Skessuhorn - 05.11.1998, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 5. NOVEMBER 1998
^nbssunu^
Kröfuganga nemenda Grunnskólans setti svip sinn á bæjarlífiö á föstudaginn.
Vímuvamarvika í
Borgarbyggb
Ungir kvikmyndager&armenn.
Vinnugle&in var í hámarki í vímuvarnavikunni.
í síðustu viku var svokölluð þema-
vika í grunnskólunum í Borgarbyggð.
Vikan var að þessu sinni helguð bar-
áttunni gegn vímuvömum og var lið-
ur í sameiginlegu forvarnarátaki
Borgarbyggðar, SAA og heilbrigðis-
ráðuneytisins. Blaðamaður Skessu-
horns heimsótti Grunnskólann í
Borgamesi og hitti þar fyrir Kristján
Gíslason skólastjóra.
„Þessa viknna er hefðbundin stund-
arskrá lögð til hhðar og nemendur
vinna að ákveðnum kjamaverkefnum
sem allir taka þátt í og einnig val-
verkefnum. Eldri nemendumir em að
æfa leikrit, semja söngtexta, teikna á
plaköt og boli, gera smttmyndir, svo
eitthvað sé nefnt. Yngri nemendumir
em í verkefnum sem leggja áherslu á
vináttu og samvinnu og hjá þeim er í
gangi svokölluð leynivinavika. sem
felst í því að allir eiga sér sérstakan
leynivin og eiga að gleðja hann á ein-
hvem hátt, t.d. með smágjöf eða fal-
legum orðum á blaði. Síðan er leyndin
opinberuð í lok vikunnar," sagði
Kristján. Hann sagði að nemendur
hefðu tekið þessu verkefni vel og á-
huginn væri mikill. Sem dæmi nefndi
hann að sumir eldri nemendurnir
væm langt fram á kvöld að vinna að
verkefnum. „Nemendurnir hafa lagt á
sig mikla vinnu umfram það sem til
er ætlast. Þetta er kærkomin tilbreyt-
ing að bijóta upp hefðbundið skóla-
starf og á góðum tíma áður en seinni
Reyktur syínakambur
995 kr. pr/kg
Saltað urbeinað hrossakjöt
397 kr. pr/kg.
Brauðálegg
397 kr. pr/kg.
Opið alla daöa
VER
hluti annarinnar hefst.“ sagði Krist-
ján.
Vímuvamarvikunni lauk á föstu-
dag með pompi og prakt en þá mar-
semðu gmnnskólanemar í Borgamesi
um götumar með kröfuspjöld sem á
vom ýmis slagorð gegn vímuefnum. I
Varmalandsskóla var dagskráin með
svipuðu sniði þessa vikuna.
Opnir dagar í
Fjölbraut
í síðustu viku vom opnir dagar í
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Löng hefð er orðin fyrir þessum
dögum. Tilgangur þeirra er að brjóta
upp hefðbundna kennslu og bjóða upp
á viðburði er lífga upp á skólalíftð og
gera námið skemmtilegra. Opnu dag-
amir em hluti af skólastarfmu og því
miðað við að viðburðir þeir sem boðið er
upp á séu uppbyggilegir og skemmti-
legir. í ár er boðið upp á ýmis nám-
skeið t.d. glímunámskeið, gerbakstur,
Færeyjar, reiðmennska og mörg fleiri
sem of langt væri að telja upp hér.
Auk þess var farið í ferðir tengdar
náminu og sem dæmi var farið með
nemendur á söguslóðir Islendinga-
sagna sem tengjast náminu eins og
Egilssögu og Laxdælu og á þann hátt
fengu nemendur aðra sýn á atburði Is-
landssögunnar. Nemendur í útibúum
skólans í Stykkishólmi og Snæfells-
bæ mættu á svæðið og tóku virkan
þátt í opnu dögunum.
Útvarp Blómið
Á meðan opnu dagamir stóðu rak
nemendafélag skólans útvarp sem ber
hið friðsæla nafn „Utvarp Blómið" og
sendir út á FM 95.0. Dagskrá út-
varpsins er fjölbreytt og skemmtileg
og í umsjá nemenda sjálfra. Að sögn
Ólafs Haraldssonar útvarpsstjóra er
ætlunin að halda þessum útsending-
um áfram a.m.k. einu sinni í viku og
þróa starfsemi þess áfram þannig að
útvarpið verði hluti af skólastarfmu og
taka jafnvel upp samstarf við aðra að-
ila sem áhuga hafa á útvarprekstri.
Sannir blómálfar a& störfum. Tæknimenn Blómsins önnum kafnir.
Myndir: A.Kúld.