Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Síða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Síða 13
13Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017 Það var skemmtlegt að kíkja á Vörumessu Ungra frumkvöðla sem fram fór í Smáralind laugardaginn fyrsta apríl. Fjöldi fólks lagði þangað leið sína og skoðaði vörur og þjónustu sem framhaldsskólanemar hafa unnið að en 63 örfyrirtæki um 300 framhaldsskólanema tóku þátt í vörumessunni. Framhaldsskólinn í Vestmanna- eyjum átti sína fulltrúa þar sem mættir voru fimm hópar til að kynna framleiðslu sína sem unnin er frá grunni. Frá hugmynd til vöruþróunar og markaðssetningar, hönnun umbúða og sölu. Það var gaman að sjá hversu mikla vinnu krakkarnir höfðu lagt í þetta og voru ófeimin að koma sér á framfæri á sýningunni og bjóða vörur sínar til sölu. Alls fóru fimm hópar ungra frumkvöðla frá FÍV í Smáralind til að kynna og selja vörur sínar. Fjórir hópar fengu viðurkenningu sýningardaginn en 15 fyrirtæki ungra frumkvöðla komast í úrslitakeppni sem fer fram 25. apríl og mun sigurvegarinn í þeim úrslitum verða fulltrúi Íslands í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla. Fyrirtækin sem fóru frá FÍV má sjá hér á myndunum. Vel sótt Vörumessa ungra frumkvöðla í Smáralind :: Framhaldsskólinn sendi fimm hópa: Borðspil, hollusta, súkkulaði, snagar og hundagott Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is < Kjarninn, Brynjar ingi Óðinsson, guðmundur Kári guðmundsson, Víðir gunnarsson og Bjarki Svavarsson. Kjarni hannaði og framleiddi borðspil. Á myndina vantar Bjarka. Enjoy, Dagbjört Lena Sigurðardóttir, Elísa Sjöfn Sveinsdóttir, Elsa Rún Ólafsdóttir og Eva Lind ingadóttir. Enjoy framleiddi þrjár gerðir af hollu, fljótlegu og góðu sætindum. Það er með kókos- kúlur, hafragott og hrökkkex sem er tilbúið í dollu nema í hrökkbrauðið en í það þarf að bæta vatni og olíu og baka. Allar vörurnar eru sykurlausar og vegan. Hér kynna stúlkurnar vöruna fyrir Þór Sigfússyni, einum úr dómnefndinni. Molaire, gíslný Birta Bjarkadóttir, inga Birna Sigursteinsdóttir og Maríanna Ósk Jóhannsdóttir. Molaire selur heimagert súkkulaði og er hægt að velja um þrjár grunnbragðtegundir. Hvítt súkkulaði, dökkt súkkulaði eða rjómasúkkulaði sem er með skemmtilegri bragðblöndun. Allt sem tengist vörunni er heimagert, súkkulaðið sjálft og umbúðirnar. Á myndina vantar Maríönnu Ósk. Eyjasteinn, Daníel ingi Sigur- jónsson og Ágúst Marel gunnars- son. Fyrirtækið Eyjasteinn hannaði og framleiddi náttúru- lega snaga úr fjörum Vestmanna- eyja sem nefnast Fjörusteinn. Hægt er að fá snagana í ýmsum útfærslum. Á myndinni má sjá Daníel inga við snagana góðu. > Hundagott, Agnes Stefánsdóttir, Margrét Björk grétarsdóttir, Sirrý Rúnarsdóttir og Unnur Ástrós Magnúsdóttir. Hundagott framleiðir þurrkað hágæða fiskroð úr ferskum fiski. Roðið er ætlað sem heilsu- samlegt nammi fyrir hunda. Á myndina vantar Sirrý. Í síðasta blaði varpaði Oddur Júlíusson fram góðum spurningum varðandi félagslega húsnæðiskerfið. Ég ætla eftir bestu getu að svara þessum góðu spurningum. 1. Hvað eru margir skjólstæð- ingar félagsþjónustunnar í húsnæði á vegum Vestmannaeyja- bæjar? 21 einstaklingur er í húsnæði á vegum Vestmannaeyja- bæjar. Með íbúðum fyrir aldraða eru þetta hins vegar 57 íbúðir. 2. Hvað er langur biðlisti eftir slíkum íbúðum? Biðlistinn er mjög breytilegur og inntaka af honum fer eftir aðstæðum og þörfum. Í dag eru 14 á biðlista og allir þeirra í húsnæði. Biðtími eftir íbúð getur verið mislangur. 3. Hvert er leiguverð á fermetra á hinum frjálsa markaði? Ekki alveg ljóst en upplýsingar sem sveitarfélagið hefur bendir til að þetta sé um 1600 – 1700 kr á fermetra. 4. Hver eru áform Vestmanna- eyjabæjar vegna byggingu á leiguhúsnæði? Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að byggja 11 íbúðir til leigu fyrir fatlað fólk, auk þess stendur til að byggja fleiri þjónustu- íbúðir fyrir aldraða. 5.Vita bæjaryfirvöld til þess að búið sé í ósamþykktu húsnæði? Nei, bæjaryfirvöld hafa ekki vitneskju um slíkt. Það er hlutverk lögregluyfirvalda að fylgjast með slíku. Takk fyrir góðar spurningar, Oddur. Bestu kveðjur, Trausti Hjaltason. Svör vegna leiguhúsnæðis trausti hjaltason formaður fjölskyldu- og tómstundarráðs. Það er aldrei of oft sagt hversu Sunnlendingar eru heppnir með Fjölbrautarskólann sinn. Sem hjúkrunarstjórnandi á heilsugæsl- unni á Selfossi hefur það verið okkur dýrmætt að boðið sé upp á sjúkraliðanám á svæðinu. Sjúkra- liðanám hefur verið kennt til fjölda ára við FSu og höfum við því verið svo lánsöm hér á heilsugæslunni á Selfossi að geta mannað með vel menntuðum sjúkraliðum í heima- hjúkrun. Með slíkum mannauði getum við tryggt gæðaþjónustu til okkar skjólstæðinga sem þiggja heimahjúkrun. Á heilbrigðisstofnunum eru margir fagaðilar sem koma að þjónustu við skjólstæðinga sem þangað leita. Mikilvægt er að keðja þeirra sem að slíkri þjónustu koma slitni ekki og eru allir hlekkirnir jafn mikilvægir. Sjúkraliðar eru sú stétt sem vinnur náið með hjúkrunarfræðingum og gætu þessar stéttir illa án hvor annarrar verið. Því er mikilvægt að traust, virðing og samvinna sé höfð að leiðarljósi í þeirra samstarfi. Við hér á heilsugæslunni höfum verið lánsöm með okkar fagfólk sem leitast við að vinna sem ein heild til að veita íbúum sem besta þjónustu. Sjúkraliðanámið er spennandi nám fyrir þá sem hafa áhuga á mann- legum samskiptum, heilbrigði, forvörnum og hjúkrun. Sjúkraliðar í heimahjúkrun fá að vinna sjálfstætt en í mikilli samvinnu við hjúkr- unarfræðinga og lækna. Hjá okkur sjá sjúkraliðar um ýmsar rann- sóknir, aðstoða í móttöku hjúkr- unarfræðinga, sinna heimahjúkrun og öðru því sem til fellur á stöðinni. Ef þú ert óákveðinn um hvað þig langar að gera í framtíðinni viljum við benda á að sjúkraliðanám er spennandi kostur sem einnig er góður grunnur fyrir frekara nám í heilbrigðisvísindum. f.h. Heilbrigðisstofnun Suðurlands Unnur Þormóðsdóttir og Agnes Linda Þorgeirsdóttir Sjúkraliðanám er spennandi kostur unnur Þormóðsdóttir Hjúkrunarstjóri hei lsu- gæslunnar á Selfossi agnes linda Þorgeirsdóttir Sjúkral iði í heimahjúkrun á hei lsugæslustöð Selfoss Sjúkraliðanámið er spennandi nám fyrir þá sem hafa áhuga á mannlegum samskiptum, heil- brigði, forvörnum og hjúkrun. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.