Skessuhorn - 28.05.1998, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1998
^BiasuHUK. l
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262
FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is
Afgreiðsla á Akranesi að Stillholti 18 er opin eftir hádegi virka daga, sími 431 4222
Útgefandi: Skessuhorn ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098
Arinbjörn Kúld: Framkvæmdastjóri og blaðamaður, sími 899 6165
Blaðamaður: Helgi Daníelsson, sími 898 0298
Auglýsingar: Magnús Valsson, sími 437 2262
Fjóla Ásgeirsdóttir, sími 431 4222
Hönnun og umbrot: ísafoldarprentsmiðja hf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Aðalskrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00-16:00
Skrifstofan að Stillholti 18 á Akranesi er opin kl. 13-17.
Skessuhom-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánu-
dögum. Litaauglýsíngar sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þó að berast blaðinu í síðasta lagi
á hádegi á mánudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 5.800 eintökum og dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrirtæki á Vesturlandi auk
Kjalarness, Kjósar og Reykhóla.
Ab lokn-
um kosn-
Þá eru sveitarstjómarkosningar afstaðnar og allt verður afslappað
og notalegt að nýju. Hætt er þó við að sumir verði hálf einmana fyrstu
dagana á eftir. Handaböndum fækkar til muna og manni finnst maður
hreint ekki eins vinsæll og síðustu dagana fyrir kosningar.
í stríði fer ekki hjá því að einhverjir em sigurvegarar en aðrir ligg-
ja í valnum. Kosturinn við kosningar í seinni tíð er hinsvegar sá að all-
ir standa fast á því að þeir hafi unnið jafnvel þótt viðkomandi hafi
goldið afhroð. Tapið er þá túlkað sem vamarsigur vegna þess að það
hefði getað farið ver!
Hvemig svo sem úrslit hafa orðið á einstökum stöðum á Vesturlandi
og hvort sem menn hafa tapað eða unnið stóra sigra, nú eða þá vam-
arsigra, þá vona ég að niðurstaðan sé allsstaðar sterk sveitarstjóm sem
vinnur sínu sveitarfélagi af heilum hug næstu fjögur árin. Eg hef held-
ur enga ástæðu til að ætla annað.
Þar sem listakosningar em stundaðar þurfa hlutimir víst að vera
þannig að einhveijir verða í meirihluta og aðrir í minnihluta. Það er
sjálfsagt gott og blessað ef ekki fer öll orkan í að gæta þess að vera
ekki sammála hinum. Því miður tel ég að það sé alltof oft þannig. Að
mínu mati á hið pólitíska flokkakerfi sem brúkað er á landsvísu alls
ekki heima í sveitarsjómarkosningum. Þar er um að ræða allt aðrar
áherslur sem erfitt er að heimafæra á einstök sveitarfélög. Ég er þeirr-
ar skoðunar að í sveitarstjómarkosningum eigi fyrst og fremst að kjósa
um menn en ekki pólitíska flokka. Ég vildi sjá það í framtíðinni að
stakir einstaklingar yrðu í framboði í stað flokka eða lista. Þá myndi
hver kjósandi velja fimm, sjö, níu, ellefu eða fimmtán einstaklinga
sem hann teystir best. í dag stendur kjósandinn hinsvegar frammi fyr-
ir því að velja alla eða engann af tíu til tuttugu manna listum. Á við-
komandi listum geta verið nokkrir aðilar sem kjósandinn hefur áhuga
á að fá í sveitarstjóm en þar em hugsanlega líka aðrir sem hann telur
betur geymda einhvers staðar annars staðar. Ég held reyndar að fæstir
séu fullkomlega ánægðir með alla á þeim lista sem þeir þó kjósa. Að
vísu em útstrikanir möguleiki en það þarf býsna mikið til að þær hafi
áhrif. Ég þekki reyndar engin dæmi þar sem útstrikanir hafa breytt
niðurstöðum kosninga. Ég tek það fram að þessum hugleiðingum er
ekki beint gegn neinum sérstökum af þeim sem kjömir vom í sveitar-
stjómir á Vesturlandi en þetta er mál sem vert er að hugleiða. Ég sætti
mig hinsvegar við það að ekki em allir jafn skynsamir og ég og því
hæpið að vonast eftir breytingum á þessu fyrirkomulagi.
Hvernig sem meirihlutar og minnihlutar verða á einstökum stöðum
og hvort sem menn em sigurvegarar eða vamarsigurvegarar em
ákveðin mál og málaflokkar sem fulltrúar í nýjum sveitarstjómum
ættu að geta verið sammála um. Meðal þess er að eitt af mikilvægustu
málunum yfir Vesturland í heild em umhverfismálin og þá á ég ekki
við eyðingu ozonlagsins eða vemdun regnskóganna heldur fyrst og
fremst útganginn á þeim hluta yfirborðs jarðar sem heyrir til Vestur-
landskjördæmis. Ég held að allir hljóti að geta verið sammála um að
þar þarf að ráða bót á. Sameiginleg sorpurðun allra sveitarfélaganna í
kjördæminu er í sjónmáli og verður það væntanlega stórt skref í rétta
átt. En betur má ef duga skal. Á svæði þar sem horft er til stóraukinn-
ar ferðaþjónustu er nauðsynlegt að snyrtimennska sé í hávegum höfð
en gestir og gangandi fái það ekki á tilfmninguna að þeir séu að koma
inn á öskuhauga. Eins og lesendur Skessuhoms hafa væntanlega tek-
ið eftir fómm við af stað með umhverfisátakið „Hreinna og vænn
Vesturland" fyrir skömmu. Það hefur að vísu verið í skugga kosninga-
baráttunnar fram að þessu en við munum á næstu vikum fylgja því eft-
ir af krafti. Ég hvet alla Vestlendinga til að taka þátt í því átaki og taka
til hendinni í vorblíðunni og bæta um leið ímynd Vesturlands.
Gísli Einarsson snyrtimenni
ingum
Pálmar Einarsson byggingameistari og Sigur&ur Þorkelsson rafverktaki í
nýju afgrei&slunni á Sýsluskrifstofunni í Borgarnesi
Miklar breytingar
í næstsíðasta tölublaði Skessu-
homs var rangt farið með nafn verk-
takans sem vinnur að endurbótum á
Sýsluskrifstofunni í Borgamesi og er
beðist velvirðingar á því. Það var að
vísu rétt að verktakinn kemur úr
Gmnarfirði en það er Trésmíðaverk-
stæði Pálmars Einarssonar sem sér
um framkvæmdimar.
Að sögn Pálmars hafa hans menn
verið á Sýsluskrifstofunni frá ára-
mótum og miðar verkinu vel áfram.
Verið er að taka allt húsið í gegn að
innan, færa milliveggi og setja upp
nýjar hurðir, leggja dúka og bæta að-
gengi fyrir fatlaða, m.a. með því að
setja upp lyftu í húsinu. Almenn af-
greiðsla bæði fyrir sýsluskrifstofuna
og lögreglustöð verður á neðri hæð-
inni en skrifstofur á þeirri efri.
Pálmar lét vel af ástandinu í bygg-
ingariðnaði á Vesturlandi um þessar
mundir en hann hefur verið með 6-7
menn að störfum í Borgamesi að
undanfömu og auk þess er hann með
verk í gangi í Grundarfirði, Hell-
issandi og Rifi.
GE
Vél heppnub hag-
ræbing á Höfba
Rekstur Dvalarheimilisins Höfða á
Akranesi var á s.l. ári innan ramma
fjárhagsáætlunar, þrátt fyrir mikinn
niðurskurð í fjárframlögum til heim-
ilisins.
Viðbrögð stjómenda vom þau að
skera niður í rekstrinum og þá sér-
staklega í viðhaldi húseignar. Að
sögn Ásmundar Ólafssonar fram-
kvæmdastjóra er það ekki vænlegur
kostur að þurfa að fresta eðlilegum
viðhaldsverkefnum og vonast hann
til að hægt verði að vinna upp skað-
ann á þessu og næsta ári.
Undanfarin ár hefur verið unnið í
því að hagræða í rekstrinum á sem
flestum sviðum og áfram hefur verið
haldið í ár en á næstu dögum verða
myndaðir þrír svokallaðir K.L. hópar
meðal starfsmanna til að leita leiða
til að lækka kostnað; einn fyrir inn-
kaup á vörum og búnaði, annar um
stjómunar- og launakostnað og sá
þriðji um rekstur fasteignar.
Dvalarheimilið Höfði er sjálfs-
eignarstofnun í eigu Akraneskaup-
staðar og sveitarfélaganna fjögurra
sunnan Skarðsheiðar. Formaður
stjómar er Jóhannes Finnur Halldórs-
son. GE
Skólastjórar á skólabekk
Skólastjórar gmnnskóla á Vestur-
landi settust á skólabekk nú í vor, er
haldið var hið fyrsta í röð námskeiða
fyrir skólastjóra sem standa munu
yfir allt næsta skólaár.
Tilgangur þessarar fræðslu er að
kynna nýjungar í stjómun og með
því efla gmnnskólana á svæðinu í
þróun fram til nýrrar aldar
Forsendur em ekki síst þær að
huga þarf að stöðu og ímynd skólans
í breyttu starfsumhverfi eftir að
rekstur hans og ábyrgð fluttist að
fullu til sveitarfélaga.
Gmnnskólinn er nú hluti af kerfi
sveitarfélagsins og þarf að miðla
upplýsingum til stjómenda þess, en
verður jafnframt að gæta þess að
halda traustum tengslum við þá sem
skólinn á að þjóna; nemendur sína og
fjölskyldur þeirra.
Þetta fyrsta námskeið snerist um
kynningarmál og ímynd gmnnskól-
ans. Fyrirlesari var Ásmundur Þórð-
arson aðjunkt við Samvinnuháskól-
ann að Bifröst og fjallaði hann um al-
mannatengsl, ímynd grannskólans,
viðbrögð skóla við gagnrýni, aðkasti
og áföllum, en einnig um samskipti
og tengsl skólans við fjölmiðla.
Að sögn skólastjóra er námskeið
af þessu tagi gagnlegt þar sem skólar
em æ oftar í umfjöllun fjölmiðla og
oft frekar á neikvæðum nótum en já-
kvæðum og stjómendur skóla lenda
oftar í eldlínu þeirrar umræðu en
áður var. Skólamenn leggja á það
mikla áherslu að umfjöllun um
grunnskólann sé með jákvæðum
hætti, því að viðhorf heimila og um-
hverfis em oftast lykilatriði í farsæld
og árangri skólastarfs og rannsóknir
sýna að námsgengi nemenda veltur
að vemlegu leyti á viðhorfi heimilis
þeirra til skólans og þess starfs sem
þar fer fram.
Þetta endurmenntunartilboð til
skólastjóra er samstarfsverkefni
Skólastjórafélags Vesturlands,
Skólaskrifstofu Akraneskaupstaðar
og Skólaskrifstofu Vesturlands í
Borgamesi.
Frá námskei&i skólastjóra á Vesturlandi.
Lengrí
opnun
hafnað
Á fundi bæjarráðs Akraness
nýlega var tekin fyrir hugsanleg
lenging opnunartíma Jaðars-
bakkalaugar í sutnar. Að sögn
" Gfsla Gíslasonar bæjarstjóra var
ákveðið að bíða með það að
lengja opnunartímann þar sem
ekki var gert ráð fyrir henni í
fjárhagsáætlun og óbreyttur opn-
unartími hefur þegar verið aug-
lýstur. Hann sagði að lenging
opnunartíma þyrfti lengri að-
draganda en sagði mögulegt að
lengja opnunartímann einstök
kvöld, ef veður býður upp á
slíkt, eða eitthvað sérstakt er í
gangi á staðnum. GE
Engar vib-
ræður
Fyrir skömmu sendi bæjar-
stjóm Akraness oddvita Innri
Akranesshrepps og oddvitá Skil-
mannahrepps bréf þar sem óskað
vár eftir viðræðum utn hugsan-
lega sameiningu þessara þriggja
sveitarfélaga.
; í síðustu viku barst bæjar-
:: stjórn Akranéss bréf frá oddvita
Innri Akranesshrepps þar sem
sagði að ekki væri unnt að taka
upp viðræður, á þessu stigi, þar
sem starfandi er undirbúnings-
tiefhd vegna sameiningar Innri
Akraneshrepps, Leírár- og
Melasveitar, Hvalfjarðarstrand-
arhrepps og Skilmannahrepps.
GE
Helga Hafsteinsdóttir í Brauft-
húsi Helgu afgreiðir fyrsta viö-
skiptavininn, og nöfnu sína
Helgu, á opnunardaginn.
Mynd Þeyr
Braubhús
Helgu
Mánuda,ginn 4. maí s.I. opiiaði
; í Grundartirði ný sérverslún með
brauð og brauðvörur. Að sögn
Helgu Hafsteinsdóttir eiganda
vershmarinnar sem ber nafhið
brauðhús Helgu, kaupirhún sín-
ar vömr frá bakaríinu í Stykkis-
hólmi og er kömin með nv brauð
kl. 8:45 á hverjum morgni.
Helga sagði Grundfirðinga hafa
tekið þessari nýju þjðnustu mjög
vel enda hefði þetta vantað á
staðinn.
GE