smjöri
og hvítlauk og af landdýrum er
líklega lambahryggur nærri
toppnum.
Versti matur: Ég borða allt þótt
misgott sé. Viðurkenni að ég lenti í
basli með að innbyrða nokkurs-
konar Þorramat þegar fjölskyldan
var á Grænlandi fyrir nokkrum
árum. Þar var allmargt sem þurfti
átak til að koma niður.
Uppáhalds vefsíða: Held ekki
trúnað við neina síðu enda óskap-
lega margar góðar. Fer þó oftast inn
á mbl.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Sigurrós, sekkjapípuleikur,
karlakórar, 68‘ grúppurnar og margt
annað sem gleður eyru hverju sinni.
Aðaláhugamál: Mannlíf, saga,
jarðfræði, trúarbrögð, tækni en
langmest að ferðast um heiminn.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Hefði gaman að fá að sitja eins og
eina eftirmiðdagsstund við
tedrykkju með þeim Jesú Kristi,
Búdda og Múhameð spámanni.
(Vildi kannski fá að spyrja þá: Hey,
hvað er eiginlega í gangi hjá ykkar
mönnum, væri ekki rétt að hafa
einhverja stjórn á þeim?).
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Sá staður sem gerir mig
orðfáan hverju sinni. Þeir eru of
margir til að mismuna þeim. Nú
seinast Ankor Wat við sólarupp-
komu.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Ég dáist að öllum
þeim sem leggja á sig að verða betri
í íþróttum þar með öllu þessu flottu
vestmannaeyíska og íslenska
íþróttafólki sem er að gera það gott
heima og heiman og eru stolt okkar.
Ertu hjátrúarfull/ur: Alls ekki. En
ég trúi því að það sé ekki allt sem
sýnist og margt sé okkur hulið.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Of litla. Hef stundum tekið rispur
og farið á fjöll með mínum gömlu
skátafélögum sem nú búa uppi á
Íslandi.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Spenna,
fróðleikur, saga, stjórnmál.
Hvað hefur þú tekið þátt í
mörgum flugslysaæfingum: Um
fjörutíu.
Hvernig fannst þér æfingin hafa
gengið: Hún gekk vel sem kom mér
ekki á óvart og var „okkar“ fólki til
sóma.
Var samstarf viðbragðsaðila jafn
gott og þú þorðir að vona:
Algerlega og það kom mér heldur
ekki á óvart. Ég kannast allvel við
blómann af þessu fólki og átti von á
góðri vinnu. Hafði helst áhyggjur
af veðri sem alltaf getur haft
neikvæð áhrif á æfingar, en það
slapp til.
Eitthvað að lokum: Vil kannski fá
að nota tækifærið og þakka öllum
þeim sem tóku þátt í æfingunni með
kveðju frá okkur í baklandi
æfingarinnar.
Bjarni Sighvatsson
er Eyjamaður vikunnar
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Kæru ættingjar og vinir.
Þann 3. apríl síðastliðinn hélt ég
upp á minn 95. afmælisdag. Sá
dagur var í alla staði yndislegur. Ég
hitti mikið af mínum góðu ætt-
ingjum og vinum, ekki bara þennan
mánudag, heldur einnig helgina á
undan, þegar við glöddumst saman
á Einsa Kalda.
Mig langar að þakka öllum sem
heimsóttu mig, sendu mér blóm eða
kveðju í tilefni tímamótanna, frá
mínum dýpstu hjartans rótum. Að
finna svo sterkt fyrir því ríkidæmi
sem yndislegir ættingjar og vinir
eru, yljar mér enn. Mig langar
einnig að þakka starfsfólki Hraun-
búða fyrir alla aðstoðina, faðmlögin
og hlýjuna. Það er dýrmætt að eiga
að jafn gott fólk og við sem búum á
Hraunbúðum eigum. Einnig vil ég
þakka Einsa Kalda fyrir alla
aðstoðina við afmælið mitt. Guð
blessi ykkur öll.
Kveðja
Dóra frá Bólstaðarhlíð.
MiKAEL MAgNúSSoN
fermdist borgaralega sunnudaginn
2. apríl í Háskólabíó í Reykjavík.
Foreldrar hans eru Fjóla Finn-
bogadóttir og Magnús Gíslason.
Þau búa að Fjólugötu 27.
HJartanS þaKKIr
FErMIngarBarn
Það verður sannkallaður stórdans-
leikur í Höllinni í kvöld, miðviku-
dagskvöldið 12. apríl, þegar eitt
allra vinsælasta ballband landsins
mætir í Höllina. Stuðlabandið hefur
algjörlega slegið í gegn undanfarin
ár.
Ekki bara á böllum þeirra í
Höllinni, heldur einnig á Þjóðhátíð
og á fjölmörgum öðrum skemmt-
unum víðs vegar um landið.
Bandið er ótrúlega þétt og peyjarnir
frá Selfossi og nágrenni eru heldur
ekkert að pása sig of mikið, þeir
spila og spila og markmiðið alltaf
það sama. Að fólk dansi, syngi og
skemmti sér með þeim. Ekki láta
þetta frábæra band fram hjá þér
fara. Komdu í Höllina, sýndu þig
og sjáðu aðra. Húsið opnar kl.
23.59 og það er sama lága verðið,
2.500,- kall inn. Góða skemmtun.
Fréttatilkynning.
Stuðlabandið í Höllinni