Skessuhorn - 28.05.1998, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1998
PENNINN
Guðjón Gubmundsson alþingismaður skrifar
NÝ BYGGÐASTEFNA
í síðasta mánuði lagði forsætisráð-
herra fram á Alþingi tillögu til þings-
ályktunar um stefnu í byggðamálum
fyrir árin 1998-2001. Stjóm Byggða-
stofnunar gerði drög að þessari til-
lögu sem ríkisstjómin breytti lítil-
lega.
Mikil vinna og rannsóknir liggja
að baki tillögunni, en stjóm Byggða-
stofnunar leitaði til ýmissa utanað-
komandi aðila með verkefni þessu
tengd, m.a. Háskólans á Akureyri,
Hagþjónustu landbúnaðarins, Stefáns
Ólafssonar prófessors og Haraldar L.
Haraldssonar hagfræðings. Skýrslur
þessara aðila em stórfróðlegar og
gefa glögga mynd af högum fólks á
landsbyggðinni og þeirri miklu
byggðaröskun sem átt hefur sér stað.
Ástæður
byggðaröskunar
Stefán Ólafsson gerði viðamikla
viðhorfskönnun á síðasta ári, þar sem
200 manns í hveiju kjördæmi vom
spurðir fjölda spuminga, m.a. um
ánægju og óánægju með einstaka
þætti búsetuskilyrða og eins hvort
þeir hyggðu á flutning og þá hvers
vegna. Þar kom í ljós að langflestir
þeirra sem hyggja á flutning gera það
vegna einhæfni atvinnulífsins, einnig
vegur þungt aðstaða til menntunar og
hár húshitunarkostnaður.
Húshitunarkostnaður
I tillögu forsætisráðherra er það
markmið sett að verð á orku til hitun-
ar íbúðarhúsnæðis verði á næstu
þremur ámm fært til samræmis við
meðaldýrar hitaveitur með aukinni
þátttöku Landsvirkjunar og ríkis-
Cubjón Gubmundsson
sjóðs. Þetta er auðvitað gríðarlegt
hagsmunamál fyrir landsbyggðina
þar sem húshitunarkostnaður er víð-
ast hvar langt yftr þessum mörkum.
Þá er það mikilvægt atriði í tillög-
unni að heimilt verði að nýta fé sem
ætlað er til niðurgreiðslna rafhitunar í
fimm ár til þess að lækka stofnkostn-
að nýrra hitaveitna. Um 15% lands-
manna hafa ekki aðgang að hitaveit-
um, en á næstunni verður kannað ít-
arlega hvort ekki finnst heitt vatn á
þeim svæðum þar sem ekki er hita-
veita. Að því verkefni standa ríkis-
stjórnin, Byggðastofnun og Orku-
sjóður.
Menntun
I tillögunni segir að menntun á
landsbyggðinni verði stórefld, sér-
staklega hvað varðar verklegar grein-
ar tengdar atvinnulífinu og tölvunám.
Jafnframt verði bætt skilyrði þess
fólks sem sækja verður nám utan
heimabyggðar sinnar. Námsráðgjöf
verði aukin. Komið verði á samstarfi
atvinnulífs og skóla á landsbyggðinni
um endur- og sérmenntun og stuðlað
að því að allir eigi tækifæri á að afla
sér nýrrar þekkingar, m.a. í samræmi
við breytingar í atvinnuháttum.
Möguleikar á fjarkennslu verði að
fullu nýttir.
Atvinnumál
Um aðgerðir í atvinnumálum segir
m.a. í tillögu forsætisráðherra: Unnið
verði markvisst að aukinni fjöl-
breytni atvinnulífs á landsbyggðinni.
Þróunarstofur verði efldar og þannig
treystur grundvöllur til nýsköpunar
og aukinnar fjölbreytni. Hlutverk
þeirra verði m.a. að auka samkeppn-
ishæfni atvinnulífs á landsbyggðinni
og aðstoða fyrirtæki við öflun verk-
efna og styrkja innan lands sem utan.
Tryggt verði að aðstoðin skili sér til
starfandi fyrirtækja jafnt sem nýrrar
atviimustarfsemi.
Til að tryggja nauðsynlegt eigið fé
í nýsköpunarverkefnum verði komið
á fót eignarhaldsfélögum á lands-
byggðinni með aðild Byggðastofnun-
ar og varið allt að 300 millj. kr. á fjár-
lögum hvers árs á áætlunartímabilinu
í þeim tilgangi. Þátttaka Byggða-
stofnunar getur numið allt að 40% af
hlutafé viðkomandi félags.
40 milljónir króna á
Vesturland
Á síðasta fundi Byggðastofnunar
var samþykkt að leggja 40 millj. kr. í
hlutafé í eignarhaldsfélag til eflingar
atvinnulífi á Vesturlandi. Á móti
verða heimamenn að leggja 60 millj-
ónir. Mikilvægt er að það takist sem
lyrst, því enginn vafi er á að öflugt
eignarhaldsfélag er árangursríkasta
leiðin til að fjölga atvinnutækifærum
og auka fjölbreytni atvinnulífsins.
Það er a.m.k. reynsla Sunnlendinga,
en á tveggja ára starfstíma Atvinnu-
þróunarfélags Suðurlands hafa um 30
ný fyrirtæki komið á svæðið með
talsvert á annað hundrað störf og 600
millj. kr.fjárfestingu.
Metnabarfull stefna
Þingsályktunartillaga forsætisráð-
herra er metnaðarfúllt plagg sem tek-
ur á fjölmörgum málum landsbyggð-
arinnar. Ég hef hér aðeins nefnt 3
þeirra mála sem eru helstu orsaka-
valdar búferlaflutninga, en ég hvet þá
sem áhuga hafa til að kynna sér til-
löguna og skal útvega hana þeim sem
þess óska.
í könnun Stefáns Ólafssonar kom
fram að um 20% íbúa landsbyggðar-
innar (19.000 manns) vill heldur búa
á höfuðborgarsvæðinu. Á móti kemur
að 13% íbúa höfuðborgarsvæðisins
(23.000 manns) vill heldur búa á fá-
mennara svæði. Misvægið í búsetu-
þróun á landinu er því fyrst og fremst
vegna óánægju með búsetuskilyrði
sumsstaðar á landsbyggðinni.
Tilefni til byggðaþróunaraðgerða
er nú mun meira en verið hefur á síð-
ustu áratugum. Tillaga forsætisráð-
herra vísar leiðina í þeim efhum, en
meginmarkmið hennar er að fólks-
fjölgun á landsbyggðinni verði ekki
undir landsmeðaltali á næstu ámm og
nemi 10% til ársins 2000.
Guðjón Guðmundsson
alþingismaður.
PENNINN
Tíminn líbur hratt
Litið um öxl í málefnum Tónlistarskólans í Grundarfirði
Það er eins og það hafi verið í gær
sem við vorum tilnefnd í skólanefnd
Tónlistarskólans, en þó em fjögur ár
síðan. Þessi tími hefur verið svo
skemmtilegur að hann hefur liðið
mjög hratt. Þegar við lítum um öxl þá
hefur margt verið gert og flest von-
andi til góðs, nemendum hefur fjölg-
að og það hefur verið tekinn í notkun
nýr Tónlistarskóli sem var orðið
mjög brýnt verkefni. Hefur það sýnt
sig að með þessari bættu aðstöðu hef-
ur starfið hlaðið utan á sig. Nú em
menn að tala um að stækka þurfi sal-
Vegna skrifa Péturs Önundar
Andréssonar um veglínu Borgar-
fjarðarbrautar í síðasta tölublaði
Skessuhoms, viljum við undirritaðir
taka fram eftirfarandi:
Veglína Borgarfjarðarbrautar í
Andakílshreppi sem lögð var fram til
umhverfismats var hönnuð og sett
fram af Vegagerðinni. Veglínan var
samþykkt af landeigendum án nokk-
urra breytinga. Eigendum jarðanna
inn þar sem nemendur em famir að
koma í sínum frítíma í gmnnskólan-
um og æfa sig, en þeir em búnir að
stofna þrjár hljómsveitir og nokkra
sönghópa. Þá var stofnuð lúðrasveit
og þannig mætti lengi telja.
Þeir Friðrik, Vignir og Láms hafa
haft veg og vanda af þessu mikla
starfi sem þama fer fram en þeim
bætist við liðsauki í haust þegar til
starfa kemur Helga Þórdís Guð-
mundsdóttir. Það er von okkar að
með tilkomu hennar verði fjölbreytt-
ari starfsemi, því það er nú alltaf svo
Hellna og Varmalækjar var sýnd
upphafleg hugmynd að veglínu en
þeir vom á engan hátt með í ráðum
þegar Vegagerðin tók ákvörðun um
að hverfa frá henni. Fullyrðing Pét-
urs um að „Upphaflegri veglínu hafi
verið breytt að ósk landeigenda“ er
því algjörlega tilhæfulaust „fleipur“.
Pétur Jónsson Hellum
Jakob Jónsson Varmalæk
Sigurður Jakobsson Varmalœk
að með nýju fólki koma nýir siðir og
hugmyndir.
Þá má ekki gleyma þeim fjölmörgu
sem lagt hafa skólanum lið með ein-
um og öðmm hætti og væri of langt
mál að telja þá alla upp. Þó skal sagt
frá samtökum áhugafólks um tvíefl-
ingu Tónlistarskólans, sem vom með
fjáröflun handa skólanum en þar
safnaðist ein milljón króna og hafa
verið keypt hljóðfæri fyrir þá pen-
inga. Kvenfélagið Gleym mér ei,
Kiwanisklúbburinn Kirkjufell og
Styrktarsjóður lúðrasveitarinnar gáfu
einnig 20 stóla til Tónlistarskólans.
Hér hefur verið stiklað á stóm og
eflaust gleymist eitthvað sem hægt
væri að segja frá en það vonandi
skaðar engann, því það er ekki ætlun-
in með þessu stutta yfirliti um síðustu
fjögur ár sem við höfum setið í skóla-
nefnd Tónlistarskólans.
En það er nú svo að eftir nýliðnar
kosningar þá endumýjast allar nefnd-
ir á vegum sveitarfélagsins. Við í
skólanefndinni viljum þakka öllum
þeim sem við höfum átt samskipti
við; kennurum, iðnaðarmönnum,
húsverði, verkstjóra og sérstaklega
skólastjórum Grunnskólans, þeim
Gunnari Kristjánssyni og Önnu
Bergsdóttur fyrir frábært samstarf,
því án þeirra velvildar hefði starf
Tónlistarskólans ekki orðið eins mik-
ið og það er nú.
Að lokum óskum við næstu nefnd
skólans alls hins besta og velfamaðar
næstu fjögur árin.
Kveðjur;
Friðrik Tryggvason,
Olga Sœdís Einarsdóttir og
Rósant Egilsson
SPEKI VIKUNNAR
Þaö er óskaplegur fjöldi lyga í gangi í
veröldinni og þaö versta er aö helmingurinn
er sannur
Winston Chaurchill
Athugasemdir
^ocsautiuk.
HEYGARÐSHORNIÐ
fyrstí
Öxarfjörb
Það hefur áður verið minnst á
það hér í blaðinu að póst og
símaþjónusta er kannski ekki al-
veg upp á það besta í uppsveit-
um Borgarfjarðar og víðar á
Vesturlandi. Það hefur m.a.
komið í ljós að lesendur Skessu-
homs norður á Kópaskeri em
búnir að fá blaðið sitt í hendum-
ar u.þ.b. sex tímum á undan rit-
stjóranum sem býr upp í Borg-
arfirði. Og svo em menn hissa á
því að ritstjórinn sé ekki alltaf
með á nótunum!!!
Virkilegt
fjamám
Og pá af símaþjónustunni.
Einhvemtíma var hér minnst á
raunir þeirra sem ætla sér að
nota þjónustu Intemetsins en
þurfa að bíða heilu mannsald-
rana eftir að umbeðnar upplýs-
ingar birtist á skjánum. Ekki síst
er það bagalegt fyrir þá sem
vilja skoða léttklæddar konur og
kannski ekki síður fyrir þá sem
vilja stunda fjamám. Við frétt-
um af kennara í Reykholtsdal
sem sá sér nauðugan einn kost
að flytja til Ástralíu og mun
stunda þar fjamám við Háskóla
Islands. Svona er Borgarfjörður
í dag!
Gatseljur
og náttúm-
spjöll
íslenskufræðtngur Heygarðs-
hornsins hefur verið að velta
fyrir sér orðinu náttúmspjöll og
fundið því nýja merkingu. Nátt-
úmspjöll nútímans fara fram í
gegnum síma og eru fram-
kvæmd af konum sem taka fyrir
66,90 á mínútuna. Ef að lítið er
að gera þá em þessar konur
óspjallaðar!
íslenskufræðingurinn taldi
sér einnig skylt að finna nýtt
starfsheiti þar sem nú þarf bráð-
um að mkka hinn umdeilda þús-
undkall af þeim sem kjósa að
fara í gatið undir Hvalfjörðinn.
Gert er ráð fyrir að það verði
konur sem mkka vegatollinn og
liggur því beint við að þær nefn-
ist gatseljur.