Skessuhorn - 12.08.1999, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 12. AGUST 1999
^Kiaaunu^.
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (BorgamesogAkranes) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (BorgamesogAkranes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Utgefandi: Skessuhorn ehf.
Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 852 8598 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og ábm: Gisli Einarsson 852 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Vefdeild: Bjarki Már Karlsson 854 6930 vefsmidja@skessuhorn.is
Blaðamaður: Kristján Kristjánsson 892 4098
Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Siija Allansdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Fjármál: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222 bokhald@skessuhorn.is
Umbrot: Skessuhorn
Prentun: ísafoldarprentsmiðja bf
Skessuhorn kemur út alla flmmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr. með vsk.
430 2200
er úti
Efdr að Hvalfjarðargöngin voru opnuð með pompi og prakt
þögnuðu fljótt allar neikvæðar raddir sem spáð höfðu illa fyrir
framkvæmd þeirri. Síðan þá hafa menn verið ósparir á að
mæra þessa samgöngubót sem færir okkur nær höfuðborginni
og flytur höfuðborgina nær okkur.
Ekki ætla ég að gera lítið úr kostum Hvalfjarðarganganna
eða samgöngubóta yfirleitt. Þvert á móti tel ég mig einn af
dyggari stuðningsmönnun slíkra bóta. Þegar upp er staðið
hlýtur það að koma okkur Vestlendingum til góða að nú eru
höfuðborgarsvæðið og stór hluti Vesturlands í reynd orðið
sama markaðssvæðið og sama atvinnsvæðið. Fjöldi Vestlend-
inga sækir atvinnu til Reykjavíkur og nú er orðið hægara um
vik að sækja þangað þá þjónustu sem ekki er til staðar hér í
kjördæminu. Að vísu hafa fyrirtæki á Vesturlandi fengið aukna
samkeppni með tilkomu ganganna en á móti kemur að þau
hafa fengið greiðari aðgang að mun stærri markaði og mörg
þeirra hafa nýtt sér þá möguleika sem þar hafa opnast.
Annað er ekki jafh jákvætt en hefur kannski orðið útundan í
umræðunni. Markaðssvæði þeirra sem stunda atvinnurekstur
sem illa þolir dagsljósið hefur líka stækkað og þeir aðilar hafa
ekki síður nýtt sér þau sóknarfæri sem hafa skapast með til-
komu ganganna. Það sanna tíðar fréttir af innbrotum á sunn-
anverðu Vesturlandi síðustu misserin. Það hefur ekki farið dult
í höfuðborgarblöðunum að þeim sem sérhæfa sig í afbrotum af
ýmsu tagi hefur farið ört fjölgandi og ekki hvað síst á stór-
Hafnarfjarðarsvæðinu. Það ætti því ekki að koma á óvart að
þeir, eins og aðrir sem strrnda einhverskonar rekstur, vilji víkka
út starfssvæði sitt -auka veltuna.
Sú var tíðin að böm og gamalmenni og allir þar á milli gátu
gengið óhultir um götur borgarinnar jafnt á nóttu sem degi.
Það er ekki svo langt síðan fólk á höfuðborgarsvæðinu gat
lagst til svefns án þess að skjóta slagbröndum fyrir allar gættir.
Þeir tímar em hinsvegar liðnir. A landsbyggðinni lifum við
hinsvegar enn í fullkomnu grandaleysi í þeirri góðu trú að það
séu ekki til neinir vondir kallar hvað þá konur! Nú er kominn
tími til að við áttum okkur á að þetta fólk er til og er nú mætt
á svæðið. Því er ill nauðsyn að dusta rykið af gömlum slag-
bröndum, afsöguðum frethólkum, hrossabrestum og geðillum
varðhundum.
Ekki ætla ég að halda því ffarn að höfuðborgin sé uppspretta
alls ills. Hún hefur að sjálfsögðu upp á margt gott að bjóða en
það verður ekki bæði sleppt og haldið. Ef við viljum nýta
okkur kostina verðum við að taka því að fá gallana með í
kaupunum. Við erum orðin hluti af stærri heild og því fleiri
sem sauðirnir eru þeim mun meiri líkur á að þar leynist ein-
hverjir svartir. Við verðum einfaldlega að sætta okkur við þá
staðreynd að einangrtm sveitasælunnar er rofin.
Gt'sli Einarsson, grandalaus
Gamla lögreglustöðin í Grundarfirði.
Gamla löggustöðin í
Hólminum í Grundarfjörð?
Samkvæmt heimildum Skessu-
homs kemur til greina að gamla
lögreglustöðin í Stykkishólmi
verði flutt í Grundarfjörð og hýsi
lögregluvarðstöðina þar.
I sumar standa yfir ffamkvæmdir
við nýtt húsnæði sýslumannsem-
bættisins í Stykkishólmi og þegar
þeim er lokið losnar húsnæðið sem
hýsir lögreglustöðina í Hólminum í
dag .
Lögregluvarðstöðin í Gmnd-
arfirði er ein sú lakasta á landinu og
í íjárlögum ársins er heimild til að
kaupa húsnæði undir lögreglustöð
á staðnum. G.E.
Skógræktarstyrkir á
Vesturland
Stjóm Skógarsjóðsins úthlut-
aði nýlega fyrstu styrkjum
sjóðsins tdl skógræktarverkefna.
Allir umsækjendur fengu styrk til
skógræktar og komu þeir úr öllum
landshlutum. Samtals var úthlutað
rúmlega fimm milljónum króna til
35 aðila. Styrkirnir eru í formi
úttektar á skógarplöntum.
Vesdendingar geta vel við unað í
úthlutun Skógarsjóðsins þar sem
rúmlega fjórðungur fjárins rennur
til þeirra. Af þeim hlum hæstan
styrk eigendur jarðarinnar
Arnarholts í Stafholtstungum, eða
500 þúsund krónur. 200 þúsund
krónur hlaut skógræktarverkefni á
Ytri Kóngsbakka í Helgafellssveit.
Fimm 100 þúsund króna styrkir
komu einnig á svæðið. Þá hlutu
Skógræktarfélag Skilmannahrepps
vegna Stóru Fellsaxlar, Skógrækt-
ar- og landverndarfélag undir Jökli
vegna skógræktar við Gufúskála,
Skógræktarfélag Olafsvíkur, Skóg-
ræktarfélag Stykkishólms vegna
Borgar í Helgafellssveit og Skóg-
ræktarfélag Akraness vegna
norðurhlíða Akrafjalls. Starfsmenn
Fiskiðjunnar Bylgjunnar fengu
einnig 50 þúsund krónur vegna
umhverfisverkefna þeirra sem
Skessuhom greindi frá í síðustu
vilcu. -MM
Borunum loldð í
Grundarfirði
í síðustu viku lauk tilraun-
aborunum í Grundarfirði en þær
eru liður í jarðhitaleit við bæinn.
Að sögn Bjargar Ágústsdóttur
sveitarstjóra var borað niður á 609
metra dýpi og var hitastigullinn
jákvæður. Dr. Kristján Sæmundss-
son er væntanlegur til Grundar-
fjarðar í vikunni til að ffamkvæma
rannsóknir á borholunni. „Það er
ekki ljóst fyrr en niðurstöður úr
frekari rannsóknum liggja fyrir
hvort þetta er ákjósanlegur kostur,“
sagði Björg.
Á Berserkseyrarodda hefur
fundist næjanlegt vam til að ylja
Grundfirðingum en það er kosm-
aðarsamt að flytja vamið yfir, eða
fyrir Kolgrafarfjörð og því hefúr
verið lögð áhersla á að finna vam
nær þéttbýlinu.
G.E.
Eldur í bíl á
Bröttubrekku
Síðastliðinn sunnudag kvikn-
aði í biffeið sem var á leið yfir
Bröttubrekku.
Biffeiðin var á akstri þegar eldur
gaus upp í vélarrúmi. Ökumaður
bíls sem kom á eftir var með
slökkvitæki meðfærðis og tókst
honum að slökkva eldinn. Ekki
urðu slys á fólki í eldsvoðanum en
biffeiðin var töluvert skemmd.
G.E.
Slagsmál og
nauðgun
Nauðgunarmál er til
rannsóknar hjá lögreglunni
í Borgamesi eftir kvöldvöku
og ball á Faxaborg um
síðustu helgi. Að sögn
lögreglu var maður hand-
tekinn um nóttina grunaður
um verknaðinn.
Fjöldaslagsmál bramst út á
dansleiknum og þurfti að kalla
til lögreglu til að stilla til
friðar. Einn maður þurffi að
leita Iæknis eftir ólætin en
hann var illa skorinn í andliti
efitir að hafa verið barinn með
flösku í höfúðið.
Eftir að lögreglan hafði
skakkað leikinn var sem allur
vindur væri úr samkomugest-
um og fór skemmtunin vel
ffam það sem efrir lifði nætur.
-GE
Snæfellsbær
Tveir sviptir
ökuréttindum
Um síðustu helgi voru
tveir ökumenn sviptir
ökuréttindum fyrir of
hraðan akstur. Annar var
tekinn á 157 km hraða á
klst. utan þéttbýlis en hinn
innanbæjar.
Að sögn lögreglunnar í
Snæfellsbæ vora allmargir
ökumenn stöðvaðir fyrir of
hraðan aksmr þessa helgi. Þá
má geta þess að lögreglan
notaði ómerkta bifreið ril lög-
gæslustarfa vegna bilunar í
lögreglubiffeiðinni sem ann-
ars hefði verið í notkun. Gera
verður ráð fýrir að einhverjum
hafi verið bragðið við þessa
óvænm aðferð lögreglunnar
hér í Snæfellsbæ.
-EMK-
Akranes
Nýr aðal-
bókari
Snorri Páll Einarsson hef-
ur verið ráðinn aðalbókari
Akraneskaupstaðar.
Fjórir aðilar sóttu um
stöðuna. Snorri Páll hefur
undanfarin ár starfað í Hol-
landi og þar af síðustu tvö ár
sem aðalbókari á fjármálasviði
hjá stóru atvinnumiðlunar-
fyrirtæki. Snorri Páll tekur við
af Jóhannesi Guðjónssyni sem
sagði starfi sínu sem aðal-
bókari lausu í lok júm' sl.
K.K
*
Arekstur við
••
Olver
Árekstur varð á þjóðvegi
1 við Olver um síðustu
helgi er ekið var aftan á bíl á
suðurleikð.
Okumaður vöruflutninga-
bifreiðar sem kom á eftir
missti stjóm á bílnum og lenti
útaf veginum. Fjórir vora
fluttir á Heilsugæslustöðina í
Borgarnesi til skoðunar en
meiðsli þeirra reyndust eklci
veraleg.
G.E.