Skessuhorn - 17.04.1998, Síða 7
SSESSUHQER
FOSTUDAGUR 17. APRÍL 1998
95 milljóna hagreeðing
af úreldingu Mjólkursamlags Borgfirðinga
AÐALFUNDUR Mjólkurbús Borg-
arfirðinga var haldinn þann 31. mars
s.l. á Hvanneyri en það er félag kúa-
bænda á því svæði sem Mjólkursam-
lag Borgfirðinga þjónaði áður.
A fundinum kom m.a. fram að
Mjólkursamsalan greiðir út arð af
rekstrarhagnaði ársins 1997 að heild-
arupphæð um 75 milljónir króna.
Arðurinn er greiddur sem álag á
greiðslur fyrir afurðir; 3,69% af inn-
lagðri mjólk eða sem nemur 1,08
krónum ofan á hvern innveginn
mjólkurlíter. Að auki er lagt í sér-
eignasjóð Samsölunnar 30 aurar pr.
líter.
Að sögn Guðmundar Þorsteins-
sonar á Skálpastöðum formanns
Mjólkurbús Borgfirðinga var ákvæði
í úreldingarsamningi Mjólkursam-
lagsins í Borgamesi um að það yrði
metið árin 1996 - 1998 hverju úreld-
ingin skilaði í hagræðingu og bættri
afkomu framleiðenda á svæðinu. Ut
frá því mati yrði síðan lokagreiðsla
til KB vegna úreldingarinnar ákveð-
in. „Það var hinsvegar ákveðið til að
spara kostnaðarsama úttekt í þrjú ár
að miða við niðurstöðumar fyrir árið
1996 og ákvarða lokagreiðslu út frá
því.
Það var niðurstaðan úr vandaðri
úttekt sem gerð var að hagræðingin
af úreldingu Samlagsins næmi um 95
milljónum króna á ári. Þessi hagræð-
Gu&mundur Þorsteinsson formab-
ur Mjólkurbús Borgarfjar&ar
ing skapar gmndvöllinn fyrir þær
arðgreiðslur sem nú em greiddar út“,
sagði Guðmundur.
Þá taldi Guðmundur að ef ekki
hefði orðið af úreldingu Samlagsins í
Borgamesi hefði varla náðst sá friður
um mjólkuriðnaðinn sem þó náðist í
sambandi við síðasta búvömsamn-
ing. „Þetta var það eina sem vemlega
munaði um til hagræðingar í mjólk-
urvinnslunni", sagði Guðmundur.
Á fundinum á Hvanneyri kom
fram að eftir að Hvalfjarðargöngin
verða opnuð verður hætt að vigta inn
mjólkina frá framleiðendum í Borg-
amesi eins og verið hefur en henni
þess í stað ekið beint til Reykjavíkur.
Þá er þessa dagana verið að endur-
skoða samninga um mjólkurflutning-
ana en Guðmundur taldi líkur á að
samningurinn við Bifreiðastöð KB
yrði endumýjaður með einhveijum
hætti.
Stjóm félagsins var endurkjörin á
aðalfundinum en hana skipa auk
Guðmundar, Jón Gíslason Lundi,
Pétur Diðriksson Helgavatni, Jón
Svavar Þórðarson Ölkeldu og Þórólf-
ur Sveinsson á Ferjubakka.
Guðmundur fullyrti að um langt
skeið hefði ekki verið jafn bjart
framundan í mjólkurframleiðslu eins
og nú. „Það liggur fyrir búvömsamn-
ingur til 7 ára með föstu stuðnings-
hlutfalli og allt bendir til að afkoma
MS batni enn frekar, en eftir þetta ár
er greiðslum vegna Mjólkursamlags-
ins í Borgamesi lokið.
Þá fara vextir lækkandi og útlána-
reglur Lánasjóðs landbúnaðarins
hafa verið rýmkaðar og MS hefur
lækkað vexti á lánum til kvótakaupa.
Fyrir þá sem á annað borð ætla sér að
vera í mjólkurframleiðslu til fram-
búðar er þetta því rétti tíminn til að
huga að fjárfestingum", sagði Guð-
mundur að lokum.
Sparisjóður-
inn teygir
úrsér
NÚ STANDA YFIR miklar fram-
kvæmdir í húsnæði Sparisjóðs
Ólafsvíkur. Húsnæði Sparisjóðs-
ins að Ólafsbraut 19 hefur verið
stækkað en sjóðurinn hefur fvrir
nokkru fest kaup á 100 fermetra
plássi við hlið núverandi hús-
næðis.
„Þetta er ein allsheijar andlits-
Iyfting", sagði Kristjáns Hreins-
sonar sparisjóðsstjóra. „Við erum
að breyta og bæta en það var orð-
ið löngu tímabært að fara út í
uppstokkun á húsnæði Spari-
sjóðsins. Það er langt síðan hér
var orðið allt of þröngt og inn-
réttingar eru orðnar gamlar. Því
var ákveðið að fara út í allsherjar
endurbætur og við vonumst til
að þeim ljúki í maí. I haust verð-
ur síðan skipt um tölvukost og
tekið í notkun nýtt tölvukerfi en
Kristján Hreinsson sparissjó&stjóri
á skrifstofu sinni en hinu megin vi&
þiliö var unni& hör&um höndum
við að innrétta vi&bótarhúsnæði
Sparisjó&s Ólafsvíkur.
það sem við notum nú er orðið
um 15 ára gamalt".
Trésmiðja Þráins E.Gíslasonar
Erum að hefja bygg-
ingu og sölu á raðhús-
um við Leynisbraut,
Akranesi.
Stærð íbúaðr 88,8 fm
og bílsk. 31,2 fm verð
frá 9.900.000 kr,- full-
búið án gólfefna.
Nánari upplýsingar hjá
fasteignasölunni Há-
koti í S:431 1944 og
hjá Þráni E. Gíslasyni
S:893 6975
Munið fermingarskeyti
K.F.U.M. og K.
Afgreiðsla að Garðabraut 1 laugard. 18. apríl kl.
14-17 og sunnudaginn 19. apríl kl 10-18
(einnig í bílum á sunnudag)
Með þakklæti. KFUM og K Akranesi.
Akraneskaupstaður
- Æskulýðs og félagsmálaráð
Sumarstörf 1998
Laus eru til umsóknar eftirtalin sumarstörf hjá Akranes-
kaupstað.
Störf 15 flokkstjóra við Vinnuskóla Akraness.
Starf traktorsmanns við Vinnskóla Akraness.
Starf umsjónarmanns Skólagarða Akraness.
3 Störf leiðbeinenda við leikjanámskeið Arnardals.
Störf við höfnina og hjá Garðyrkjudeild fyrir 17-20 ára.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni, Stillholti 16-
18, og í Arnardal.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna og í Arnardal í
síðasta lagi 24. apríl 1998.
Allar nánari upplýsingar veittar í Arnardal, Kirkjubraut 48,
sími 431 2785.
RAUÐI KR0SS ÍSLANDS
- AKRANESDEILD -
Barnfóstrunámskeið
Akranesdeild Rauða kross íslands gengst fyrir barnfóstru-
námskeiði í húsnæði deildarinnar að Þjóðbraut 11. Nám-
skeiðið verður haldið dagana 4., 5., 7. og 8. maí. Dagskrá
námskeiðsins verður eftirfarandi:
Þroski barna, leikir, leikfangaval, matur, mataræði, að-
hlynning ungbarna, veik börn, slys á börnum og skyndi-
hjálp.
Námskeiðið er 16 kennslustundir.
Kennarar verða Guðrún M. Halldórsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur og Katrín Barðadóttir leikskólakennari.
Námskeiðsgjald með gögnum verður kr: 3.000.-
Skráning fyrir 27. apríl frá klukkan 8:00 - 12:00 í
síma 431-2270
Sumarvinna
Óskum eftir að ráða starfsfólk í almenn Hótelstörf. Opnum
10 júní.
Umsóknir sendist fyrir 1. maí Sigurði Einarssyni,Hótel-
stjóra Kleifarseli 14 109 Reykjavík.
Skagfirska söngsveitin
f Reykjavík
Laugardaginn 18.04.98. n.k. heldur Skagfirska
söngsveitin tónleika í Reykholtskirkju og hefjast
þeir kl. 14:00. Á efnisskrá er fjölbreytt lagaval
eftir marga kunna höfunda m.a. stjórnanda kórs-
ins Björgvin Valdimarsson.
Undirleikari verður Ingunn Hildur Hauksdóttir.
Einsöngvarar verða Guðmundur Sigurðsson og
Kristín Sigurðardóttir.
Skagfirska söngsveitin er blandaður kór sem
starfað hefur í Reykjavík frá árinu 1970. Félagar
eru 75 talsins.