Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Síða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. apríl 2017 ÍBV og Valur mættust í átta liða úrslitum íslandsmótsins á sunnudaginn þar sem heimamenn í ÍBV fóru með sigur af hólmi, 29:21. úrslitin segja ekki alla söguna því mikil spenna ríkti bróðurpart leiks. Mikill hiti var í mönnum líkt og í viðureign liðanna í lokaumferð Olís-deildarinnar þar sem allavega lituð spjöld litu dagsins ljós og orð látin falla í samræmi við það. Lengst af nokkuð jafnræði með liðunum en ÍBV þó alltaf skrefinu á undan. Munurinn í hálfleik var fjögur mörk og var það ekki síst Stephen Nielsen að þakka í markinu. Í upphafi síðari hálfleiks náðu Valsmenn að minnka muninn í tvö mörk en nær komust þeir ekki. Eyjamenn sýndu þá hversu megnugir þeir eru og juku forystuna hægt og sígandi og áður en langt var um liðið var munurinn kominn hátt í tíu mörk. Á lokamínútunum gafst því tækifæri til að hvíla lykilmenn fyrir komandi átök en það kom ekki að sök og öryggið uppmálað hjá ÍBV. Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur með sex mörk og varði Stephen Nielsen 17 skot í markinu. Liðin mætast aftur í kvöld kl. 20:30 en þá verður leikið í Valshöllinni. Einungis þarf að sigra tvo leiki í viðureignum í átta liða úrslitanna þannig með sigri í kvöld tryggja Eyjamenn sér farseðilinn í undanúrslit þar sem þeir mæta annað hvort Fram eða Haukum. Eyjafréttir höfðu samband við Magnús Stefánsson, fyrirliða ÍBV, í gær og ræddu við hann um komandi verkefni. Virkilega góður sigur gegn Val á sunnudaginn, þú hlýtur að vera nokkuð ánægður með spilamennsku liðsins? „Já, mjög svo, það er ekki hægt að segja annað. Það var flottur karakter í mönnum og allir að róa í sömu átt,“ segir Magnús sem þurfti á aðhlynningu að halda í síðasta leik eftir að hafa orðið fyrir hnjaski. Hvernig er heilsan hjá þér í dag? „Ég er bara þokkalegur, þetta er bara hluti af þessu þó maður reikni svo sem aldrei með því að lenda í skakkaföllum. Það eru svo bara þjálfararnir sem taka ákvörðun með framhaldið en ég er klár ef þeir vilja nota mig en ég skil það vel ef þeir vilja spara mig,“ segir fyrirliðinn. Það hefur verið mikill hiti í mönnum í síðustu tveimur leikjum, fylgir það bara þegar komið er á þetta stig tímabilsins eða er eitthvað annað undirliggjandi? Nei, þetta fylgir þessu bara. Fyrri leikurinn var síðasti leikur fyrir úrslitakeppni og öll lið að komast í gírinn og það fylgir því oft smá hamagangur. Í svona keppni er hver leikur tekinn eins og úrslitaleikur.“ Hvernig sérðu fyrir þér að leikurinn á morgun eigi eftir að spilast? „Ég á von á alveg hörkuleik og sennilega ekki ósvipuðum þeim síðasta, mikill hraði, góðar varnir og hart tekist á. Það fer líka eftir dagsforminu og hvernig hver og einn nálgast leikinn persónulega og þar hef ég ekki stórar áhyggjur af mínum mönnum. Ég veit svo sem ekki hvernig Valsmenn koma til með að leggja upp þennan leik en ég býst við mun sterkara Valsliði en síðast,“ segir Magnús. Ef svo fer að þið vinnið Val annað kvöld, er eitthvert lið óska mótherj- inn í undanúrslitum? „Nei, í sjálfu sér ekki, Haukar eru frábærir og hafa sýnt það en það er hið sama hægt að segja um Fram. Þeir eru með mjög frambærilegt lið og geta tekið hvaða lið sem er, þeir hafa bæði góða einstaklinga og góðan þjálfara. Við verðum bara að vera tilbúnir að taka við hverju sem er,“ segir Magnús. Stuðningsmennirnir voru alveg ótrúlegir í leiknum gegn Val og eru það alla jafna. Þetta hlýtur að skipta ykkur gríðarlega miklu máli? „Það er ekkert hægt að horfa fram hjá því hvað þeir gera fyrir okkur í úrslitakeppninni og eru mikilvægur hlekkur og þeir virka oft eins og auka maður inni á vellinum, sérstaklega í vörninni. Maður hefur heyrt önnur lið tala um hversu öfundsverðir stuðningsmenn okkar eru sem og öll umgjörðin í kringum liðið. Svo ef það á að fara að sekta lið útaf einhverjum látum í unglingum í stúkunni þá verða menn að spyrja sig hvort þeir vilja yfir höfuð hafa stemningu á leikjum eða hafa þetta eins og í bænum þar sem 30 til 40 manns mæta á leiki og enginn segir neitt,“ segir Magnús að lokum. Íþróttir u m S j Ó n : Einar KriSTinn HELGaSon einarkristinn@eyjafrettir.is ÍBV þurfti að sætta sig við tap, 23:32, þegar liðið mætti gróttu í Vestmannaeyjum á sunnudaginn. gestirnir náðu fljótt forystu í leiknum og var aldrei líklegt að ÍBV myndi ógna henni að neinu ráði. Fyrir leikinn var ljóst að ÍBV átti ekki möguleika á fjórða sætinu og hafði því ekki að miklu að keppa. Eyjakonur litu nokkuð vel út til að byrja með og skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins. Grótta svaraði hins vegar með þremur mörkum og virtist allt stefna í hörku leik. Í stöðunni 4:4 settu gestirnir í næsta gír og skoruðu næstu sex mörk í leiknum án þess að ÍBV kæmi nokkrum vörnum við. Eftir það voru liðsmenn ÍBV aldrei líklegir til afreka og virkuðu kærulausir á köflum. Í hálfleik var munurinn orðinn tíu mörk og í raun formsat- riði fyrir gestina að klára dæmið sem þeir vissulega gerðu og níu marka tap ÍBV staðreynd. Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV en henni tókst að skila boltanum átta sinnum í net andstæðinganna. Svekkt að ná ekki inn í úrslitin Nú þegar ljóst er að tímabilinu er lokið hjá kvennaliði ÍBV í hand- bolta, höfðu Eyjafréttir samband við Hrafnhildi Skúladóttur, þjálfara liðsins, og fengu hana til að líta yfir farinn veg sem og ræða framtíð hennar hjá félaginu. „Við endum í 5. sæti þar sem okkur var spáð en ég er mjög svekkt að hafa ekki náð inn í úrslitakeppni og það var alltaf okkar markmið,“ segir Hrafnhildur þegar hún gerir upp leiktíðina. „Við byrjum rosalega vel og svo meiðist Karó og liðið missir trú fyrir Stjörnuleikinn þar sem við töpum stórt og það tók bara of langan tíma að fá trúna á verkefnið til baka. Hausinn á leikmönnum var okkar langstærsta vandamál í vetur og það er eitthvað sem við þurfum að vinna mikið með. Getan er vissulega til staðar en á meðan hausinn fylgir ekki með þá er þetta erfitt.“ Það komu kaflar þar sem liðið sýndi virkilega góða spilamennsku og virtist vera til alls líklegt og sömuleiðis kaflar með hinu gagnstæða. Gott dæmi er sex marka sigur á Fram og svo níu marka tap fyrir Stjörnunni í leiknum á eftir. Hvað veldur þessu óstöðugleika að þínu mati? „Hausinn, okkur hefur alltaf gengið vel á móti Fram og leikmenn hafa alltaf bullandi trú á því verkefni. Andlega hliðin hefur allt að segja í íþróttum og meðan liðið er ekki sterkara þar þá verður alltaf þessi óstöðugleiki,“ segir Hrafnhildur. Hver er þín framtíð hjá félaginu? „Okkur fjölskyldunni líður mjög vel í Vestmannaeyjum og getum vel hugsað okkur að vera áfram. Nú þarf bara að sjá hvort að allt gangi upp húsnæðis- og handboltalega séð,“ segir Hrafnhildur sem þegar er farin að huga að næstu leiktíð. „Við erum búin að hafa samband við nokkra leikmenn en mikilvæg- ast af öllu er að sjá hverjum við höldum af okkar leikmönnum.“ Handbolti | Olís-deild kvenna: tap gegn Gróttu í lokaumferðinni Stjarnan 21 17 1 3 582 76 35 Fram 21 17 1 3 522 67 35 Haukar 21 12 0 9 502 16 24 Grótta 21 11 1 9 517 15 23 ÍBV 21 8 1 12 545 -9 17 Valur 21 8 0 13 495 -16 16 Selfoss 21 6 0 15 540 -34 12 Fylkir 21 2 2 17 458 -115 6 Olísdeild kvenna - lokastaða Handbolti | Olís-deild karla: ÍBV komið yfir í einvíginu gegn Val :: Liðin eigast aftur við í kvöld kl. 20.30 :: Sýndur á rÚV2 Framundan Miðvikudagur 15. maí Kl. 20:30 Valur - ÍBV Laugardagur 15. maí Kl. 16:00 ÍBV – Valur Oddaleikur - átta liða úrslit ef á þarf að halda. Undanúrslit: Miðvikudagur 19. apríl kl. 20 Föstudagur 22. apríl kl. 19:30 Laugardagur 22. apríl kl. 16:00 Mánudagur 24. apríl kl. 20:00 Fimmtudagur 27. apríl kl. 20 Laugardagur 29. apríl kl. 16:00 úrslit: Föstudagur 12. maí kl. 20:00 Mánudagur 15. maí kl. 20:00 Miðvikudagur 17. maí kl. 20 Laugardagur 20. maí kl. 16:00 Mánudagur 22. maí kl. 20:00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.