Skessuhorn


Skessuhorn - 23.03.2000, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 23.03.2000, Blaðsíða 1
Reykholtsdalur: Heilsugæslan lögð niður Á fundi Heilsugæslustöðvarinn- ar í Borgarnesi í síðustu viku var samþykkt að leggja niður starfsemi stöðvarinnar í Reykholti frá og með 1. apríl n.k. I Reykholti hefur verið rekin heilsugæsla með opn- unartíma tvisvar í viku í tæp tvö ár en áður hafði sú starfsemi verið að Kleppjárnsreykjum. Að sögn Þórunnar Gestsdóttur sveitarstjóra í Borgarfjarðarsveit kemur þessi ákvörðun til af því að sú þjónusta sem boðið hefúr verið upp á er lítið nýtt af íbúum sveitar- félagsins sem skipta frekar beint við heilsugæslustöðina í Borgarnesi. Þá hefur Hótel Reykholt sagt upp leigusamningi vegna húsnæðisins og því var þessi ákvörðun tekin. Hreppsnefhd Borgarfjarðarsveitar ályktaði hinsvegar á síðasta fundi sínum vegna málsins og harmar þessi endalok stöðvarinnar í Reyk- holti. GE Foreldrar frá- leitthættir Þrátt fyrir að skólanefnd hyggist standa fast við ákvörðun sína um að mæla með lokun leikskólanna á Akranesi í tvær vikur í sumar, eru foreldrafélög leikskólanna fráleitt hætt að berjast fyrir því að frá þeirri ákvörðun verði fallið. I niðurstöðu könnunar sen foreldrafélögin létu gera um viðhorf foreldra til lokunar kemur fram að 70% foreldra er andvígur lokun. Nokkur munur er á milli leikskólanna; á Garðaseli eru 78% andvígir, á Vallarseli 50%, og á Teigaseli 77%. Einnig kemur fram í könnuninni að aðeins 22% foreldra á Garðaseli getur valið sumarleyfistíma sinn, 30% á Vallar- seli og 24% á Teigaseli. Á þessu sést að talsverð fylgni er á milli þessara svara. í bréfi leikskólafulltrúa til foreldra þann 16. mars er áætlað að Teigasel verði lokað ffá 3. júlí til 14. júlí, Vallarsel frá 10. júlí til 21. júlí og Garðasel frá 17. júlí til 28. júlí. I bréfinu kemur einnig fram að leikskólastjórar þurfi að hafa upp- lýsingar um sumarleyfistíma barna um mánaðarmótin apríl/maí. For- eldrar sem ekki geta ráðið sumar- leyfistíma sínum geta því þurft að sætta sig við að börn þeirra þurfi að vistast á tveimur leikskólum til að brúa bilið vegna lokunarinnar. For- eldrafélög leikskólanna telja þessi úrræði óviðunandi og hafa sent bæjarráði bréf þar sem ákvörðun þessari er mótmælt. PO Hestur og haf. Myndin var tekin á Snæfellsnesi fyrir skömmu. Mynd: GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.