Skessuhorn


Skessuhorn - 12.08.1999, Side 6

Skessuhorn - 12.08.1999, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 ^sunu^ Alltaf sól í Kvennareið Kúrekar vestursins og glaðbeittir eiginmenn nefndarkvenna sáu um veitingar á áningarstöðum. Það var bæði sól í sinni og heiði þegar hressar konur úr Dölunum héldu sína árlegu kvennareið síðastliðinn laugar- dag. Að þessu sinni voru það laxdælskar konur sem skipu- lögðu dagskránna. Kvennareið í Dölum á sér nú níu ára sögu. I fyrstu voru þátttakendur tæplega f]örutíu talsins en hefur fjölgað ár ffá ári þannig að nú er um að ræða eina fjölmennusta kvennareið Iandsins. Ferðin er farin annan laugardag í ágúst og öll árin hefur viljað svo til að veður hefiir verið afburðagott. Þegar blaðamað- ur, sem á staðnum var, kváði og sagði „en heppilegt", voru Dala- meyjar fljótar að undirstrika að það væri alltaf gott veður í Dölunum og því hefði það ekkert með heppni að gera. Að þessu sinni voru þátttakendur um 120 talsins sem er með því besta frá upphafi. Flestar koma úr Dalasýslu þó gestir komi lengra að, svo sem úr Reykhólasveit. Riðið var frá Ljárskógum til Vígholtsstaða þar sem eiginmenn undirbún- ingsnefndarkvenna trakteruðu kon- urnar með fljótandi veitingum. Frá Vígholtsstöðum var síðan riðið að Hjarðarholti þar sem slegið var upp grilli í trjálundi staðarins. Þar var söngur og grín fram eftir kvöldi. Allt mun hafa gengið slysalaust fyrir sig að undanskildu því að einn þátttakanda var svo óheppin að misstíga sig og ökklabrotna. Texti og myndir: MM Það var engan Jylusvip að sjá á þátttakendum., enda veður hið Gyða í Brautarholti var meðal þeiira kvenna sem stóðufyrir ákjósanlegasta til útreiða. fyrstu kvennareiðinni sem þá var einnigfarin um Laxárdalinn. Hér er hún ásamt Elínu Bjamadóttur frá Húnsstöðum í Hiína- vatnssýslu. Leikfélagið Sýnir hefur nú lokið leikferð sinni um landið með útileikritið Nýja tíma. Sýningarsvœðið var Logalandsskógur í Reykholtsdal. Attatíu manns sóttu sýninguna í þokkalegu veðri og var góður rómur gerður að þætti leikara og verkinu sjálfu sem er eftir Böðvar Guðmundsson skáldfrá Kirkjuhóli í Hvítársíðu. Atkygli vekur að hér var á ferðinni hópur áhugaleikara vítt og breitt af landinu sem samemuðu krafta sína og réðust í uppfierslu verksins fytr í sumar. Sýningar voru á 9 stöðum um landið, auk Logalandsskógar var það ma. einnigsýnt í Olafsvík. Mynd: MM Þær sáu um að afgreiðslu Pizzuhraðlestarinnar á unglingalandsmóti. Mynd: ÁHB Pizzuhraðlestin Á unglingalandsmóti íslands í frjálsum sem haldið var í Borg- amesi um síðustu helgi þurftu keppendur að sjálfsögðu að fá kjamgott fæði. Ein máltíð helg- arinnar samanstóð af flatbökum ffá Brúamesti, eða Skógar- bökunni, í Borgamesi. Vaskleg framganga pizzusend- ilsins vakti athygli. Gestur Fjeld- sted leigubílsstjóri í Borgarnesi sá um að aka pizzunum á íþrótta- svæðið jafnharðan og þær komu úr ofninum á Brúarnesti. Afgreiðslu- hraðinn var ógurlegur, eins og sjá má á meðfylgjandi broti úr saman- tekt formanns UMSB á handa- ganginum í öskjunni: 10 pizzur koma kl. 19:35, kl. 19:36 er sendillinn búinn að losa og farinn í næstu ferð. Hann kom aftur kl. 19:45 með aðrar 10 pizzur. Næst kom hann kl. 20:00 með 9 pizzur, 20:06 með 5 pizzur, 20:12 með 6 pizzur og 20:19 með 9 pizzur. Eftir þetta fór að draga úr afgreiðsluhraðanum enda var íþróttafólkið tekið að mettast. Þegar upp var staðið hafði íþróttafólkið sporðrennt 159 pizz- um eða 2544 tommum! Geri aðrir betur. -MM Skagaleikflokkurinn 25 ára. í tílefhi af 25 ára afinæli Skaga- Ieikflokksins verður opnuð sýning í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi laugardaginn 14. ágúst kl. 15.00. Sýnd verða plaköt, leikskrár, leikmunir, búningar, handrit, ljós- Opnunartíml Sun - Flm 11:00-22:0C Fös - Lau 11:00-05:0C Fjðl&kyldutílboð 16‘ Pízza m/2 álleggatagundun 12" Hvítlauktbrauð og 2L. Kók og Franakar tyrír 4 myndir o.fl. A myndbandi verða sýndir hlutar úr ýmsum verkum, úr ferðalögum og af öðru starfi. Sýningunni lýkur 29. ágúst Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga ffá kl. 15-18. ►► Sjávarfang er okkarfag! ►► Öllgistíngmeðsér baSherbergum!

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.