Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Side 12
12 - Eyjafréttir
Ég vil þakka Jónasi granna fyrir
ákoruninna og að leita til mín sem
næsta matgæðings. Vil ég hrósa
honum fyrir flottar uppskriftir. Á
klárlega eftir að prófa þessa fínu
rétti sem hann kom með í síðustu
viku.
Vinnu minnar vegna flakka ég þó
nokkuð milli landshluta og ekki
gengur að lifa eingöngu á skyndi-
bitum og slíku þótt tíminn sé oft
naumur. Þannig að redda sér á
einföldum fljótlegum réttum hentar
afar vel og kemur m.a. kjúklingur-
inn sterkur inn hjá mér.
Hráefnið er eftirarandi.
• 4 Kjúklingabringur
• 200gr Philadelphia rjómaostur
• 1 krukka af pesto (hvaða pasta
sem er, en ég kýs að nota Jamie
Oliver‘s Coriander & Cashew
Pesto sem fæst í Krónunni)
• ½ búnt af ferskri basilíku
• Salt & Pipar
• Parmaskinka
1. Byrjaðu að hræra saman
rjómaostinum, pestóinu og
basilíkunni í skál.
2. Skerðu eina rauf langsum á
hverja kjúklingabringu og settu
fyllinguna þar í.
3. Kryddaðu létt yfir með salt og
pipar.
4. Vefðu parmaskinku (ca. 2 sneiðar
á bringu) þétt utan um hverja
bringu.
5. Þessu skrefi má sleppa. En mér
finnst gott að steikja þetta í örlitla
stund á pönnu (smá olía og hár
hiti) til að fá stökka áferð á
skinkuna.
6. Settu þetta í eldfast mót og inn í
ofn á 180°C í 40-50 mínútur eða
þangað til bringurnar eru
fulleldaðar.
Sósa:
• ½ peli matreiðslurjómi settur
í pott.
• ½ piparostur settur ofan í og
látinn bráðna alveg.
• Ef sósan er of þykk þá er bætt við
matreiðslurjóma eftir þörfum.
Meðlæti:
Ég hef alltaf salat með. Tilbúið
blandað salat í poka, mér finnst gott
að bæta við papriku, gúrku,
gulrótum og vínberjum.
Ég ætla að gefa boltann úr
botlanganum hér á Smáragötunni
og gefa hann í austurbæinn og
skora á mág minn Kristleif Guð-
mundsson sem næsta matgæðing.
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Mjög góð stemning
í liðinu
Um helgina tók Íþróttafélagið Ægir
þátt í sveitakeppni í Boccia. Þrátt
fyrir að engin af þremur sveitum
liðsins komst í úrslit mótsins
skemmtu keppendur sér konung-
lega eins og þeim er von og vísa.
Stefán Róbertsson var á meðal
keppenda en hann er Eyjamaður
vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Stefán Róbertsson.
Fæðingardagur: 24. júní 1998.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Sóley Ólafsdóttir og
Róbert Agnar Guðnason.
Uppáhalds vefsíða: Vísir.is
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Þjóðhátíðarlög.
Aðaláhugamál: Handbolti og
fótbolti.
Uppáhalds app: Facebook.
Hvað óttastu: Myrkur.
Mottó í lífinu: Ná langt með Ægi.
Apple eða Android: Apple.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Jósef og Maríu.
Hvaða bók lastu síðast: Víti í
Vestmannaeyjum.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Gylfi Þór Sigurðsson
og Ægir.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
B Ég stunda Boccia og handbolta
og fer tvisvar í viku í ræktina.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fótbolti.
Verður þú stressaður þegar þú
ert að keppa: Já, stundum verð ég
stressaður.
Fannst þér ganga vel á mótinu:
Já, mjög vel.
Er góð stemning hjá ykkur í Ægi:
Já, mjög góð stemning.
Stefán Róbertsson
er Eyjamaður vikunnar
Bergsteinn Jónasson
er matgæðingur vikunnar
Fylltar og vafðar
kjúklingabringur
Eyjamaður vikunnar
matgæðingur vikunnar
framundan:mEst lEsið á EyjafrEttir.is
Félagið fyrir
Heimaey hefur
verið stofnað
Búið að greiða niður
90% af skuldum
sveitafélagsins
Áskorun á Írisi Ró-
bertsdóttur að leiða
nýtt framboðsafl
Íris vill leiða nýjan
framboðslista
Eyþór Harðason:
Kæru Eyjamenn
Ásnes rifið niður
í gær
Hætti að drekka og
fór til Tælands í
þriggja vikna æfinga-
ferð
Nýr aðstoðaskóla-
meistari hefur verið
ráðinn
Hrottalegt nauðgun-
armál sent aftur í
rannsókn
Opnunin gekk
vonum framar
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fimmtudagur 19.apríl
Sumardagurinn FyrSti
----------------------------------------------------------
10:00 - Hvítasunnukirkjan
Bænaganga frá Stakkó, gengið
verður víða um land á sama tíma og
göngunni fylgt eftir á Lindinni
kristilegu útvarpi.
20:00 - Hvítasunnukirkjan
Bænastund.
20.00 - KFUM&K
Opið hús í KFUM&K heimilinu við
Vestmannabraut.
laugardagur 21.apríl:
----------------------------------------------------------
14.00 - Landakirkja
Útför Sigurlaugar Vilmundardóttur.
15.00 - Áskorendakeppni Evrópu
ÍBV fá Potaissa Turda frá Rúmeníu
í heimsókn í undanúrslitum.
20:00 - Háaloftið
Síðan skein sól órafmagnaðir.
23:00 - Háaloftið
Síðan skein sól órafmagnaðir.
Sunnudagur 22. apríl
----------------------------------------------------------
11.00 - Landakirkja
Fjölskylduguðsþjónusta með
sunnudagaskólaívafi.
13:00 - Hvítasunnukirkjan
Samkoma, gestir verða frá Englandi
sem vitna og prédika. Kaffi og
spjall eftir á.
15.30 - Landakirkja
Guðsþjónusta á Hraunbúðum.
20.00 - Landakirkja
Fundur hjá Æskulýðsfélagi
Landakirkju.
mánudagur 23. apríl
----------------------------------------------------------
17.00 - Landakirkja
Kirkjustarf fatlaðra – Lokafundur
með veisluhöldum.
18.30 - Landakirkja
Byrjendahópur Vina í bata.
20.00 - Landakirkja
Framhaldshópur Vina í bata.
Þriðjudagur 24. apríl
----------------------------------------------------------
10.00-15.00 - Þekkingasetur
Starfakynning í Eyjum
18:30 - Olís deild karla / úrslitak.
ÍBV - Haukar
20.00 - Landakirkja
Samvera kvenfélags Landakirkju.
miðvikudagur 25.apríl
----------------------------------------------------------
10.00 - Landakirkja
Bænahópurinn með samveru í
fundarherberginu í safnaðarheim-
ilinu.
11.00 - Landakirkja
Helgistund á Hraunbúðum.
14.10 - Landakirkja
ETT (kirkjustarf 11-12 ára).
15.00 - Landakirkja
NTT (kirkjustarf 9-10 ára).
16.15 - Landakirkja
STÁ (kirkjustarf 6-8 ára).
17.00 - Landakirkja
Alzheimer samvera.
Miðvikudagur 18. apríl 2018
Hljómsveitin SSSól mun spila á
tvennum órafmögnuðum
tónleikum nk. laugardag í
Höllinni. Í samtali við Eyjafrétt-
ir sagði Helgi Björnsson
hljómsveitarmeðlimi spennta
fyrir kvöldinu enda langt síðan
sveitin hefur komið fram í
Eyjum.
Hvert er tilefni tónleikanna? „Við
höfum öðru hvoru gert þetta, svona
kassatúr eins og við köllum það.
Fyrst gerðum við þetta árið1989 en
það var fyrir allt þetta MTV
unplugged dæmi. Með því að gera
þetta svona verður meiri nánd og
mýkri stemning og gerir okkur
kleift að spila öðruvísi efni, lög sem
verða oft útundan. Þetta er alltaf
mjög skemmtileg, menn verða
aðeins naktari og það reynir
sömuleiðis meira á hljóðfæraleikar-
ana. Fólk kann vel að meta þetta.“
Eru þið spenntir að koma til Eyja?
„Algjörlega, það er langt síðan við
höfum verið þar og kominn tími til,
sérstaklega á þessum nótum en
yfirleitt spilum við fyrir danski. En
já, það er mikil tilhlökkun.“
Við hverju má fólk búast? „Við
munum t.d. að taka lög eins og
Leyndarmál og Bannað og lög sem
eru ekki tekin í dans stemningu, t.d.
Kartöflur og Úlfurinn. Svo munum
við taka niður nokkur rokklög og
gera þau mýkri, þá finnur maður
meira kjarnanum,“ sagði Helgi að
lokum.
Mikil eftirvænting í liðsmönnum SSSól
einar KriStinn HeLGaSon
einarkrist inn@eyjafrett ir. is