Skessuhorn


Skessuhorn - 05.11.1998, Side 11

Skessuhorn - 05.11.1998, Side 11
„nissaunGBEl FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 11 Samkór Reykhólahrepps í Reykholti Samkór Reykhólahrepps fór sl. sunnudag suður að Reykholti í Borg- arfirði og hitti þar fyrir Hvanneyrar- kórinn og kirkjukór Reykholts. Héldu þeir tónleika í nýju kirkjunni í Reykholti. Sungu kóramir á Hvann- eyri og Reykholti saman en samkór Reykhólahrepps söng sína dagskrá. Einnig sungu allir kóramir saman. Tónleikunum lauk með sameiginleg- um söng kóranna á íslenska þjóð- söngnum. Tókust þessir tónleikar í alla staði afar vel. Einsöngvari Borgarfjarðarkóranna var Dagný Sigurðardóttir frá Skelja- brekku en þeim kórum stjórnaði Bjarni Guðráðsson kirkjuorganisti í Reykholti ásamt Steinunni Ámadótt- ur frá Brennsistöðum í Flókadal en hún er söngstjóri og kirkjuorganisti að Hvanneyri. Söngstjóri Reykhólakórsins er Haraldur Bragason tónmenntakenn- ari og kirkjuorganisti á Reykhólum. Að lokinni söngdagskrá flutti Sr. Geir Waage stutta en skemmtilega grein- argerð um hinn foma stað í Reykholti. Að því loknu fluttu gestir sig að fé- lagsheimilinu Logalandi í Reykholts- dal og snæddu þar kvöldverð. Skemmti fólkið sér síðan langt fram á nótt við dans, leiki, gamansögur ofl. Reykhólabúar komu ánægðir heim um kl. hálffjögur um nóttina en það er ekki nema um tveggja stunda akst- ur þama á milli. Þökk sé hinni ágætu Gilsfjarðarbrú. Olafur Sigurvinsson Samkór Reykhólahrepps. Sumum vegfarendum kann ab hafa komib þab spánskt fyrir sjónir ab sjá starfsmenn Vegagerbarinnar í Borgarnesi notast vib loftpressu vib ab festa nibur vegastikum. Allt á sér þó sína skýringu og ab sögn Bjarna johansen hjá Vegagerbinni er ástæban fyrir þessum vinnubrögbum sú ab stikurnar fengust ekki afgreiddar fyrr en frost var komib í jörb. Þess má einnig geta ab í síbustu viku voru starfsmenn Vegagerbarinnar ab slá kanta mebfram vegum í hérabinu og var þab af svipabri ástæbu, þ.e. ab sérstök kantsláttu- vél sem notub er til verksins var í notkun annars stabar fram eftir hausti og því var sláttur meb seinna móti. Rjúpnaveibi á vegum ríkisins Landbúnaðarráðherra hefur opnað 11 eyðijarðir í eigu ríkisins fyrir skot- veiðimönnum á yfirstandandi rjúpna- veiðitímabili. Þar af em tjórar á Vest- urlandi og ein í Reykhólahreppi. Þessar fimm jarðir em: Bakkakot, Sarpur og Stóra-Drageyri í Skorra- dal, Ólafsdalur í Saurbæjarhreppi og Hofsstaðir í Reykhólahreppi. Skotveiðimenn sem hafa fengið út- gefin veiðikort hjá embætti veiðistjóra hafa sjálfkrafa aðgang að eyðijörðun- um og ekki vérður innheimt sérstakt gjald fyriraðgengi að þeim. í fréttatil- kynningu frá landbúnaðarráðuneytinu er brýnt fyrir skotveiðimönnum að ganga vel um jarðimar, skilja ekki eftir sig verksummerki og sýna ýtr- ustu varúð ef ætla má að menn eða skepnur séu á ferð á fyrirhuguðu skot- svæði. Skoðun í Stykkishólmi þriðjud. 10. og miðvikud. 11. nóvember Síðasta skoðun ársins. Frá 11-18 og 8-17 Tímapantanir í síma 438 1385 SIEMENS ar á Akranesi ■ ■ I smátæki frá Siemens og Bomann heimilistækin frá Siemens meö 12% afslætti. Smith og Norland veröur á staönum. fc'A-' Siemens þvottavél Siemens ryksuga Sambyggður kæli- og frystiskápur frá Siemens. 193 I kælir, 103 I frystir. H x b x d = 171 x 60 x 60 sm. Nýjar þvottavélar á einstöku tilboðsverði. Taka 4,5 kg, einfaldar í notkun, 1000 snúningar/mín. Kraftmikil 1300 W ryksuga, létt og lipur, fjórföld síun, sjálfvirkur snúruinndráttur, mjög hljóðlát. Siemens eldavél [79-800Ur] Beint í eldhúsið hjá þér. Keramíkhelluborð, fjórar hraðsuðuhellur, fjölvirkur bakstursofn. Nýr þráðlaus sími frá Siemens GIGASET 2010 Gigaset 2010 er nýr þráðlaus sími frá Siemens af allra bestu gerð. DECT/GAP-staðall. Svalur. Stafrænn. Sterkur. Mikil hljómgæði. Treystu Siemens til að færa þér draumasímann. Hann er hér! Og nú á tilboðsverði. FULL BÚÐ AF NYJUM VORUM. OPID FRÁ KL. lO - 16. RAFMÚNUSTA SIGURDÓRS Skagabraut 6 ■ Sími 431 2156 Bóka I skemman Stillholti 18 - Sfmi 431 2840

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.