Skessuhorn - 23.03.2000, Blaðsíða 11
§síssiiií@m
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
11
Búvélasafiiið á Hvanneyri
Gömlu búvélarnar geyma þjóðarsögu
Avinnsluherfi.
Það líta margir við í Bú-
vélasafninu á Hvanneyri til
þess að rifja upp horfna
sveitamenningu. Á síðasta
ári komu vel á íjórða þús-
und gestir í safnið. Bjarki
Már Karlsson hjá Vefs-
miðju Vesturlands hefur
búið safninu myndarlega
heimasíðu (www.vestur-
land.is/buvelasafn) og
þangað hafa komið nokkuð
á annað hundrað gestir í
hverjum mánuði undanfar-
ið.
Búvélasafnið er opið
daglega sumarmánuðina
júní-ágúst en á öðrum tím-
um eftir þöríúm. Ferða-
þjónusta er vaxandi á Hvanneyri og
myndar Búvélasafnið ágæta einingu
með Ullarselinu og Kertaljósinu
þar. Gestir geta því skoðað gæða-
handverk úr íslenskum afurðum,
steypt sín eigin kerti, gengið á vit
fornvéla úr sveitinni gömlu og
fengið sér kaffisopa - ellegar flókn-
ari beina í sumarhóteli staðarins,
allt eftir áhuga og löngun.
Dagana 14. og 15. ágúst efndi
Búvélasafnið til sérsýningarinnar
Ytur í lífi þjóðar, í samvinnu við
verktakafyrirtækið Jörva hf á
Hvanneyri, Vegagerð ríkisins/Veg-
minjasafnið og Heklu hf. Áður hef-
ur verið sagt frá sýningunni hér í
blaðinu en hana sóttu um 700
manns. Sýningin heppnaðist prýði-
lesja í alla staði.
. Yn
N'okkuö var unnið að uppgerð og
lagfæringu eldri tækja, einkum
jS'f&vinnsluverkfæra frá dögum
hestaflsins, en nú er reynt að þétta
þann hluta Búvélasafnsins sem best.
Sem fýrr var Erlendur Sigurðsson
vélameistari safhinu innan handar
um þetta verk og fleiri.
Búvélasafninu bættust margir
góðir gripir á árinu. Safnið á vel-
viídarmenn víða um land sem
reynst hafa drjúgir við að útvega,
gefa eða benda á forvitnilega gripi.
Ekki er rúm til að geta alls
saínaukans hér, nokkur dæmi verða
að nægja:
Grjótgálgi - frá Friðrik
Brynjólfssyni í Austurhlíð í
Blöndudal. Sá þekkti búnaðarfröm-
uður Guðmundur Jósafatsson, oft
kenndur við Brandsstaði, notaði
gálgann þar í sveitum bæði við
ræktun og húsagerð.
Mónafar - frá Olafi Péturssyni í
Stóru-Tungu í Dölum. Mónafarinn
er líklega kominn úr smiðju Torfa
Bjarnasonar í Ólafsdal. Með áhald-
inu var m.a. leitað að mó í jörðu.
Það átti því sinn hlut í þyrmingu ís-
lensku birkiskóganna.
Járnsmíðaáhöld - Kolbeins í
Stóraási í Hálsasveit, sem sonur
hans, Magnús, færði safninu, en
Magnús hefur gefið safoinu fleiri
góða gripi, m.a. IHC-plóg fýrir W-
4 frá blómatíð þeirra dráttarvéla á
5. áratug aldarinnar.
Einhestis heysnúningsvél með
kömbum - frá Oddi Gunnarssyni á
Dagverðareyri við Eyjafjörð. Odd-
ur gaf líka gaddþreskivél, korn-
sláttuvél (hesta-), kornþreskivél og
fjölyrkjan Trölla, svo og saxblásara
frá fyrstu árum þeirrar tækni. Allt
eru þetta hinir merkustu gripir.
Forardæla - ffá Anton Jónssyni
að Naustum í Eyjafirði, sem einnig
afhenti safninu merkilegan forn-
plóg, sem líklega er einn fárra sem
til landsins bárust á seinni öldum.
Þá fékk Búvélasafnið til tíma-
bundinnar varðveislu frá Byggða-
safninu í Görðum Lanz Alldog
dráttarvél Sveinbjarnar Beinteins-
sonar á Draghálsi. Ennfremur
Deutz-dráttarvél frá Haga í Skorra-
dal.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi
þeirra véla og verkfæra sem Búvéla-
safninu bárust á árinu 1999. Nefna
má að ýmsir færðu safninu bækur
og bæklinga um vélar fyrri tíðar.
Myndir bárust safninu en þær eru
ekki síður verðmætar en vélar og
tæki. Nefna má að safninu bárust
forvitnilegar myndir frá Háafelli í
Hvítársíðu frá tímum landbúnaðar-
jeppans. Einnig traktorjarðvinnslu-
myndir frá þeim Magnúsi og Helga
frá Stóraási sem teknar voru til þess
að sanna það fýrir sjálfum Marshall
hinum bandaríska að hjálparfé hans
væri skynsamlega notað uppi í
Borgarfirði.
Nú er unnið að því að efla tengsl
Búvélasafnsins við Þjóðminjasafn
Teikning: Bjarni Guðmundsson
íslands og fleiri söfn. Samvinna og
hæfileg verkaskipting á þessu sviði
er mikilvæg svo vinna og takmark-
aðir peningar nýtist sem best. Á ár-
inu 1999 fékk Búvélasafnið kær-
kominn fjárstuðning frá Borgar-
fjarðarsveit og Þjóðhátíðarsjóði
sem þakkað er fýrir. Sem fýrr var
Landbúnaðarháskólinn að öðru
leyti ábyrgur fýrir rekstri safnsins.
Búvélasafnið á Hvanneyri þakkar
gestum sínum á árinu 1999 fýrir
komuna og þá ekki síður öllum
þeim sem færðu því gripi og fróð-
leik af öðru tagi. An athygli og
áhuga allra þessara aðila væri
grundvöllur Búvélasafnsins á
Hvanneyri ósköp veikur. Um leið
biðjum við enn alla þá sem vita af
gripum eða öðrum heimildum sem
átt gætu erindi við Búvélasafnið að
hafa samband við okkur.
Síminn er 437-0000 og netfangið
bjarnig@hvanneyri.is
Bjami Gnðmundsson
Sumcirhús
Marka> srá> Borgfir> inga mun standa fyrir
uppltsingagjöf um sumarhúsaló> ir í sumar
eins og undanfarin ár. í ár er fyrirhuga>
a> gefa út bœkling me> fyrirliggjandi
uppltsingum auk hef> bundinnar
upplísngagjafar og augltsingu á vefnum.
fieir sumarhúsabœndur, sem ekki eru á
skrá nú fl egar en vilja vera fl a> í sumar
eru vinsamlegast be> nir um a> hafa
samband sem fyrst.
Markaðsráð Borgfirðinga
Borgarbraut 59, Borgarnesi
s.: 437 2025 - netfang: borg@isholf.is
£>wrra&tÆ
Leihhúsdagur í
Borgarfiröi
Fyrirleslrar í héraði
á vegum Snorrasíofu
Már Jónsson
sagnfræðingur mun halda
fyrirlestur laugardaginn
25. mars n.k. kl. 16
í safnaðarsal Reykholtskirkju
Fyrirlesturinn nefnist
íslandsklukkan og Ámi Magnússon
Við hvetjum fólk til að koma í Reykholt og hlusta á
áhugaverðan fyrirlestur.
Aðgangseyrir er 400 kr., kaffiveitingar.
: V:
■Sllllll
}. 5 »
Oskum eftir að ráða
- vélamenn
- bíistjóra
- kranamenn (byggingakrana)
til vinnu við stækkun álvers á Grundartanga
Upplýsingar í síma 431-3970
TCTAIT
lð lAIV
VERKFRÆÐINGAR-VERKTAKAR