Skessuhorn


Skessuhorn - 05.11.1998, Page 7

Skessuhorn - 05.11.1998, Page 7
SKiSSIÍliöBKI FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 7 Danskur sendikennari Norðurlöndin hafa á undanfömum áratugum haft með sér margvíslegt samstarf á nánast öllum sviðum efna- hagslífs, atvinnumála og síðast en ekki síst mennta- og menningarmála. Aðallega hefur það komið fram í höf- uðborgum Norðurlanda þ.e. fólk á landsbyggðinni hefur lesið um það í blöðunum og heyrt og séð fréttir af því útvarpi og sjónvarpi. Nú hefur það gerst að landsbyggðin sér loks eitthvað gerast á ofangreindum svið- um og sem dæmi hefur verið á Vestur- landi danskur sendikennari. Hann hefur verið á Akranesi undanfama tvo mánuði og kennt í Grunda- og Brekkubæjarskóla og mun hefja kennslu í Stykkishólmi í þessari viku. Skessuhorn innti kennarann Jane Pedersen og mann hennar Bent Pedersen eftir tilgangi og markmiði dvalar þeirra hér. Bæta kennslu „Tilgangurinn með dvöl okkar hér á landi er fyrst og fremst að bæta kennslu í dönskum framburði með því að vera með kennurum í kennslu og tala við þá og nemendur á dönsku eins og hún er töluð í Danmörku.“ sagði Jane. „Það hefur háð dönsku- kennslu mikið hér á landi að danskan sem talað mál hefur farið halloka þ.e. bæði kennarar og nemendur hafa fengið of fá tækifæri til að tala dönsku eins og hún er. Einnig að koma á ff amfæri þekkingu okkar og reynslu í tungumálakennslu og að fá fram og þróa betur hugmyndir íslenskra kennara. Þetta á reyndar við um alla tungumálakennslu og kennarar hér þurfa að fá meiri þjálfun í að tala það tungumál sem þeir kenna t.d. mætti sýna fleiri ótextaðar kvikmyndir og er okkar starf liður í því að bæta þar úr,“ sagði hún og lagði áherslu á að tungan breytist og þróast og því þyrftu kenn- arar að fylgjast með og dvöl þeirra hér létti vonandi undir með þeim. Þegar blaðið innti Bent eftir því hvert hans hlutverk væri sagði hann að hann væri komin á eftirlaun og væri í raun ekki sendikennari heldur hefði hann bara komið með og tæki þátt í þessu af áhuga einum saman. ,,Ég hef haft mjög gaman af því að fara með Jane í skól- ann og fá að taka þátt í starfmu og láta gott af mér leiða. Ég kenndi eðlisfræði og stærðfræði áður og hef reynt að láta þau fræði koma fram í því sem ég hef gert. Mín þátttaka hefur að minnsta kosti komið í veg fyrir að mér leiðist." sagði Bent og kímdi. Bent vildi bæta því við að með sinni þátttöku hefðu skólayfirvöld á Vestur- landi fengið „tvo fyrir einn“ nokkuð sem er svo vinsælt í allri markaðs- setningu nú til dags. Stórkostleg náttúra Þegar þau voru spurð hvort þau hefðu ekki séð eitthvað af landinu þann tíma sem þau hafa verið hér kváðust þau hafa farið á alla helstu staði á Suður- og Vesturlandi. „Náttúr- an hér á íslandi er mögnuð í öllum sínum mikilfengleik og dulúð. Gjöró- l£k því sem við höfum séð annars stað- ar og hlökkum mikið til að sjá meira af henni þegar veður gerast válynd og hörð. Við vorum að vísu á Grænlandi fyrir 20 árum og dvöldum þar í ein fjögur ár en það jafnast ekki á við þetta sem við höfum séð hér. Það er einnig gott að kynnast landinu á þennan hátt, lifa með landanum og starfa, ekki eins og ferðamenn sem rétt sjá yfirborðið og eru síðan farnir." sagði Jane og Bent bætti við „eins og að vinna í lottói." „Það hefur einnig komið okkur á óvart hve mikla á- herslu þið leggið á að íslenska öll orð yfir alla skapaða hluti eins og tölvur, þotur, þyrlur og hvað sem er sem hlýtur að gefa ykkur enn betra tæki- færi til að vemda tungumálið, nokkuð sem við Danir höfum vanrækt“ Frábærar móttökur „Við viljum koma á framfæri miklu þakklæti til félaga okkar á Akranesi fyrir frábærar móttökur og ómetan- legan stuðning og við emm viss um að móttökumar á hinum stöðunum verða ekki síðri. Það hefur einnig komið Hjónin Jane Pedersen og Bent Pedersen. Snæfellsbær •SétíicHHafb Vegna forfalla vantar sérkennara til starfa í sérdeild Grunnskólans í Ólafsvík frá og með næstu áramótum, 1. jánúar 1999. Um er að ræða heila stöðu auk fag- stjórnunar í sér- og stuðningkennslu skólans, umsjón Nemendaverndarráðs auk annarra sérverkefna, sem eru í boði fyrir hæfan aðila, s.s. við endurskoðun skólanámskrár og námsmats. Gúð starfskjör og starfsaðstaða í boði, auk þess stendur fyrir dyrum gerð nýs kjarasamnings um bætt kjör kennara á staðnum. Umsóknir skulu berast Sveini Þór Elínbergssyni, aðstjóraskólastjóra, Ennisbraut 11, 355 Ólafsvík sem jafnframt veitir nánari upplýsingar í símum: 436-1150 og 436-1251, símbréf 436-1481 okkur á óvart hve íslenskir kennarar vinna gríðarlega mikið og óeigin- gjamt starf í þágu barnanna og menntamála í landinu, mun lengri vinnutími en í Danmörku og kvarta ekki. Reyndar munu allir kennarar hvar sem þeir em leggja jafnmikið á sig í þágu bamanna en þeir íslensku em sér á báti og undarlegt að þeir skuli ekki fá meiri hljómgmnn en þeir hafa en út í þá sálma skal ekki farið hér.“ sögðu hjónin að lokum. A.Kúld Námskeið: Sporin 12 og trúin Námskeið á vegum Leikmannaskóla kirkjunnar: "Sporin 12 ogtrúin." verður haldið laugardaginn 7. nóvember 1998 í safnaðarsal Gmndaífjarðarkirkju. Umsjónarmenn: Karl V Matthíasson, Gmndarfirði. Jósep Blöndal, Stykkishólmi og Kristinn Bjamason, Stykkishólmi. Námskeiðið er ætlað þeim sem þekkja til eða vilja komast í kynni við hugmyndafræði 12 sporakerfisins og hversu það er samofið kristinni siðfræði og trú. - Kyrrð, íhugun helgihald og uppbygging. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku í síma 438 -6640 til kl. 14.00 föstudaginn 6. nóv. Námskeiðsgjald er kr. 1500. Tvírétta hádegisverður og kaffi á Hótel Framnesi kostar 1.200 kr. fyrir þá sem koma á námskeiðið. Leikmannaskóli kirkjunnar FJÖLBRAUT ASKÓLI VESTURLANÐS Á AKRANESI Tölvanámskcið Farskóla Vasturlands og Starfsmannafélags flkranass. Excel fyrir lengra komna (10 kennslustundir, gjaldfrítt fyrir St.Ak.félaga, aðrir greiða kr. 5.000) Laug.7.11. (kl.13-16), mið. 11.11. (kl.20:30-22), laug.14.11. (kl.9-12). Órfá pláss laus. Tölvupóstur, intemet, vefsíðugerð (16 kennslustundir, gjaldfrítt fyrir St.Ak.félaga, aðrir greiða kr. 8.000) Laug.14.11. (kl.13-16), sun.15.11. (kl.9-12), þri. 17.11. (kl.20-21:30), fim. 19.11. (kl.20-21:30), laug.21.11. (kl.9-12). Aukanámskeið ef næg þátttaka næst: Windows-Word fyrir byrjendur (20 kennslustundir, gjaldfrítt fyrir St. Ak.félaga, aðrir greiða kr. 9.000) Laug.21.11. (kl.13-16), sun.22:ll. (kl.9-12), þri. 24.11. (kl.20-21:30), fim. 26.11. (kl.20-21:30), laug. 28.11. (kl.9-12), sun.29.11. (kl.13-16). Word - framhaldsnámskeið (10 kennslustundir, gjaldfrítt fyrir St.Ak.félaga, aðrir greiða kr. 5.000) Laug.28.11. (kl.13-15:15), mán. 30.11. (kl.20:30-22), mið. 2.12. (kl.20:30-22), laug. 5.12. (kl,13:-15:15). Skráning á ofangreind námskeið stendur frá 5. til og með 11. nóvember í síma 431-2544 (skrifstofa Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi).________________________ Farskóli Vesturlands - Starfsmannafélag Akraness IHCtu viHha í s^CHUHtiCcégH HHtfiverfi? StARFSMAÐUR ÓSKAST f BÍLAÞJÓNUSTU- FYRIRTÆKI í BÚÐARDAL Þjónustufyritæki innan bílgreina í Búðardal óskar eftir starfsmanni í hálft starf. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á samskiptum og vera jákvæður og kurteis. Starfið felst m..a í móttöku viðskiptavina, umsjón með bókhaldi, sölu og fleiru. Upplýsingar eru veittar í síma 434 1112 eða 434 1158 Búðardal

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.