Skessuhorn - 06.04.2000, Blaðsíða 5
iSiifcSSÍiMÖMi
FIMMTUDAGUR 6. APRIL 2000
5
Eitt af því sem viö Islendingar meg-
um vera hvaö stoltastir af í rúmlega
1100 ára sögu þjóðarinnar var þegar
viö ákváöum aö segja bless viö dön-
sku herraþjóöina og reyna aö standa á
eigin löppum. Þó má kannski einu
gilda fyrir aldraöa og öryrkja á hverjum
tíma, hvor skammtar naumar skítinn úr
hnefa, danskur kóngur eöa íslenskur
forsætisráðherra sem heitir Davíö
Oddsson. Hvaö um þaö, þá er býsna
notalegt aö vera laus undan því er-
lenda valdi sem áður fyrr mergsaug ís-
lensku þjóöina og malaði gull, en lét
lítið eða ekkert í staðinn.
Á sama tíma smöluöu danskir sam-
an Afríkubúum, fluttu í skip og fóru
með þá til Vestur-lndía og seldu sem
þræla á sykurplantekrur. En svo kom til
eitthvað sem heitir almenningsálit of-
aní mannréttindarugl svo danskir
máttu láta af þessum bíssness, en þá
voru danskir Heimdallarstrákar og heit-
trúarkratar þess tíma búnir aö græöa
gnótt á tiltækinu, og kóngur haföi feng-
iö fjármuni í ríkiskassann, til aö geta
farið í stríö eins og kónga var siður.
En þá var danski herinn búinn aö
éta svo mikinn sykur af plantekrunum
aö hver og einn einasti hermaður var
oröinn vita gjörsamlega tannlaus og
aukinheldur svo sílspikaöur, aö síðan
hafa danskir tapaö hverri einustu styrj-
öld sem þeir hafa álpast út í. Annars
segir mér aöalheimildarmaöur minn
um ættfræði, að Davíð Oddson eigi
ættir aö rekja til Vestur-lndía, en heim-
ildarmaöurinn er ekki viss um hvort
Davíð sé út af þræl eöa pískara, enda
skiptir þaö mig erigu máli. Hitt þótti mér
merkilegra þegar hann fræddi mig á
því aö Davíð og Bob Marley heföu
verið sexmenningar aö frændsemi.
Þeir eru svo fjári líkir í hárafari.
En nú verður mér og fleirum um og
ó. Það er rætt um aö selja Landssím-
ann eins og hann leggur sig til danskra
aðila. íslenskir Heimdallarstrákar og
heittrúarkratar eru búnir aö hræra svo í
landsfeðrunum aö þeir selja ríkisfyrir-
tæki út og suður fyrir slikk. Áburðar-
verksmiðjan fór fyrir lítiö og ekki er aö
sjá að bændur komi til meö aö njóta
góös af þeirri sölu, þó nú sé hún einka-
rekin, nema kannski þeir sem pöntuðu
áburö fyrir síöustu áramót. Þeir fengu
stuttermaboli, „Star Wars“ dót og Stoke
City trefla og vettlinga í jólagjöf frá Har-
aldi í Andra. Semsé nú fer síminn aö
lúta dönskum yfirráðum. Þá kemur upp
sú spurning í hvaða formi maður greiö-
ir afnotagjöldin. Varla þýðir aö bjóöa
dönskum belgvettlinga eöa tólg eins
og á öldum áöur. Ætli þeir taki við ööru
en Evru?
Maður sér líka fyrir sér netfangið sitt
nýja, klamvisur@istedgade.dk.
Nú er einhver nefndarnefna fyrir
sunnan á fullu viö aö drösla hálendinu
niöur á láglendið og helst niöur fyrir
sjávarmál. Sveitavargurinn á þó rétt á
einhverjum mótbárum, sem lllugarnir
túlka sjálfsagt sem væl í bændum. III-
ugarnir heyra nefnilega væl í bændum
þó þeir síðarnefndu steinhaldi kjafti. Er
nú svo komiö að búandlið sem býr
næst fjöllum og heiöum þorir ekki fyr-
ir sitt litla líf lengur á klósettið af ótta viö
aö salernið sé oröiö þjóðlenda, opiö
fuglaskyttum illvígum ásamt um-
gangslýð hverskonar. Er því von að
maður tuldri fyrir munni sér setninguna
sem á viö þegar maöur fær fyrsta
reikninginn frá Dansk telefon kompag-
ni, Gud bevare os alle sammen.
Bjartmar Hannesson.
Fundað um
fjarkennslu
Síðastliðinn mánudag stóð Sí-
menntunarmiðstöð Vesturlands
fyrir fundi um fjarkennslumál í
Grunnskólanum í Grundarfirði.
Þar fluttu fjarkennslustjórar Há-
skóla Islands og Kennaraháskólans
kynningu á stefnu stofnana sinna í
fjarkennslumálum, kynntu væntan-
legt framboð náms og fræddust um
leið af fundarmönnum um óskir
heimafólks um ffamboð menntun-
ar. Auk þess var á fundinum kynnt
framboð annarra fræðslustofhana
til fjarnáms.
MM
Gestir á fundinum í Grundarfirði
þar sem- fjallað var um fiar-
kennslumál. Mynd: Guðlaugur
Kútter Sigurfari sem stendur við Byggðasafiiið í G'úrðum.
Mynd: KK
Nýtt safhahús í Görðum
Föstudaginn 31. mars voru form-
lega undirritaðir samningar um nýtt
safnahús að Görðum. Húsinu er ædað
að hýsa Steinaríki íslands, Hvalfjarðar-
gangasafo, Kortasafa Landmælinga
Islands og væntanlegt íþróttamin-
jasafa. Þeir sem undirrimðu samning-
ana fyrir eignaraðilana sem eru Akra-
neskaupstaður og hreppamir sunnan
Skarðsheiðar voru: Jón Pálmi Pálsson
fyrir Akranesbæ, Anton Ottesen,
Innri-Akraneshreppi, J ón Valgarðsson,
I Ivalfjarðarstrandarhreppi, Sigurðm
Valgeirsson, Leirár- og Melahreppi og
Jón Þór Guðmundsson, Skilmanna-
hreppi. Auk þeirra undirrimðu samn-
ingana fyrir hönd Byggðasafas Akra-
ness og nærsveita Valdimar Þorvalds-
son stjómarformaður safasins, Magn-
ús Guðmundsson, forstjóri Landmæl-
inga, Þorsteinn Þorleifsson fyrir
Steinaríki fslands og Þráinn Gíslason
verktaki fyrir Trésmiðju Þráins. A
þriðjudagsmorgun var byrjað að grafá
fyrir grunni hússins og fyrirhugað er
að byggingin verði tilbúin og opnuð til
sýninga í lok ágúst. PO
rASON hdl.
logg. fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
Nýtt á söluskrá
Austurholt 3, Borgarnesi.
Einbýlishús (timbur), 136,7 ferm. ásamt sökklumundir
bílskúr. Forstofa flísalögð. Hol, stofa, gangur og 4 herb.
parketlögð. Skápar í 3 herb. Eldhús og baðherb. dúklagt.
Málaðar viðarirmr. á baði og eldhúsi. Máluð gólf í
aukainngangi, þvottahúsi og búri. Geymslulofit. Góður
sólpallur og stór garður.
Verð: kr. 9.500.000
Borgarbraut 1-3, Borgarnesi.
íbúð á 2. hæð, 55 ferm. Stofa og tvö herbergi parketlögð.
Flísar á baðherb. Nýleg ljós innrétting. Eldhús dúklagt,
máluð viðarinnrétting.
Verð: kr. 4.500.000
Vantar eignir á skrá, aðallega mintii
og meðalstórar eignir.