Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Qupperneq 16

Fréttir - Eyjafréttir - 12.04.2017, Qupperneq 16
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir TVÆR FERÐIR Á DAG - ALLA DAGA Frá Þorlákshöfn 11:45 19:15 Frá Vestmannaeyjum 08:00 15:30 Opið Mán-fös kl. 7.30-21.00 / Lau. kl. 10-21 / Sun kl. 10-21 VöruVal góð Verslun í alfaraleið Ný tilboð vikulega. Heimsendingarþjónusta. Opið frá 7:30 - 21:00 virka daga og 10:00 - 21:00 um helgar. SuShi frá Osushi kemur til okkar föstudaga kl. 17.30. Tökum niður pantanir! Axel Ingi Viðarsson, eigandi Selfossbíó, setti stefnuna á að opna bíó í Vestmannaeyjum haustið 2016 en hin og þessi atriði settu strik í reikninginn og urðu þess valdandi að opnunin dróst á langinn. Nú er hins vegar allt til reiðu og fer því óðum að styttast í að Vestmannaeyingar geti skellt sér í bíó á nýjan leik en sýningar gætu jafnvel hafist í næsta mánuði. Blaðamaður ræddi nánar við Axel um allt það helsta tengt bíóinu. Í samtali við Eyjafréttir í fyrra reiknaðir þú með að opna síðasta haust. Nú er að nálgast vor á nýju ári, hver er staðan í dag? „Tækin eru ekki komin til landsins en verða það eftir tvær vikur. Uppsetning og allt tekur um tvær vikur myndi ég halda þannig að í byrjun maí verður líklega opnað,“ segir Axel vongóður. „Það eru fyrst og fremst bara framkvæmd- ir á húsinu sem hafa verið að tefja fyrir, en svo hefur líka reynst erfitt að fá iðnaðarmenn í verkið þannig að það er aðallega þetta sem veldur. Síðan var leikfélagið með sýningu um jólin og þá var ekkert unnið í húsinu á meðan,“ segir Axel. Eins og margir vita var leikritið Sex í sveit frumsýnt á föstudaginn og segir Axel að það velti svolítið á gangi þess hvenær bíóið geti formlega opnað. „Um leið og sýningar hætta þá byrjum við að stilla upp okkar búnaði og eins og ég segi þá tekur það um tvær vikur. Við ætlum ekkert að opna í flýti, frekar að vanda til verka.“ Þú talaðir um að sjö til átta sýningar á viku væri raunhæft, er það enn þá planið? „Þetta verða svona 15 sýningar á viku, frá fimmtudegi til sunnudags og ef eftirspurnin er meiri þá munum við bara auka við sýningarnar,“ segir Axel og bætir við að samningar hafi náðst við Ölgerð- ina um sölu á Pepsi. „Við verðum með Pepsi til sölu og svo verður þetta bara nákvæmlega sama og annars staðar, popp og nachos og nammi, bara frábært úrval.“ Verður enginn eftirbátur Selfossbíó Á vefsíðu Selfossbíó segir að bíóið sé eitt það fullkomnasta á landinu, með nýjan og fullkominn stafrænan sýningabúnað, Dolby Digital 7.1 hljóðkerfi og „xpand 3D“ þrívíddar- tækninni. Mun bíóið í Eyjum búa yfir sambærilegum tækjabúnaði og vera á pari við Selfossbíó hvað gæði varðar? „Já, við munum vera með fullkomnustu sýningarvél sem völ er á í dag, það munar fjórum árum á búnaðinum á Selfossi þannig að það má segja að þessi búnaður verði betri ef eitthvað er. Varðandi 3D tæknina, þá munum við ekki vera með hana, alla vega ekki til að byrja með og er ástæðan einfaldlega sú að 3D hefur ekki verið að ná neinum vinsældum. Við eigum búnaðinn til á Selfossi og munum flakka með hann eftir aðstæðum,“ segir Axel. Þó svo húsið sé ekki byggt sem kvikmyndahús þá er það samt sem áður frábært og höfum við gert okkar besta til að hljóðið muni skila sér sem best,“ segir Axel aðspurður út í salinn og hljómburð hans. „Við erum með JBL hljóðkerfi sem er fremst á markaðnum í dag þannig það verður þvílíkt trukk. Þetta er sama stærð og er á Selfossi og er í raun hannað fyrir 400 manna sali,“ segir Axel og bætir við að bíóið sé með samninga við alla dreifingaraðila kvikmynda á landinu og er gert ráð fyrir að á milli 70 til 80 myndir verði sýndar fram að áramótum. Með tilkomu kvikmyndahússins munu nokkur ný störf skapast, segir Axel og gerir ráð fyrir að þurfa allt að sex til átta starfsmenn í hluta- vinnu. „Við erum m.a. að leita að rekstrarstjóra og svo bara í þessi almennu störf en áhugasamir geta sent póst á netfangið valur@ selfossbio.is.“ Allar líkur á að bíóið opni í maí :: Tækjabúnaður eins og best verður á kosið. :: 70 til 80 kvikmyndir verða sýndar fram að áramótum. :: 15 sýningar í viku. Axel ingi Viðarsson, eigandi Selfossbíó. Konukvöld Miðvikudaginn 19. apríl Í veislusal Akóges Fögnum sumrinu á konukvöldi miðvikudaginn 19. apríl (kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta). Allur ágóði kvöldsins rennur til stelpnanna okkar í Meistaraflokki kvenna ÍBV í knattspyrnu. Konur eru konum bestar Tilboð á Mánabars Irish Coffee sem Jón Óli blandar á barnum Miðasala í Nostru verð: 7.900 EYÞÓR INGI HAPPADRÆTTI OG MARGT FLEIRA SKEMMTILEG KYNNING Á LEIKMÖNNUM ÍBV (VIDEO) Tónlistaratriði og eftirhermur Glæsilegur matseðill frá Sigga Gísla á Gott Húsið opnar kl. 19:00 // Borðhald hefst kl. 20:00 AðAlfundur EyjASýnAr Ehf. Aðalfundur Eyjasýnar ehf. , Vestmannaeyjum verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl 2017 kl. 17.00 í húsnæði fyrirtækisins að Strandvegi 47, Vestmannaeyjum. dagskrá - Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. - Önnur mál. Stjórnin.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.