Skessuhorn


Skessuhorn - 05.11.1998, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 05.11.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 JHÍ331I1UK. Snæfell komíb á skrib Snæfellingar eru komnir á gott skrö eftir slaka byrjun í deildinni. Þeir unnu annan leik sinn í röð á föstudag er þeir lögðu hið sterka lið KFÍ á fsafirði 76 - 67. Staðan í hálfleik var 40-38, KFI í vil. Snæfellingar spiluðu sterka vöm og agaðan körfubolta. Heimamenn náðu aldrei að keyra upp þann hraða sem þeir vildu og mistókst hvert þriggja stiga skotið á fætur öðm. Dómgæslan í leikn- um var mjög umdeild og í lok fyrri hálfleiks var dæmt brot á Snæfell sem leikmenn og liðstjóri mótmæltu hástöf- um með þeim afleiðingum að þeir fengu þrjár tæknivillur og eina bónusvillu og liðsstjóranum var vísað úr húsinu. í síð- ari hálfleik áttu Hólmarar leikinn og vom með forystu til leiksloka. Birgir og Bárður vom bestu menn leiksins. Tölurnar Leikmaður Mín. Stig. Stoðs. Frák. Stjömur 4 Baldur Þorleifsson 8 0 1 0 *** 5 Olafur Guðmundsson 1 2 0 0 7 Athanasios Spyropoul 23 12 0 1 ** 8 Jón Þ Eyþórsson 26 7 0 2 ** 9 Bárður Eyþórsson 40 20 3 1 *** 11 RobWilson 37 15 1 9 *** 12 Birgir Mikaelsson 34 18 2 9 **** 14 Mark Ramos 31 12 3 3 ** Tap á Skaganum Skagamönnum virðist vera að fatast flugið eftír góða byrjun. Þeir áttu þó á- gætan leik á móti Keflavík á Akranesi s.l. fimmtudag en náðu ekki að leggja sterkt lið Keflavíkur. Keflvíkingar pressuðu stíft á heimamenn og fyrir vikið náði hinn fymasterki David Bevis ekki að beita sér eins og í fyrri leikjum sínum. Dagur Þórisson var besti maður Skagamanna í leiknum Tölurnar Leikmaður Mín. Stig. Stoðs. Frák. Stjörnur 4 Brynjar Sigurðsson 27 7 1 1 * 5 Björgvin K Gunnarsso 17 7 1 1 * 6 Pálmi Þórisson 10 0 0 0 * 9 Aleksandre Ermohnsk 23 6 2 1 ** 10 Trausti F Jónsson 32 2 4 2 ** 12 Jón Þ Þórðarson 4 0 0 2 13 Bjami Magnússon 31 10 1 7 *** 14 Dagur Þórisson 25 9 2 10 *** 15 David Bevis 32 22 2 11 ** Lélegt í Borgarnesi Skallagrímsmönnum tókst ekki að ná í sín fyrstu stig í deildinni í vetur þegar þeir fengu Þór frá Akureyri í heimsókn á fimmtudaginn var og það voru vonsviknir áhorfendur sem yfirgáfu húsið eftir að Akureyringamir höfðu rassskellt Skallana 91 - 72 en staðan í hálfleik var 41 - 41. Skallagrímsmenn byijuðu þokkalega og léku sæmilega mest allan fyrri hálf- leik en í síðari hálfleik stóð ekki steinn yfir steini og leikur þeirra einkenndist af algjömm klaufaskap og menn höfðu það á orði að þeir hefðu jafnvel sett fs- landsmet í töpuðum boltum. Nýi út- lendingurinn Eric Franson sýndi ekki mikið í sínum fyrsta leik og er það ósk- andi að þetta hafi verið slæmur dagur hjá honum. Þeir Finnur og Sigmar vom skárstir í slöku liði Skallagríms. Tölurnar ður ric Franson inn Friðriksson Gunnarsson órnas Holton nur Jónsson mar Egilsson 5 ynur Bæringsson 4 nning Hentúnjss^^ 18 13 12 11 q *. 0 f 11 JPJf i ' 'I_"| i * IM 'l’#l " ’ 'ifil''I "J ,,M íCiukto: Sd.dó^. 16.00 -1700 Amazon (Adalþáttur) 1700-1900 RidicT húsum (eins og G lám ur ger di f or d um) Ragnar Gunnarsson / Konrád Brynj arsson 1900 - 2100 Lost in the j ungle Hannfcal / Gard ar / þórd ur / og f l. 21.00 - 23.00 Á téttu nótunurn Jóhann B.Gudmuncbs./ Sigurdur Ari Ómarss. 23.00-0000 Tónfct KIuM^d: 6.Dót> 1500 -17.00 Amazon (Adalþáttur) 17.00-19.00 Tónfct 1900-2100 í tómutjóni Ármann Gudgeirsson^ Karl Eiríksson 21.00-2300 Tónfct 23.00-01.00 Ba5edonba55 (>/)agnú5 Andrésson Stefnt er að hafa útsendingar á fimmtudögum og föstudögum. 5.-6., 12.-13., 19.-20. og 26.-21. nóvpmber. Sparisjóöshlaup 1998 Hið árlega Sparisjóðshlaup fór fram laugardaginn 17. október í köldu en annars góðu veðri. Ungmennasam- band Borgarfjarðar sá sem áður um framkvæmd hlaupsins en Sparisjóður Mýrasýslu lagði til verðlaunin. Þtjár 10 manna sveitir, blandaðar, ( minnst 4 konur verða að vera í hverri sveit), tóku þátt í hlaupinu að þessu sinni en hver hlaupari hljóp 1 km. þrisvar sinnum þ.e.a.s. hver sveit hljóp 30 km. Að þessu sinni var hlaupið ffá Brennistöðum í Borgarhrepp niður Feijubakkaveginn um Hvítárbrú, upp Hvítárvallaflóann þaðan Heggstaða- veginn að Vatnshamarsholtinu síðan niður á þjóðveg yfir Andakílsá og sem leið hggur í Borgames og endað fyrir framan Sparisjóðinn. Sveit Umf. ís- lendings kom fyrst í mark á tíma sem var undir tveimur klst. Næsta sveit var „Góð sveitin“ en sú sveit var skip- uð fyrst og fremst trimm fólki úr Borgamesi. í þriðja sæti var sveit Skallagríms. Að loknu hlaupi bauð Sparisjóður Mýrasýslu öllum þátttakendum í súkkulaði og kökuhlaðborð á Hótel Borgamesi og vom veitingamar vel þegnar eftir erfitt hlaup. Þar vom verðlaun veitt, hverjum hlaupara og veglegur farandbikar afhentur sigur- sveitinni. Gu&rún Daví&sdóttir, Sparisjó&i Mýrasýslu, afhendir Önnu Dís Þórarins- dóttur fulltrúa Umf. íslendings farandbikarinn. Anægðir en þreyttir hlauparar fyrir framan Sparisjóð Mýrasýslu. IAhomib V ímu var narstefna IA kynning Mikil umræða hefitr átt sér stað um notkun vímuefna meðal unglinga og oftar en ekki hefur umræðan borist að íþróttunum sem lið í forvamarstarfi gegn vímuefnum. Iþróttabanda- lag Akraness (IA) telur sér skylt að taka þátt í þessari umræðu og vinna gegn notkun þessara efna og þá sér- staklega innan sinna vébanda. Stjóm IA er sammála um að undir hugtakið vímuefni falli einnig áfengi og tóbak og sér ekki þörf á því að nefna það sérstaklega þegar rætt er um vímuefni og vamir gegn notkun þeirra eða fræðslu um skaðleg áhrif þeirra. Fyrir einu og hálfu ári síðan kynnti IA vímuvarnarstefnu sína innan sinna vébanda sem er yfirlýst stefna IA í vímuvamarmálum: ÍÞRÓTTIR OG VÍMUEFNI EIGA EKKI SAMLEH). Til að fylgja þessari stefnu eftir lagði stjóm IA fram eftirfarandi til- lögur til að framfylgja þessari stefnu meðal sinna aðildarfélaga. • Öll neysla vímuefna á íþrótta- ferðalögum og á öðmm opinberum vettvangi tengt íþróttastarfi ÍA verði bönnuð. • Aðildarfélög ÍA skulu leitast við að ráða til sín hæfa þjálfara sem hafi fullnægjandi og viðeigandi menntun til að starfa við þjálfun á vegum ÍA. Leggja skal áherslu á það við þjálfara að þeir séu fyrirmyndir á þessu sviði og skikka skal þá til að sækja nám- skeið tengt þessu viðfangsefni. • Æ meiri kröfur em gerðar til í- þróttafélaga að þjálfarar séu vel menntaðir og að starf þeirra skili sem bestum árangri. Með því að leggja á- herslu á vel menntaða þjálfara sem veljast til starfa innan íþrótta- hreyfingarinnar á Akranesi munu að- 'Vc’í^'iV ; • 5 ildarfélög ÍA afla sér trausts og virð- ingar meðal almennings en kröfur um innihald og gæði þess starfs sem unnið er í íþróttahreyfmgunni hafa farið vaxandi og ekki síst vegna þess hversu þýðingarmikið uppeldisstarf er hér um að ræða. • Stjóm IA skal einu sinni á ári standa fyrir námskeiði fyrir þjálfara og leiðbeinendur um forvamir. Skal þar m.a. tekið fyrir: • Almennar forvamir • Heilbrigt lífemi, mataræði, svefn o.fl. • Hlutverk þeirra sem uppalendur og fyrirmyndir. • reglusemi • snyrtimennska • stundvísi • jákvætt háttemi • Vímuefni • Ofbeldi, einelti ofl. • Stjóm ÍA skal beita sér í því að notkun vímuefna verði bönnuð í í- þróttamannvirkjum og félagsheimil- um sem tengjast íþróttastarfi og í- þróttahreyfmgunni. • Stjóm IA í samvinnu við íþrótta- og æskulýðsnefnd skal kanna þann möguleika að opna íþróttamiðstöðina á laugardagskvöldum þar sem ung- lingum gefst kostur á að dvelja þar við fþróttir eða aðra sambærilega tómsmndaiðkun. • Einn liður í forvamarvinnu í- þróttahreyfmgarinnar er að hvetja böm til að iðka íþróttir. En hvað fær böm til að vilja stunda fþróttir? • foreldrar hvetja böm sín • svo þau fái næga hreyfingu • svo þau hafi eitthvað fyrir stafni • svo þau séu í ömggum höndum o.fl. • vinir hvetja vini • vegna þess að það er gaman • kennarar og þjálfarar hvetja böm • vegna þess að þeir þekkja gildi í- þrótta. Ut frá þessu er hægt að segja að þátttaka foreldra sé mikilvæg fyr- ir íþróttaiðkun bama, en hvemig er hægt að virkja foreldra til þátttöku? • með upplýsingum um starf fé- lagsins • með því að fá þeim afmörkuð verkefni. • I tengslum við vímuvamarstefnu ÍA þarf að halda á lofti gildi iþrótt- anna fyrir íslensk ungmenni og nota efhi úr samnefndri könnun Rann- sóknarstofnunar uppeldis- og menntamála sem gerð var árið 1992 og birt 1994, en þar kom m.a. fram: • að unglingar sem iðka íþróttir og em í góðri líkamlegri þjálfun • reykja síður • drekka síður • neyta síður vímuefiia • líður betur í skóla • hafa meira sjálfstraust • þjást síður af þunglyndi og kvíða Líkt og áður hefur komið fram er um eitt og hálft ár síðan stefnan var kynnt og samþykkt af aðildarfélög- umLA. Misjafnlegahefurgengiðhjá félögunum að framfylgja henni en á heildina htið þá er ekki annað hægt að sjá en vel hafi tekist til. Vímu- vamarstefnan hefur vakið menn til umhugsunar um mikilvægi þess að þessir hlutir eigi ekki samleið með í- þróttunum. íþróttastefnan sem kynnt var í síðasta blaði er hður í því að taka þessi mál enn fastari tökum og vonast íþróttahreyfingin til að fastmótuð heildarstefna gagnvart vímuefnum sem og öðmm þáttum innan hreyfingarinnar verði til þess að bæta ímynd hennar gagnvart þeim sen^ vilja til hennar leita og eða styrkja.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.