Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Blaðsíða 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017
Pólska skipasmíðastöðin CRIST
S.A., sem samið var við um
smíði á nýrri Vestmannaeyja-
ferju, er komin á fullt í verk-
efninu en þetta kom fram á vef
Vegagerðarinnar í síðustu viku.
Nýverið birti stöðin teikningar af
útliti nýju ferjunnar og er ekki
annað að sjá en að hönnunarvinna
gangi bara nokkuð vel. Jafnframt
segir að skipið fari í líkanaprófanir
eftir páska en pöntun á aðalvél-
búnaði, skrúfum o.fl. slíku er lokið.
Eiginleg smíði ferjunnar mun
hefjast í júlí eða ágúst þegar búið
verður að leggja kjölinn. Gert er þó
ráð fyrir að stálskurður hefjist strax
í maí.
Stefnt er á að smíðinni ljúki næsta
sumar eins og áætlanir gera ráð
fyrir en þar er reiknað með því að
ný ferja verði komin í gagnið fyrir
Þjóðhátíð 2018.
Á öllum áætlunarflugvöllum
landsins eru reglulega haldnar
umfangsmiklar æfingar sem reyna á
viðbrögð vegna flugslysa. Isavia
hefur yfirumsjón með þessum
flugslysaæfingum en auk félagsins
kemur að undirbúningi og fram-
kvæmd æfinganna fjöldi annarra
viðbragðsaðila, t.d. almannavarnar-
deild Ríkislögreglustjóra, slökkvi-
lið, lögregla, heilbrigðisstofnanir,
sjúkraflutningar, björgunarsveitir,
Rauði krossinn, Landhelgisgæslan,
Neyðarlínan og prestar.
Slík æfing fór fram á Vestmanna-
eyjaflugvelli sl. laugardag þar sem
æfð voru viðbrögð við ímynduðu
flugslysi flugvélar með 24 manns
innanborðs. Fjöldi ráðgjafa auk
heimamanna tóku þátt í æfingunni
sem heppnaðist með ágætum
samkvæmt upplýsingum frá Isavia.
Að æfingu lokinni voru viðbrögð
rýnd og að lokum er gerð skýrsla
um hvað var vel gert og hvað mætti
betur fara.
Flugslysaæfingar eru almanna-
varnaæfingar og eru jafnan með
stærstu hópslysaæfingum sem
haldnar eru ár hvert og mikilvægar
heildarviðbragðskerfi Íslands hvort
sem um flugslys eða önnur hópslys
er að ræða. Isavia heldur utan um
skipulag æfinganna en mikill fjöldi
annarra viðbragðsaðila kemur að
þeim eins og fyrr segir en frá árinu
1996 hefur Isavia haldið yfir 50
flugslysaæfingar.
Æfðar eru björgunar- og slökkvi-
aðgerðir, greining og aðhlynning
slasaðra auk umönnunar óslasaðra
og aðstandenda. Auk þess er áhersla
lögð á samhæfingu vegna flutnings
slasaðra, boðunarkerfi, stjórn,
fjarskipti, rannsókn á vettvangi og
fleira. Um tvær til fjórar æfingar eru
haldnar ár hvert, en stór flug-
slysaæfing er haldin á hverjum
flugvelli á fjögurra ára fresti.
Æfingarnar byggja á flugslysaáætl-
un sem gerð hefur verið fyrir hvern
flugvöll.
Flugslysaæfing í Vestmannaeyjum:
Umfangsmikil og vel heppnuð
:: Æfð voru viðbrögð við ímynduðu flugslysi flugvélar með 24 manns innanborðs
:: Fjöldi ráðgjafa auk heimamanna tóku þátt
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Útlitsteikningar af nýrri Vestmannaeyjaferju :: Allt samkvæmt áætlun, segir Vegagerðin:
Á að vera komin í gagnið fyrir
Þjóðhátíð 2018