Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Síða 6
6 - Eyjafréttir Miðvikudagur 18. apríl 2018
Erla Einarsdóttir ásamt fleiri góðum
konum er farin af stað af með
verkefni sem allir geta verið
þátttakendur í. Erla ætlar að fara í
samstarf með matvöruverslunum
bæjarins og taka skref í átt að minni
plastnotkun. Hún er nú að taka
gömul efni sem annars væru á
leiðinni í ruslið og sauma úr þeim
fjölnota matvörupoka sem fólk
getur fengið lánaða í matvöruversl-
uninni ef það gleymir sínum heima,
því flest eigum við fjölnotapoka og
margir gleyma þeim heima. Þegar
blaðamaður kíkti við í Líknar húsið
í vikunni var Erla ásamt vöskum
konum á fullu að búa til poka.
„Markmiðið er að margt smátt geri
eitt stór, einhverstaðar verðum við
að byrja,“ sagði Erla sem þegar
hefur fengið jákvætt svar frá
matvöruverslunum bæjarins og mun
skila pokunum til þeirra 30. apríl.
Erla sem er með aðstöðu í kven-
félaghúsinu er núna alla miðviku-
daga þar milli fjögur til sex. Hún
biðlar til fólks að koma með efni í
verkefnið eða hjálpa til, „Hvort sem
það eru gamlir dúkar, rúmföt eða
gardínur, allt nýtist,“ sagði Erla.
Einnig má fólk koma og hjálpa,
„hvort sem það er að sauma, sníða
eða strauja, ýmislegt sem er hægt
að hjálpa við. Einnig er hægt að
hafa samband við mig eða Ágústu
og við komum og sækjum efnið, ef
það hentar betur. Þetta getur verið
okkar framtak í átt að minni
plastnotkun,“ sagði Erla að lokum.
Föstudagskvöldið 4. maí verður
grískt þemakvöld í Eldheimum.
Hugmyndin kom upp fyrir all
mörgum árum hjá Kristínu
Jóhannsdóttur framkvæmdastjóra
Eldheima, en hún er mikill
Grikklands aðdáandi og hefur
langað að halda svona „mini“
Grikklandshátíð frá því hún flutti
aftur til Eyja fyrir rúmlega 13 árum.
Hún og kokkinn Einar Björn
Árnason hafa marg rætt þetta og
þegar fékkst styrkur uppí að flytja
tónlistarmennina til landsins var
komið að því að þessi draumur yrði
að veruleika. Rotary og Uppbygg-
ingarsjóður Suðurlands styrkja
viðburðinn.
Kári Egilsson píanóleikari mun
hefja kvöldið á að leika nokkur lög
í byrjum kvölds.
Einsi Kaldi ætlar að bjóða uppá
grískt og gómsætt grill. Egill Helga-
son Grikklands áhugamaður og
aðdáandi talar um hina einstöku
Grikki og Grikkland. Hápunktur
kvöldins verður svo þegar Grísku
tónlistarmennirnir Marc Alexey og
Damian Staringares flytja ástsæl
grísk þjóðlög og dægurlög fyrir
gesti. Kristín sagði í samtali við
Eyjafréttir að markmiðið væri að
bjóða uppá eitthvað aðeins öðruvísi
og skemmtilegt. Það er ekki á
hverjum degi sem boðið er uppá
grískan mat og tónlist. Það er líka
mjög skemmtilegt að fá þá feðga
Egil Helgason og Kára Egilsson til
að vera með. Egill er manna
fróðastur um Grikkland og Kári er
einn af okkar efnilegustu ungu
píanóleikurum. Ég hvet Grikklands
áhugafólk og aðra áhugamenn um
góðar skemmtanir til að mæta, lofa
frábæru kvöldi og hlakka mikið
til.”sagði Kristín að endingu.
Fyrsta skrefið í átt að
minni plastnotkun í Eyjum
:: Verkefnið fer vel af stað
Sara Sjöfn GrettiSdóttir
sarasjofn@eyjafrett ir. is
Sara Sjöfn GrettiSdóttir
sarasjofn@eyjafrett ir. is
Erla við saumaskapinn. Vaskar konur við saumavélarnar.
Menningarheimar mætast:
Grískt kvöld í Eldheimum
:: Tónlist, matur, fróðleikur
V
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir
Sigurlaug Vilmundardóttir
Sólhlíð 19
Verður jarðsungin frá Landakirkju
laugardaginn 21. april kl. 14.
Marta Bergþórsdóttir, Ásgeir Sverrisson,
Böðvar V. Bergþórsson, Bryndís Guðjónsdóttir,
Ólafía Bergþórsdóttir,
Vildís Bergþórsdóttir, Birgir Tómas Arnar.
Minningarkort
kvenfélagsins
líknar
Stefanía Ástvaldsdóttir
Hrauntúni 34 / s. 481-2155
Elínborg Jónsdóttir
Hraunslóð 2 / s. 481-1828
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Brimhólabr. 28 / s. 481-3314
Kristín Gunnarsdóttir
s. 481-2183 / 861-1483
Rn.0582-4-250355 / Kt. 430269-2919
Allur ágóði rennur í
sjúkrahússjóð félagsins
Minningarkort
sigurðar i.
Magnússonar
Björgunarfélags
vestMannaeyja
Emma Sigurgeirsdóttir
s. 481-2078
Þóra Egilsdóttir
s. 481-2261
Sigríður Magnúsdóttir
s. 481-1794
Minningarkort
kvenfélags
landakirkju
Svandís Sigurðardóttir
Strembugötu 25 / 481-1215
Marta Jónsdóttir
Helgafellsbraut 29
481-2192 /661-9825
Minningarkort
slysavarna-
deildarinnar
eykyndils
Kristín Elfa Elíasdóttir
Áshamri 17 / s. 481-2146
Bára J. Guðmundsdóttir
Kirkjuvegi 80 / s. 481-1860
Rn.0582-4-250442 / Kt. 470383-0389
Minningarkort
kraBBavarnar
vestMannaeyja
Hólmfríður Ólafsdóttir
Túngötu 21 / sími 481-1647
Ester Ólafsdóttir
Áshamri 12 / sími 481-2573
Karólína Jósepsdóttir
Foldahraun 39e s. 534 9219
Minningasjóður
ingiBjargar
Marinósdóttur
- Þroskahjálp í
vestMannaeyjuM-
Ólöf Margrét Magnúsdóttir
s. 861-3245
Unnur Baldursdóttir
s. 481-2081/897-2081
Fyrir Heimaey
Félagsfundur bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey verður
haldinn sunnudaginn 22. apríl kl. 17:00 í Akóges.
Dagskrá:
1. Tillaga að framboðslista félagsins til sveitarstjórna
kosninga sem fram fara laugardaginn 26. maí 2018.
2. Málefnastarf félagsins.
3. Önnur mál.
Nýir félagsmenn velkomnir
Stjórn bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey
Húsmæðraorlof 2018