Skessuhorn


Skessuhorn - 03.12.1998, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 03.12.1998, Blaðsíða 6
T 6 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 a&liSSlinu^ Tívolí á Akranesi Skagaleikflokkurinn og NFVA setja upp Stuömannasöngleik Skagaleikflokkurinn á Akranesi hefur í gegnum tíðina verið eitt af öflugri áhugaleikfélögum landsins. Starfsemi félagsins hefur þó verið mismikil á allra síðustu árum og hefur fjárskortur og aðstöðuleysi staðið því fyrir þrifum en nú ætla leikarar á Skaga að blása til sóknar á ný og ráðast í enn eitt stórvirkið. Nú er að hefjast undirbúningur fyr- ir uppsetningu á söngleiknum Tívolí sem byggir á samnefndri hljómplötu sem Stuðmenn sendu frá sér árið 1976 en sýningin verður sett upp í samstarfi við Leiklistarklúbb Fjöl- brautarskólans. Blaðamaður Skessu- homs ræddi við höfundinn Steingrím Guðjónsson úr Skagaleikflokknum og innti hann eftir því hvað væri um að vera. „Það er nú fulldjúpt í árinni tekið að kalla mig höfund að einu eða neinu hér,“ sagði Steingrímur. „Við getum sagt að ég hafi lagt fram vinnuskipulag að drögum að hug- mynd. Þessi hugmynd fæddist í vor, stakk sér niður í höfuðið á mér fyrir- varalaust. Síðan kom þetta til mín fullskapað eina nóttina en ég asnaðist náttúmlega ekki til að setja þetta á blað samstundis þannig að ég gleymdi stómm hluta af þessu aftur. Síðan er þetta að koma til baka smám saman.“ Hveitibjörn og félagar Steingrímur sagði Stuðmenn hafa strax tekið vel í hugmyndina. „Við höfðum samband við þá í vor eftir að hugmyndin varð til og þeir tóku okk- ur býsna vel en settu það skilyrði að einhver fyndinn myndi skrifa text- ann. Þann aðila fundum við ekki og þess vegna hef ég verið að reyna að glæða hugmyndina lífi í samvinnu við leikstjórann Guðjón Sigvaldason. Ég bind miklar vonir við samstarfið við Fjölbrautaskólann og ég á von á að þessir krakkar verði dóminerandi í sýningunni. Þau búa að miklum hæfi- leikum sem er sjálfsagt að virkja. Sögusviðið er eins og nafnið gefur til kynna, Tívolíið í Vatnsmýrinni í Reykjavík. „Ég bý að því að muna eftir Tívolínu í Vatnsmýrinni en mað- ur var að þvælast þama sem strákur. Lögin á plötunni eru í raun stuttar sögur og það sem ég þurfti að gera var að tengja þau saman og glæða persónumar lífi. Menn munu koma til með að sjá þama karaktera eins og Hveitibjörn, Ólínu, Frímann flug- kappa og fjallkonuna. Ég sé fyrir mér að Bíóhöllinni verði breytt í Tívolí á meðan á þessu stendur og menn geti fengið innsýn í þessa stemningu sem einkenndi Tívolíið í Vatnsmýrinni. Að minnsta kosti held ég að hægt sé að lofa því að þetta verður mikið „show“,“ sagði Steingrímur. í fjársvelti Steingrímur Guðjónsson er vél- virki að atvinnu, ættaður úr Reykja- vík en hefur síðustu sautján árin unn- ið á Gmndartanga og búið á Skagan- um en í seinni tíð starfar hann einnig sem barþjónn á Bámnni. A Skagan- um kynntist hann áhugaleikhúsinu og hefur að eigin sögn verið heltekinn af því síðan. „Þegar ég flutti úr Reykjavík var ekki til neitt áhugaleikfélag þar þannig að ég fékk ekki tækifæri til að vera með fyrr en ég kom á Skagann. Ég hef starfað með Skagaleikflokkn- um síðustu 14-15 árin og komið að öllum þáttum leikhússstarfsins nema að stýra ljósunum. Skagaleikflokkur- inn er skemmtilegur félagsskapur og félagið hefur gert marga góða hluti en fjárskortur hefur staðið okkur fyrir þrifum. Bíóhöllin hefur verið myllu- steinn um háls leikflokksins en hún er of stór og of dýr og ég hefði gjaman viljað sjá meiri stuðning frá Akranes- bæ en hann hefur nánast eingöngu verið í formi húsaleigu í kjallara í- þróttahússins. Tökum fram vinilinn Þetta hefur gert það að verkum að undanfarin ár höfum við verið á kaffihúsum og veitingahúsum, bfla- versktæðum og bflasölum. En nú för- um við aftur inn í höllina og ég hlakka til því hún er orðin virkilega flott.“ Að sögn Steingríms munu æfingar hefjast af fullum krafti upp úr ára- mótum en nú er unnið að því að fá leikara, söngvara, tónlistarfólk og aðra starfskrafta af öllum stærðum og gerðum til að taka þátt í uppfærsl- unni. Steingrímur sagði að leikara- fjöldinn færi að hluta til eftir því hvað margir vildu vera með. Því fleiri því betra. „Ég hvet bara alla til að taka fram gömlu vinilplötuna og hita sig upp og koma sér í stellingar. Við ætl- um okkur að hafa gaman af þessu og vonandi geta einhverjir aðrir haft það líka,“ sagði Steingrímur að lokum. Spurningakeppnin í Röst Spumingakeppni félagsheimilis- ins Rastar á Hellissandi heldur á- fram og 14. nóvember var þriðja kvöldið af fjómm í sextán liða úr- slitum. Þar bám Vinnuvélar Snæ- bjamar sigur úr býtum gegn vösku liði Jensínu og félaga hjá fslands- pósti á Hellissandi. í síðari umferð- inni sigraði lið Skessuhoms Lions- klúbbinn Þemuna á Hellissandi. Sigurliðin halda áfram í átta liða úrslitum sem hefjast eftir áramót. Lib Vinnuvéla Snæbjarnar. Jól í Bókaskemmunnf! Bækurnar Geisladiskarnir Myndböndin; Herkúles, Hafmeyjan, Anastasía, Titanic Tölvuleikirnir; T.d. íslenski Championship manager Spil; Blanko, Monopoly, Sequence og ...Matador Púsl og Ieikföng - JÓLAKORT - JÓLASERÍUR -JÓLAPAPPÍR - JÓLASKRAUT Bóka /i l skemman Stillholti 18 - Sfmi 431 2840 Steingrímur Gu&jónsson, vélvirki, barþjónn og leikskáld. Af kolbítum í Snorrastofu Óhætt er að fullyrða að fyrirlestur Viðars Hreinssonar bókmenntafræð- ings í Snorrastofu sl. fimmtudag hafi vakið almenna ánægju þeirra 22 gesta sem komu í Reykholt. Sam- koman hófst kl. 21, en lauk ekki fyrr en rétt fyrir miðnættið vegna mikils áhuga gestanna á efnistökum Viðars, auk þess sem skemmtileg umgjörðin í sal Reykholtssafnaðar skemmdi tæpast fyrir. Rúmur einn og hálfur tími fór í almennar umræður og hafði Viðar á orði að hann hefði sjaldan upplifað jafnáhugaverðar umræður að loknum fyrirlestri hjá sér. Ekki er að undra að fyrirlesturinn hafi vakið áhuga og efnistök Viðars hrifningu, en greinilega liggja að baki framsetn- ingu hans margra ára rannsóknir. Fjallaði Viðar um hugsanleg áhrif hins svokallaða kolbítsminnis á seinni tíma fræðimenn og skáld, menn eins eins og t-.d. Jón lærða og Stephan G. Stephansson. Kolbíturinn leiddi huga viðstaddra að ýmsum fomum hetjum eins og t.d. Gretti Ás- mundarsyni, Agli Skalla-Grímssyni, Án bogsveigi og Katli hæng frá Hrafnistu. 1 umræðunum sem fylgdu komu gestir Snorrastofu hvergi að tómum kofunum og er greinilegt að þekking Viðars á íslenskri sögu og bókmenntasögu er geysi víðtæk. Víst er að þeir sem mættu í Snorrastofu á fimmtudagskvöldið munu bíða með eftirvæntingu eftir næsta fyrirlestri, en fræðasetrið hefur nú þegar skipu- lagt fyrirlestra, sem haldnir verða mánaðarlega fram á næsta sumar. Frá fyrirlestrinum í Snorrastofu. Vi&ar Hreinsson, bókmenntafræ&ingur og Bergur Þorgeirsson forstöðuma&ur Snorrastofu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.