Skessuhorn - 19.06.1998, Qupperneq 9
9
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1998
JáiSsúnuh.
Ungmennafélag
Reykdæla 90 ára
í upphafi þessarar aldar og frelsis-
barátta Islendinga að hefjast voru
mörg ungmennafélög stofnuð. Það
má segja að með ungmennafélögun-
um hafi vaknað mikil þjóðemishreyf-
ing og þau tóku virkan þátt í sjálf-
stæðisbaráttu íslendinga. Við teljum
gjaman að vagga ungmennafélags-
hreyfmgarinnar sé á Akureyri. Árið
1906 var fyrsta ungmennafélag á ís-
landi stofnað en ungmennafélögin
vom stofnuð að norskri fyrirmynd.
Það var sumardaginn fyrsta árið
1908 sem fyrsta ungmennafélag í
Borgarfjarðarhéraði var stofnað.
Þann dag kom rúmlega tuttugu
manna hópur saman í Deildartungu
og stofnaði Ungmennafélag Reyk-
dæla, það ár bar sumardaginn fyrsta
upp á 23. apríl. 1 hugum margra fé-
laga innan Ungmennafélags Reyk-
dæla er sumardagurinn fyrsti talinn
afmælisdagur félagsins. A þessu ári
em liðin 90 ár frá stofnun þess.
Stofnfélagamir höfðu háleit markmið
og störfuðu eftir þeim og við sem
höfum lifað og starfað í Reykholts-
dalnum höfum fengið að njóta af-
rakstursins og byggt ofan á þann
gmnn sem lagður var á öndverðri
öldinni. Sumardagurinn fyrsti ætti
því að vera nokkurskonar þjóðhátíð-
ardagur Reykdælinga, því með stofn-
un Ungmennafélags Reykdæla var
stigið mikið gæfuspor í félags-,
menningar- og fþróttahfi sveitarinn-
ar.
Félagið hefur gengið í gegnum
sætt og súrt á þessum 90 áram, það
hafa komið öldudalir og öldutoppar
en ávallt hefur félagið og félagsheim-
ilið Logaland verið akkerið í menn-
ingarlífi sveitarinnar og ég er þess
fullviss að svo verður hér eftir sem
hingað til. Það er óhætt að fullyrða að
lífið hefði verið fátæklegra í sveitinni
ef ungmennafélagsins hefði ekki not-
ið við, það er því félögum sem og
öðmm sem búa í Reykholtsdalnum
nauðsyn að hlúa vel að félaginu.
Starf félagsins hefur breyst mikið á
þessum 90 ámm sem liðin eru frá
stofnun þess, eins og við er að búast,
þó að markmið þess að auðga og
bæta mannlíf í sveitinni sé ávallt
meiginmarkmið félagsins. Á fyrstu
ámnum var mikil rækt lögð við um-
ræðufundi og var það snar þáttm í
starfsemi félagsins, því miður er
þessi þáttur starfseminnar liðinn und-
ir lok en á þó fullan rétt á sér í dag.
Nú er haldinn aðalfundur samkvæmt
lögum félagsins þar em mál afgreidd
og stjóm og nefndir skila sínum árs-
skýrslum. Það má telja til undantekn-
inga ef boðað er til félagsfundar
nema ef mjög brýnt málefni þarfnast
úrlausnar. Skógrækt hófst snemma
og hefur verið snar þáttur í starfsemi
ungmennafélaganna og er Ung-
mennafélag Reykdæla þar enginn
eftirbátur. I dag er glæsilegur skóg-
arreitur við Logaland sem ber vott
um þann áhuga sem félagar hafa sýnt
ræktun landsins. Ekki er hægt að
fjalla um starf félagsins án þess að
minnast á Logaland félagsheimili
Ungmennafélags Reykdæla, en fljót-
lega eftir stofnun félagsins var hafinn
undirbúningur að byggingu félags-
heimilis og var fyrst fundað í húsinu
árið 1909 eða um 15 mánuðum eftir
stofnun félagsins. Logaland hefur
tekið miklum breytingum allt fram á
þennan dag og ávallt þjónað félaginu
og öðmm íbúum vel til hvers konar
félagsstarfs.
I Logalandi hafa verið færð upp
fjölmörg leikrit en ekki er til fjöldi á
þeim það ég best veit, því miður.
Mörg þessara verka hafa krafist
fjölda fólks bæði á sviði sem og við
hin ýmsu störf að tjaldabaki og félag-
ar hafa ávallt verið reiðubúnir til að
leggja á sig ómælda vinnu við upp-
setningu á leikritum. Þessi þáttur
starfseminnar hefur verið hvað fyrir-
ferðamestur og glæsilegastur á und-
angengnum áratugum og ávallt hefur
verið vel að verki staðið. Félagið má
vera stolt af þessum þætti starfsemi
sinnar. Leikstarfið er mjög gefandi
fyrir þá sem að því koma og vil ég
þakka fýrir að hafa fengið að taka
þátt í leikstarfinu sem hefur reynst
mér gott veganesti á lífsleiðinni.
Ungmennafélag Reykdæla hefur
átt fjölmargt glæsilegt íþróttafólk
sem haldið hefur merki félagsins á
lofti og einnig merki UMSB í keppni
utan héraðs svo sem á Landsmótum
UMFÍ. Á ámm áður vom Reykdælir
sigursælir á héraðsmótum UMSB,
þó í dag sé þar við ramman reip að
draga. Eins og í flestum sveitum
landsins hefur fólki farið fækkandi
hér. Það er von mín að það sjái fyrir
endann á þeirri þróun og takast megi
að snúa þróuninni við, sveitunum í
hag. Margt af besta íþróttafólki
landsins hefur hlotið sitt íþróttaupp-
eldi í ungmennafélögum út um land
og er Ungmennafélag Reykdæla þar
enginn eftirbátur ég nefni því til
sönnunar Einar Vilhjálmsson spjót-
kastara sem lengi keppti fyrir Ung-
mennafélag Reykdæla.
Á þjóðhátíðardegi íslendinga 17.
júní ætlar félagið að minnast þessara
tfmamóta með samkomu og hátíðar-
dagskrá í og við Logaland. Það fer
vel á því að minnast afmælisins á
þjóðhátíðardaginn, því eins og ég
sagði í upphafi þessarar greinar tóku
ungmennafélögin virkan þátt í frels-
isbaráttunni. Eg heyrði viðtal í vetur
við góðan ungmennafélaga og vin
minn að norðan. Hann var spurður
hver væri harðasti keppinautur ung-
mennafélaganna, hann svaraði að
bragði: Það em fjölmiðlamir. Spyrj-
andinn varð undrandi og bað um
skýringar. Svarið var að í dag flytja
fjölmiðlar alla íþrótta- og menningar-
viðburði heim í stofu til okkar svo að
fólk finnur ekki þörf hjá sér til að
mæta á viðburði sem slíka og bíður
eftir þeim heima í stofu. Við skulum
hafa það í huga að við eigum keppi-
nauta og skulum sýna þeim að við
eigum í fullu tré við þá og efla okkar
starf. Það er von mín að Ungmenna-
félag Reykdæla eflist og dafni á ó-
komnum ámm og félagar sýni því þá
rækt sem það á skilið. Við skulum á
þessum tímamótum minnast þess hve
margt félagið hefur gefið okkur og
gert fyrir okkur, því án svo góðs ung-
mennafélags má engin sveit vera.
Því miður getum við hjónin ekki
tekið þátt að þessu sinni í afmælis-
fagnaði félagsins, en fyrir hönd okk-
ar og Ungmennafélags Islands óska
ég félaginu allra heilla í tilefni 90 ára
afmælisins og blessunar, gæfu og
gengis á ókomnum ámm.
Þórir Jónsson
formaður Ungmennafélags
íslands
Steypa - Gai'ðasandur - Fín möl -
Gróf möl - Grús - Vörubílar
- Traktorsgraía - Pínulítil grafa -
Jarðborar - Brotíleygar - Steinsagir
- Jarðvegsskipti - Innkeyrslur
- Garðveggir og margt fleira
Höfðaseli 4 - Akranesi - Sími 431 1144
ÞORGEIR & HELGI
Öll tilmenn pípulagningcivinna
UWé
PÍPULAGNIR
Heimir Björgvinsson
Símar 431 1615,896 0188
Magni Ragnarsson
Símar 431 1453, 896 0184
Fax: 431 4666
Öll almenn málningarvinna
Háþrýstiþvottur-Sprunguviðgerðir-
Sílanböðun-Sandspörtlun.
Málningarverktakar.
Híbýlamálun Garðars Jónssonar
sími 431 2646 og 896 2356
Til leigu ný vinnulyfta meö 13m vinnuhæð. Einnig
til leigu háþrýstidæla með 320 bara þrýsting.
Lyftu- og dæluleiga
Rúnars Gunnarssonar
Einigrund 4 - 300 Akranes - Sími: 431 2839 og 897 5184
STEINS0GUN SIMAR:
KJARNAB0RUN 434 7883
STÍFLUL0SUN 854 5883
RÖRAMYNDUN GÚSTAF
REYNIÐ VIÐSKIPTIN JÖKULL
• BátometVingo'
I .ftuglystnBotnerVinsot
1 . tAerVingot ó Iteto'n'1
. SVittageiö
• GóttmetVingat
SKILTAfMIÐJA
L DISU
I ^PV Þórdís Sveinsdóttir
; Esjubraut 43, Akranesi
S 431 3877 431 3777 & 899 1557
TAMNINGASTÖÐIN
ÁRÞAL
* Tamningar • Þjálfun • Umboðssala
BJÖRN H. EINARSSON, NEÐRI - HREPP • SÍMAR 899 6131 & 437 0054
B.O.B. SF. - VINNUVELA
f ♦ Traktorsgrafa ♦ Loftpressa ♦ Lítil beltagrafa ,;
Björn Björnsson Ólafur Björnsson
Heimasíml 431 2043 Heimasími 431 2985
GSM 896 0172 GSM 894 5671
SMÁ-AUGLÝSINGAR
LEIGUMARKAÐUR
TÖLVUR OG HLJÓMTÆKI
Bændur, hestamenn tún til
leigu í Reykholtsdal. Uppl. S:
487 5164 Hákon.
Óska eftir að taka litla íbúð á
leigu í Borgarnesi uppl. S:899
7594 (Ásta Sigga).
Til leigu á Akranesi 4. herb.
blokkar íbúð. Uppl. S: 431 1989
eða 431 2429.
Óska eftir að taka 2-3 herb.
íbúð til leigu á Akranesi. Uppl.
S: 431 1082.
Óska eftir að taka á leigu 2ja -
3ja herbergja íbúð sem fyrst.
Uppl. í síma 431 1072 eftir kl.
V-
Óskast leigt, u.þ.b. 140 fm.
einbýiishús, eða fimm her-
bergja íbúð óskast til leigu á
Akranesi frá 1. júlí, eða fyrr.
Uppl. í síma 451 3368.
Til leigu í Borgarnesi, for-
stofuherbergi fyrir reyklausan
einstakling. Uppl. í síma 437
1522._______________________
TIL SÖLU
Til sölu góður 9. vetra reið-
hestur verð 180-200.000. Til
greina koma skipti á bíl. Uppl.
S 431 1075 milli kl. 8-17. og
431 3530 milli 18 og 22.
Til sölu girðingastaurar úr
rekavið. Uppl. gefa Hallsteinn
og Jenný í S: 435 6740.
Vil komast í samband við
manneskju sem getur sniðið á
mig upphlut. Uppl. í síma 431
2146.
FYRIR BÖRN
Til sölu 24“ telpnafjallahjól á
8.000. Uppl. í síma 431 3050
(Vera).
Öska eftir að kaupa útirólur og
lítið tví- eða þríhjól. Uppl. í
síma431 1668.
HÚSBÚNAÐUR
Til sölu vatnsrúm 180 cm á
breidd úr gegnheilli furu uppl. S
437 1903
Til sölu tvíbreiður svefnsófi
uppl. S: 437 2342
Til sölu tvær springdýnur,
breidd beggja saman 150,
lengd 200. Tvær undirdýnur,
75x200. Einnig til sölu tvíbreið-
ur svefnsófi og fjórir brúnir eld-
hússtólar. Uppl. í síma 431
1865 eftirkl. 17.
Til sölu gestarúm sem hægt
er að leggja saman. Uppl. í
síma 435 1424.
HEIMILISTÆKI
Til sölu 310 Itr. frystikista og
ísskápur stærð 113x55 uppl S:
437 2342
Til sölu nyyfirfarinn geislaspil-
ari. Uppl. í síma 437 1171.
BÍLAR; HJÓL OG VAGNAR
Til sölu Monsa Classic SE
árg 88. Uppl. S: 437 0016.
Bíll til sölu. Mercedes Bens
230 E '84. Ekinn aðeins
168.000 km. Sjálfskiptur, Topp-
lúga, álfelgur. Góður og vel
með farin bíll. Uppl. S: 431
1858.
Tjaldvagn óskast. Óska eftir
vel með förnum tjaldvagni. Ekki
með áföstu fortjaldi. Verð hug-
mynd kr. 50- 100.000,- Uppl. S:
581 2187 eða 899 2755.
Til sölu Masda 626 GLX 2000
árg. '86. Ekinn 230.000 km.
Annar fylgir með í varahluti.
Verð 180.000. Uppl. S: 433
8908.
Til sölu hestakerra tekur 2
hesta. Dráttartengd múgavél,
lyftutengd múgavél, dráttarvél
Case 485 X árg '88. Uppl. S:
467 1136, 467 1041 og 467
1027 á kvöldin.
Til sölu hvítur MMC Galant
GLSi árg. 1993, ek. 138 þús.
ssk., rafm. í öllu, samlæsingar,
spoler. Verð 1.100.000. Uppl. í
síma 431 4850 (Sæmundur).
DÝRAHALD
Til sölu 3 snemmbærar kvígur
og 1 kálflaus. Uppl. gefa Hall-
steinn og Jenný í S: 435 6740
ATVINNA ÓSKAST
Halló, halló, mig vantar vinnu
í sumar. Ég er fjórtán ára stelpa
sem nauðsynlega vantar vinnu
í sumar, helst á Akranesi eða í
Innri-Akranesihrepp. Ég get
passað börn á aldrinum 0 til
eins og hálfs árs, er með RKÍ
námskeið. Svo get ég gert ým-
islegt fleira. Ég mundi helst vilja
vinna eftir hádegi. Uppl. í síma
431 3434 (Gunnur).
Þrettán ára stelpa óskar eftir
að fá að passa börn, er vön og
með RKÍ námskeið. Uppl. í
síma 431 4550.
ATVINNA í BOÐI
Óska eftir 14 til 15 ára stelpu
í sveit í sumar. Barna pössun,
úti og inni störf. Uppl. S: 431
2561
Norsk fjölskylda með 3 börn,
er búa í nágrenni við Osló óska
eftir að ráJa aupair frá 1. ágúst
n.k. Uppl. gefur Anna í S. 438
6506.
^ ^MÉÉMÍI ■ 'jp"i— • **'ÉBB'"'
Félagsheimilið
Brautartunaa
Lausar helgar í ágúst!
Tilvalið fyrir ættarmót og fleira
Sundlaug og íþróttavöllur á
staðnum.
Upplýsingar í s: 435 1446