Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Page 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017
Eftir að raki kom upp í Ráðhúsinu
fluttu bæjarskrifstofurnar á aðra
hæðina í húsi Landsbankans við
Bárustíg. Miklar og dýrar aðgerðir
þarf til að gera Ráðhúsið, sem
upphaflega var byggt sem sjúkrahús
nothæft á ný. Nokkuð ljóst er að
bæjarskrifstofurnar munu ekki flytja
þangað aftur og þá er að finna því
hlutverk. Nú er uppi hugmynd um
að þar verði viðhafnarsalur bæjarins
og fágætissafn sem m.a hýsi
ómetanlegt safn bóka sem Ágúst
Einarsson gaf Bókasafninu fyrr á
þessu ári.
Á síðasta fundi bæjarráðs lá fyrir
erindi frá Arnari Sigurmundssyni,
Kára Bjarnasyni og Helga Bernó-
dussyni varðandi hugmyndir og
tillögur um Menningarsafn og
hátíðarsal í Ráðhúsi Vestmannaeyja.
Ráðið vísar í eigin samþykkt frá 16.
febrúar sl. og síðar erindi Elliða
Vignissonar bæjarstjóra til Kára,
Helga og Arnars sem var falið að
koma með hugmyndir eða tillögur í
framhaldi af bókagjöf Ágústar
Einarssonar til Vestmannaeyjabæjar
og Bókasafns Vestmannaeyja, sem
tilkynnt var um við hátíðlega athöfn
í Einarsstofu 11. febrúar 2017.
Þeir þremenningar hafi ekki setið
með hendur í skauti og segja í
erindi sínu að nú liggi fyrir að
bæjaryfirvöld séu að skoða í fyllstu
alvöru þann möguleika að öll
starfsemi, sem verið hefur í Ráðhúsi
Vestmannaeyja, flytjist í heppilegra
húsnæði þar sem starfsemin geti
verið á einni hæð í stað þriggja.
„Þeirri spurningu var varpað til
okkar hvort við teljum að núverandi
Ráðhús, við hlið Safnahússins, geti
verið heppilegt húsnæði undir
fágætissafn og sérstök söfn sem nú
búa við talsverð þrengsli í Safna-
húsinu,“ segja þeir í erindinu og eru
jákvæðir fyrir hugmyndinni þó fara
þurfi í talsverðar viðgerðir á
húsnæðinu, en sumt af þeim
framkvæmdum, t.d. í kjallara, geta
fallið á lengri tíma.
Þeir sjá fyrir sér að þar gætu verið
hluti af fágætissafni Ágústar Einars-
sonar, valin listaverk í eigu
Vestmannaeyjabæjar, m.a. eitt
stærsta safna Kjarvalsmálverka á
landinu, teikningar Sigmund,
ljósmyndasafn Sigurgeirs Jónas-
sonar og Ljósmyndasafn Vest-
mannaeyja.
Þeir þremenningar sjá enn fremur
fyrir sér að í Ráðhúsinu mætti koma
fyrir vinnuaðstöðu fyrir fræðimenn,
sem þá fengjust við efni sem
tengdust atvinnu- og menningar-
málum og byggðaþróun í Eyjum,
sem dæmi. „Þá leggjum við áherslu
á að í húsinu yrði minnst Gísla J.
Johnsens sem átti mestan þátt í
byggingu hússins og var um tíma
ein helsta máttarstoð í atvinnulífi
Vestmannaeyja, á miklum upp-
gangs- og umbrotatímum. Eitt
herbergi mætti helga minningu
þeirra Gísla og konu hans, Ásdísar
Gísladóttur. Safnahúsinu hafa í
seinni tíð áskotnast margir munir úr
búi Gísla J. Johnsens.
Í þessu sambandi væri einnig
áhugavert að segja byggingarsögu
hússins og sögu þeirrar starfsemi
sem var í húsinu frá 1928, þ.e.
Sjúkrahúss Vestmannaeyja og
annarrar heilbrigðisþjónustu sem
þar var, ásamt upplýsingum um
viðbyggingu og útihús sem tengdust
starfsemi þess.
Við teljum einnig að koma mætti
fyrir í Ráðhúsinu virðulegum
móttökusal fyrir bæjarstjórn og
bæjaryfirvöld í núverandi bæjar-
ráðssal fyrir minni móttökur. Hægt
væri að samnýta salinn til að sýna
jafnframt ýmsar perlur úr sögu og
náttúru Vestmannaeyja, t.d. í
sýningarskápum, hillum eða á
veggjum.
Við leggjum til að sýningarhönn-
uður verði ráðinn til að móta
heildarmynd þessa glæsilega og
virðulega húss þannig að það nýtist
við hátíðleg tækifæri og sem
viðeigandi umgjörð um margra af
fágætustu og verðmætustu munum í
eigu bæjarins,“ segja Kári, Helgi og
Arnar sem leggja til að umsjón með
húsinu verði í höndum forstöðu-
manns Safnahússins.
Bæjarráð hlynnt erindinu
Þeir segja að endurbætur og
breytingar muni kosta sitt en með
samlegð við Safnahúsið, rekstur
þess og starfsmannahald, ætti ekki
að verða verulegur varanlegur
aukakostnaður við þá starfsemi í
Ráðhúsinu sem hér er lögð til.
„Æskilegt væri að geta tekið 2. og
3. hæð Ráðhússins í notkun eigi
síðar en í febrúar 2019 þegar þess
verður minnst að 100 ár eru liðin
frá því að bæjarstjórn Vestmanna-
eyja tók til starfa,“ segja þeir og eru
tilbúnir að vera bæjaryfirvöldum
frekar innan handar varðandi
útfærslu á hugmyndum þessum
verði þess óskað.
Í fundargerð segir að bæjarráð sé
jákvætt fyrir hugmyndum þeirra og
fól bæjarstjóra að skila minnisblaði
til ráðsins þar sem hugmyndinni er
stillt upp sem verklegri fram-
kvæmd. Þá samþykkir ráðið að taka
til sérstakrar umfjöllunar framtíðar-
staðsetningu bæjarskrifstofa þegar
minnisblað bæjarstjóra liggur fyrir.
Merkileg saga
Fyrir liggur að ráðast þarf í
ákveðnar tímafrekar framkvæmdir
við viðhald Ráðhúss Vestmanna-
eyja. Húsið var byggt sem Sjúkra-
hús Vestmannaeyja og tekið í
notkun 1928. Húsið var gert að
Ráðhúsi Vestmannaeyja um 1977,
að loknum umtalsverðum við-
gerðum en þá hafði engin starfsemi
verið í húsinu frá því um gosnóttina
23. janúar 1973.
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á Ráðhúsinu á undanförnum
árum og er það nú eitt hið glæsi-
legasta hús sem finna má í Eyjum
og þótt víðar væri leitað. Raki,
einkum í kjallara og með gluggum,
hefur orðið til þess að starfsemin í
húsinu var flutt til bráðabirgða í
annað húsnæði haustið 2016.
Hugmyndir og tillögur um Menningarsafn og hátíðarsal í Ráðhúsi Vestmannaeyja:
Gæti hentað fyrir bókagjöf
Ágústar Einarssonar og
fleiri söfn í eigu bæjarins
:: Sjá fyrir sér virðulegan móttökusal fyrir minni móttökur :: Æskilegt að 2. og 3. hæð
verði tilbúnar á 100 ára afmæli bæjarins í febrúar 2019
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Ágúst Einarsson gaf Vestmannaeyjabæ fyrr á þessu ári fágætissafn
merkra bóka. gjöfinni fylgdi sú ósk að bækurnar yrðu aðgengilegar
almenningi.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Ráðhúsinu á undanförnum
árum og er það nú eitt hið glæsilegasta hús sem finna má í Eyjum og
þótt víðar væri leitað. Raki, einkum í kjallara og með gluggum, hefur
orðið til þess að starfsemin í húsinu var flutt til bráðabirgða í annað
húsnæði haustið 2016.
Að undanförnu hafa ráðamenn
þjóðarinnar verið óþreytandi við að
skýra fyrir okkur hversu vel allt
gengur hjá okkur hér á landi.
Bókstaflega allt sé í blóma.
Við þurfum hins vegar ekki að
kafa djúpt til þess að sjá hve hæpin
og röng sú mynd er sem þeir draga
upp fyrir okkur. Dæmin tala:
• Heilbrigðisþjónustan er í molum og engar lausnir fram undan.
Landspítalinn er yfirhlaðinn og
fjárvana og það bitnar auðvitað á
sjúklingum, einkum þeim sem
minnst mega sín.
• Sífellt er þrengt að menntakerfinu og nám gert erfiðara, sérstaklega
fyrir venjulegt fólk.
• Samgöngukerfi landsmanna er megnasta ólestri og áætlanir um
umbætur eru gersamlega úr takti
við þá þörf sem blasir við.
• Kjör aldraðra og öryrkja eru skammarleg. Fálmkenndar og
yfirborðslegar aðgerðir duga
engan veginn til að bæta þar úr.
• Húsnæðismál ungs fólks eru algerum ólestri.
• Raunveruleg fátækt kemur æ oftar
til umræðu þegar félagsleg
staða landsmanna er skoðuð.
Ráðamenn þjóðarinnar annað
hvort afneita þessum staðreyndum
eða segja okkur að ekki séu til
peningar til þess að sinna því sem
hér er gert að umræðuefni. Og þar
með er málið afgreitt af þeirra
hálfu.
Það eru reyndar til meira en nóg af
peningum í þessu landi. Vandamálið
er hins vegar það að núverandi
stjórnvöld eru ekki tilbúin undir
nokkrum kringumstæðum að sækja
þá penings sem nægðu til að koma
heilbrigðisþjónustunni í lag, bæta
menntakerfið, vinna að nauðsynlegu
úrbótum í samgöngumálum, bæta
úr húsnæðismálum ungs fólks og
útrýma fátækt í landinu.
Þessir peningar eru nefnilega í
höndum hins auðuga hluta
þjóðarinnar, þess hluta sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur slegið
skjaldborg um. Flokkurinn stundar
nefnilega grímulausa hagsmuna-
gæslu fyrir hina ríku á kostnað
þeirra sem minna og lítið sem
ekkert hafa til skiptanna. Meðan
þetta ástand varir eykst ójöfnuðinn í
landinu og vandamál þeirra sem
minnst hafa gera lítið annar en að
aukast.
Við hér í Eyjum höfum ekki farið
varhluta af stöðunni. Og þá komum
við að þessu með samhengi
hlutanna. Á meðan ríkisstjórnin
neitar að nota þá peninga sem til
eru í heilbrigðismál er varla von til
þess að að byggja upp nauðsynlega
heilbrigðisþjónustu í Eyjum. Það er
heldur ekki von til þess að við
getum gert okkur raunhæfar vonir
um úrbætur í samgöngumálum,
hvorki á sjó né landi. Ófullnægjandi
framlög og stöðugur niðurskurður
ríkisins til flugsamgangna innan-
lands mun einungis minnka
þjónustu víða um land. Þetta dæmi
þekki ég sérstaklega það sem ég hef
setið í stjórn Isavia um nokkurt
skeið og orðið vitni að því hvernig
ríkið svíkur gefin loforð um
framlög til flugvalla sem óhjá-
kvæmilega, en því miður, kallar á
samdrátt í allri flugvallastarfsemi.
Árásir á aldraða og öryrkja munu
halds áfram hér í Eyjum sem annars
staðar og ungu fólki verður gert
ókleift að hafa aðgang að húsnæði.
Ofan á þetta allt mun síðan fátækt
aukast.
Það blasir sem sé við að beint
samhengi er milli stefnu núverandi
ríkisstjórnar undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins og þess ástands sem
lýst hefur verið hér að framan.
Svo leyfir ólíklegasta fólk, jafnvel
frammámenn hér í Eyjum að bera
það á borð fyrir okkur að Sjálf-
stæðisflokkurinn gæti hagsmuna
almennings á sama tíma og bilið
milli þeirra sem mest og minnst
hafa eykst sífellt.
Það er þetta með samhengið
ragnar Óskarsson